Tíminn - 23.04.1975, Qupperneq 4
4
TÍMINN
Miðvikudagur 23. april 1975.
Hefur unnið
mikla sigra
í leikfimi
Eberhard Gienger er 23 ára
gamall. Hann hefur lengi verið
talinn einn af færustu fimleika-
mönnum heims, og heims-
meistaratitil hlaut hann á móti i
Varna i Búlgariu nýlega. Þetta
er i fyrsta skipti i áraraðir, sem
Þjóðverji nær svona langt á
sviði fimleika. Sagt er, að Eber-
hard eigi mikið að þakka þjálf-
ara sinum, Eduard Friedrich,
sem hefur þjálfað hann stöðugt
frá þvi 1965. 1 Varma varð fólk
mjög hrifið af Eberhard, bæði
sem fimleikamanni, mála-
manni og skemmtilegum fé-
laga, en hann kom mjög vel
fram og var ánægjulegur i sam-
skiptum við samkeppendur
sina. Hér á myndinni er Eber-
hard i loftstökki.
Sólarorka
nýtt til
vatnshitunar
Það ráðuneyti Bonnstjórnar-
innar, sem hefur með rannsókn-
ir á orku- og tæknimálum að
gera, mun á næstu 5 árum fara
fram á 110 milljóna fjárveit-
ingu. Hér er mynd af húsi (til-
raunahúsi), sem hefur fimm-
falda einangrun. Húsið er I
Aachen og er verið að prófa,
hvort hægt sé að nota sólarorku
til að sjá húsinu fyrir nægu heitu
vatni og e.t.v. seinna fyrir upp-
hitun. Tæknin er ekki fólkin.
Svört málmplata á baki safnar I
sig sólarhita, vatn er látið taka
við hitanum og það látið renna i
40 kúbikm. geymi.
Apaspil
Ef þú ætlar að vera með eitt-
hvert apaspil, þá verður þú að
gera það á heiðarlegan hátt, og
standa vel I stykkinu, rétt eins
og Moira Graves i Manchester
gerði. Hún bauðst til þess að
hugsa um tvo simpansaunga,
Silas og Topaz, á meðan móðir
þeirra þurfti að vera á dýra-
spitalanum. Moira dvaldist hjá
ungunum i búri þeirra I dýra-
garðinum, og allt gekk sérstak-
lega vel. Apabörnin voru við
Moiru rétt eins og væri hún
móðir þeirra, eins og sjá má á
meðfylgjandi mynd.
Heldurðu að þetta sé rétti timinn
til þess að komast að þeirri niður-
stöðu, aö þú hefðir heldur viljað,
aö ég héldi áfram að vinna I bank-
anum.
Enn kemur þú of seint, Jói, og
hver er skýringin i þetta sinn.
Geturðu sagt mér, hvaö hann er
að segja.
DENNI
DÆAAALAUSI
Ég er svo svangur, að ég gæti
meira að segja borðað gulrót.
Já, þú veizt auðvitað, að ég tók
bara svona til orða, en meina
það ekki i alvöru.