Tíminn - 11.07.1975, Síða 5
Föstudagur 11. júli 1975.
TÍMINN
5
Síung hreyfing
1 dag hefst á Akranesi 15.
landsmót UMFÍ. Er búizt viö
miklu fjölmenni á mótiö, eins og
jafnan, þegar UMFt heldur
landsmót sin. Félagsmönnum
innán UMFt hefur farið ört
fjölgandi á siöustu árum og er
tala þeirra nú um 17 þúsund.
Bendir þaö til þess, aö ung-
mennafélagshrey fingin hafi
haldið vöku sinni og sé siung i
anda, þrátt fyrir stórkostlegt
breytingatimabil frá stofnun
hennar.
Stuðningur við
áhugamanna-
starfið
Hafsteinn Þorvaldsson, for-
maður UMFÍ, ritaði nýlega at-
hyglisverða grein i Skinfaxa,
timarit UMFÍ, þar sem hann
ræöir um starfseriii áhuga-
mannafélaga. Hann segir m.a.:
,,Um árabil hefur menn greint
talsvert á um
það með hverj-
um hætti væri
bezt borgið
framkvæmd al-
mennrar æsku-
lýðsstarfsemi
hér á landi, og
þá fyrst og
fremst hver af-
skipti opinberra aðila ættu að
vera varðandi framkvæmd
æskulýðsstarfseminnar. Flestir
hafa þó talið rétt að taka þá
stefnu að styrkja frjálsa æsku-
lýðsstarfsemi, þar sem hún hef-
ur verið til staðar. En til eru þó
staðir hérlendis, þar sem opin-
berir aðilar, þ.e. bæjar- og
sveitarfélög, hafa beinlinis tekið
að sér rekstur æskulýðsstarf-
seminnar, að sjálfsögðu með
ærnum tilkostnaðiog misgóðum
árangri, I stað þess að hvetja á-
hugamannafélögin til dáða með
auknum stuðningi eða leita or-
sakanna fyrir félagslegri deyfð
þeirra og reyna þá að bæta
stöðu þeirra með einhverjum
hætti.
Forráðamenn bæjar- og sveit-
arfélaga, svo og rikisins eru I
vaxandi mæli að gera sér ljóst,
að til þess að nýta sem bezt það
takmarkaða fjármagn sem
þjóðin getur varið til þessarar
starfsemi, ber að taka upp þá
stefnu að styrkja áhugamanna-
starfið til muna og meira en
gert hefur verið.”
Ekki séríslenzkt
rrirbæri
Enn fremur segir Hafsteinn i
grein sinni:
„Hér er ekki um séríslenzkt
fyrirbæri að ræða, þetta er rikj-
andistefna nú meðal nágranna-
fyi
þjóða okkar á Norðurlöndum og
i Evrópu. Undirritaður leyfir
sér i þvi sambandi að vitna til
tveggja ráðstefna sem hann sat
erlendis á þessu vori, þar sem
þessi stefna var rækilega kynnt:
Ráðstefnu iþróttaleiðtoga i
Strassburg, þar sem lögð var
fram athyglisverð stefnumótun
ráðherrafundar Evrópuráðsins
sem haldin var i Brussel 20. til
21. marz s.l. og Birgir
Thorlacius, ráðuneytisstjóri sat
fyrir islands hönd. Hin ráð-
stefnan var i Osló, þar sem
saman komu fulltrúar æsku-
lýðsráða Norðurlandanna og
æskulýðsfulltrúar.
Ég leyfi uiér að vona, að
stefnuyfirlýsingu þessari verði
framfylgt hér á landi, og skiptir
þar auðvitað höfuðmáli jákvæð
og skilningsrik afstaða núver-
andi menntamálaráðherra til
þessara mála.
Það er kunnara en frá þurfi að
segja, hve erfið fjárhagsstaða
hinna frjálsu æskulýðshreyf-
inga á islandi er og hversu
gífurlegt afl mætti leysa úr læð-
ingi t.d. innan ungmennafélags-
hreyfingarinnar með auknum
fjárstuðningi við samtökin, sem
hafa innan sinna vébanda 17.000
félagsmenn i 196 félögum i öll-
um sýslum landsins. i engu skal
þó vanmetin sá stuðningur, sem
félögin hafa nú, bæði er varðar
aðstöðu ýmis konar og þeinar
fjárveitingar.” —a.þ.
Nýkomið - Nýkomið
Opið til kl. 7 á föstudögum — Lokað á laugardögum
Vinsam-
legast vitjið
pantana
gerðum
Höfum
fengið nýja
sendingu af
hinum
vinsælu
norsku
LEÐUR-
STÓLUM
WESTNOVA, NORSK
HÚSGÖGN í
SÉRFLOKKI
Verzlið
þar sem
úrvalið er
mest og
kjörin bezt
28-600 Byggingavörukjördeild 28-602 Raftækjadeild
28-601 Húsgagnadeild 28-603 Teppadeild
SPERW+IVEW HOLLAIND
Baggafæribönd
og fyrir rafmótor
NEW HOLLAND baggafæribönd má
koma fyrir hvort sem er í nýjum eða
gömlum hlöðum.
Vegna einfaldrar byggingar færi-
bandanna eru þau létt og lipur i
meðförum.
Lengd færibandanna er eftir þörfum hvers
og eins og má lengja þau um 2 og/eða 3
metra í senn.
Hafið samband við sölumann.
Til afgreiðslu nú þegar
Nónari upplýsingar hjá sölumanni
Gbbust
LÁGMÚLI 5, SlMI 81555
Vinnustofa Ósvaldar
Knudsens opnuð al
menningi í mánuð
— þa r verða sýndar kvikmyndirnar Eldur
í Heimaey og Þjóðhátíð á Þingvöllum
Vilhjálmur Knudsen kvik-
myndagerðarmaður hefur ákveð-
ið að opna vinnustofu föður sins,
Ösvalds heitins Knudsen, al-
menningi um því sem næst mán-
aðartima. Sýndar verða kvik-
myndirnar: „Eldur i Heimaey”
og „Þjóðhátið á Þingvöllum”.
Þeir feðgar unnu saman að
báðum þessum kvikmyndum.
„Eldur i Heimaey” var fullgerð á
siðastliðnu hausti og þá sýnd við
mikla aðsókn á Kjarvalsstöðum.
Hún hefur siðan verið sýnd viða
um heim. A kvikmyndahátið i
Trentó á ítaliu I mai siðastliðnum
hlaut hún gullverðlaun.
Texta kvikmyndarinnar samdi
dr. Sigurður Þórarinsson, tónlist
Magnús Bl. Jóhannsson, tónupp-
töku annaðist Lynn Costello
Knudsen og tónsetningu Sigfús
Guðmundsson. Aðrir kvikmynda-
tökumenn en þeir feðgar voru
Guðjón Ólafsson, Heiðar Mar-
teinsson, Sigurgeir Jónasson og
Sigurður Kr. Arnason. Kvik-
myndin er 30 minútna löng og i
litum.
Kvikmyndin „Þjóðhátið á
Þingvöllum” fjallar um hátiðar-
höldin á Þingvöllum 28. júli 1974.
Frágangi hennar var að verulegu
leyti lokið er Ósvaldur féll frá 13.
marz siðastliðinn. Kvikmyndin
verður nú sýnd i fyrsta sinn.
Tónlist við myndina samdi
Magnús Bl. Jóhannsson, tónupp-
töku annaðist Dennis D. Jóhann-
Auglýsið
r
i
Tímanum
im |
esson og þulur er Óskar Halldórs-
son. Kvikmyndin er 33 minútna
löng og i litum.
Myndirnar verða sýndar á
hverju kvöldi kl. 9 i kvikmynda-
vinnustofu Ósvalds, Hellusundi
6a, Reykjavik. Miðapantanir eftir
klukkan 4 i sima 13230. Verð að-
göngumiða er kr. 200 fyrir full-
orðna og kr. 100 fyrir börn. Sýn-
ingin tekur röska klukkustund.
Sýningar hefjast miðvikudag-
inn 9. júli 1975.
Snör hand-
tök stúlk-
unnar komu
í veg fyrir
stórtjón
H.V. Reykjavik. Starfsstúlku I
eldhúsi kaffistofunnar að Lauga-
vegi 22 I Reykjavik, tókst með
snarræði sinu og réttum við-
brögðum að koma I veg fyrir mik-
ið tjón þegar kviknaði i
feitipotti i eldhúsinu. Stúlkan
breiddi þegar eldvarnateppi yfir
pottinn og úðaði með duftslökkvi-
tæki umhverfis hann, og tókst
þannig að hefta útbreiðslu elds-
ins, þar til slökkviliðið kom á
staðinn og réð niðurlögum hans.
Að sögn slökkviliðsmanna eru
aðstæður i eldhúsinu þannig, að
eldurinn hefði getað breiðzt mjög
hratt út og skemmdir þá orðið
miklar.
Svo fór þó ekki, vegna snar-
ræðis stúlkunnar, sem varð til
þess, að skemmdir urðu mjög litl-
ar.