Tíminn - 11.07.1975, Page 9
Föstudagur 11. júli 1975.
TÍMINN
9
30 ára
MILLILANDAFLUG
ÍSLENDINGA
30 ára
Enda þótt 30 ár séu stuttur kafli
ilifi þjóðar, er það þó ærinn timi i
þróunarsögu flugsins. Nú á 30 ára
afmæli millilandaflugs okkar Is-
lendinga nægir að bera saman
farkost, sem nýttur var til fyrstu
flugferðar frá tslandi með far-
þega, Katalina-flugvélina TF-
ISP, og þotur islenzku flugfélag-
anna, Flugfélags íslands og Loft-
leiða. Fyrsta ferðinfrá Reykjavik
til Largs, hinn 11. júli 1945, tók 6
klukkustundir. Nú tekur flug
þessa leið rúma eina og hálfa
ídukkustund. Og áfram heldur
þróunin i fluttækni. Innan
skamms verða hljóðhverfar þotur
i flugi yfir heimshöfin. Þá verður
hægt að ferðast til baka I tfman-
um. Þannig getur viljað til, að sá
sem leggur upp i ferð i dag, komi
á ákvörðunarstað i gær!
Nú þegar 30 ár eru liðin frá upp-
hafi millilandaflugs tslendinga,
eiga eflaust margir erfitt með aö
setja sig i spor þeirra, sem stóðu
að fyrsta millilandafluginu.
Heimsstyrjöldin siðari stóð enn,
þótt vopnahlé væri komið á i
Evrópu. Allar samgöngur milli
landa lutu lögmáli striðsins. A
þetta ráku þeir sig, Örn Ó. John-
son og samstarfsmenn hans hjá
Flugfélagi tslands, er þeir hófu
undirbúning fyrsta millilanda-
flugsins I ársbyrjun 1945. Eftir að
brezka stjórnin leyfði tilrauna-
flug frá tslandi til Skotlands, varð
að svara mörgum og flóknum
spumingum um áhöfn, farþega
og væntanlegan farkost. Það var
skilyrði, að Bretar yrðu með i á-
höfn flugvélarinnar. Flugfélag ts-
lands hafði haustið áður keypt
flugbát af bandariska flughern-
um. Sá hlaut einkennisstafina TF-
ISP. Þessi flugvél var innréttuð I
Reykjavik með sætum fyrir 22
farþega.
Eftir flókin bréfaskipti, samtöl
og skeytasendingar var loks svo
komið I byrjun júlimánaðar 1945,
að endanlegt leyfi til fyrsta flugs-
ins fékkst. Um það leyti voru fjór-
ir farþegar bókaðir i fyrsta milli-
landaflugið. Það voru þrir kaup-
sýslumenn, þeir Jón Jóhannes-
son, Hans Þórðarson og Jón
Einarsson, og séra Róbert Jack.
Akveðið var, að Jóhannes R.
Snorrason yrði flugstjóri, Smári
Karlsson flugmaður, Jóhann
Gislason loftskeytamaður og Sig-
uröur Ingólfsson vélamaður. Að
kröfu brezkra yfirvalda voru
tveir Bretar i áhöfninni, W.E.
Laidlaw siglingafræðingur og A.
Ogston loftskeytamaður.
Snemma morguns hinn 11. júli
voru framangreindir menn, á-
samt forstjóra Flugfélags tslands
ogallflestustarfsliði þess, staddir
við Skerjafjörð i Reykjavik.
Klukkan 7.27 hóf flugbáturinn sig
á loft og tók stefnu til suð-austurs
og hvarf i skýjabakka, þeim sem
eftir stóðu. Flugið til Skotlands
gekk vel. Fyrst var flogið I skýj-
um, en siðar I sólskini I 7000 feta
hæö. Yfir Tiree-eyju undan Skot-
landi var flughæð lækkuð 14000 fet
og siðan flogið yndir skýjum til
Largs Bay skammt frá Glasgow.
Þar lenti TF-ISP eða „GamliPét-
ur”, eins og þessi flugvél var oft
kölluð, eftir 6 klst. og 4 min. flug
frá Reykjavik. Auk hinna fjög-
urra farþega i fyrsta millilanda-
fluginu var fluttur póstpoki til
Skotlands I þessari ferð.
Vel var tekið á móti áhöfn og
farþegum i Largs. Daginn eftir,
hinn 12. júli hélt flugbáturinn TF-
ISP svo heimleiðis. Lent var á
Skerjafirðinum kl. 17:01 og var
fjölmenni saman komið til að
fagna áhöfn og farkosti. í sam-
sæti um kvöldið skýrði forstjóri
félagsins frá þvi, að i undirbún-
ingi væru tvær millilandaflug-
feröir til viðbótar þetta sumar, og
að ráðgert væri að fljúga bæði til
Skotlands og Danmerkur.
Næstu tvo millilandaflug Kata-
lina-flugbátsins TF-ISP voru far-
in frá Reykjavík seint i ágúst-
mánuði og I byrjun september. 1
fyrra flugið var lagt af stað 22.
ágúst og flogið til Largs Bay sem
fyrr. Tiu farþegar voru frá ís-
landi, og ætlaði helmingurinn til
Skotlands, en hinir til Danmerk-
ur. Akveðið var að gista I Largs
um nóttina, en halda af stað
snemma næsta dag. Hér tóku þó
veðurguðirnir i taumana. Þennan
dag var rigning og lágskýjaö yfir
Norðursjó, og það var ekki fyrr en
25. ágúst, að TF-ISP gat haldið á-
fram. Þann dag var flogið yfir
Helgoland og Kielarskurð og það-
an til Kaupmannahafnar. Aður en
lagt var upp frá Largs, sendi flug
stjórinn skeyti til islenzka sendi-
ráðsins i Kaupmannahöfn og til-
kynnti komu flugbátsins. Skeytið
hafði þó ekki enn borizt sendiráð-
inu kl. 15:40, er lent var i Kaup-
mannahöfn. Koma flugbáts frá
tslandi vakti töluverða athygli, og
var ýmislegt ritað um þetta flug i
dönsku blöðin.
Hinn 27. ágúst var haldið frá
Kaupmannahöfn til Reykjavíkur
meö 15 farþega. Lagt var af .stað
frá Kaupmannahöfn kl. 07:40 að
morgni og lent i Reykjavík kl.
21:20. Þar með var fyrsti far-
þegahópurinn i millilandaflugi
kominn til íslands, og jafnframt
fyrsta farþegaflug milli íslands
og Norðurlanda orðið að veru-
leika.
Þriðju flugferðina fór svo TF-
ISP til Skotlands og Danmerkur I
september. Alls urðu farþegar
Flugfélagsins milli landa 56 þetta
sumar. Þegar halda skyldi frá
Kaupmannahöfn i siðari ferðinni
þangað, urðu áhöfn og farþegar
fyrir töfum. Ástæðan var undir-
alda á Eyrarsundi, sem torveld-
aði flugtak.
Um áramót 1945/46 samdi
Flugfélag tslands við Scottish
Airlines um leigu á tveim Libera-
tor-flugvélum til reglubundins
millilandaflugs. Það hófst I mai
1946. Þetta fyrirkomulag hélzt I
tvö ár, unz félagið eignaðist eigin
Skymaster-flugvél, „Gullfaxa”,
tveim árum siðar.
Loftleiðamenn sátu ekki heldur
með hendur I skauti hvað milli-
landaflug áhrærði á þessum tim-
um. Hinn 15. júni 1947 kom fyrsta
Skymaster-flugvél okkar tslend-
inga, „Hekla”, til Reykjavíkur.
Flugvélin fór sitt fyrsta milli-
landaflug með farþega og póst til
Kaupmannahafnar hinn 17. júni.
Máltækið segir, að oft sé mjór
mikils visir. Segja má, að það
hafi sannazt á flugmálum okkar
tslendinga. Sá þáttur i sam-
göngusögu þjóðarinnar, sem
hófst 11. júli 1945, hefur vaxið og
dafnað örar en nokkurn gat grun-
að. Samtimis hófst einnig annar
þáttur og ekki ómerkari: nýr
þáttur i atvinnusögu landsmanna.
Nú starfa hátt á annað þúsund
Flugbátur Flugfélags tslands, TF-ISP fórþrjár feröir til útianda sumariö 1945 og flutti samtals 56 fár-
þega og póst milli landa. Hér er þessi fyrsta „millilandaflugvél” Islendinga I erlendri flugbátahöfn.
A höfn TF-ISP I fyrsta fluginu til Kaupmannahafnar taliö frá hægri:
Jóhannes R. Snorrason, flugstjóri, Siguröur Ingólfsson, vélamaöur,
Jóhann Gislason, loftskeytamaöur, Magnús Guömundsson, aöstoöar-
flugmaöur.
Sama áhöfn var i fyrsta fluginu til Skotlands aö ööru leyti en þvi aö þá
var Smári Karlsson aöstoöarflugmaöur.
manns við flugið, og þar að auki
er fjöldi fólks tengdur þvi að ein-
hverju leyti. Gjaldeyristekjur af
starfsemi Islenzku áætlunarflug-
félaganna nema á siðari árum
miklum fjárhæðum, og slðast en
ekki slzt, hefur millilandaflug Is-
lenzku flugfélaganna tryggt okk-
ur tslendingum forræði I sam-
göngumálum landsins við um-
heiminn.
(Frá Kynningardeild
Flugleiða h.f.)
KVERNELANDS
Heykvíslar
til tenginga á ámoksturstæki
og þrítengi dráttarvéla.
Tæki, sem allir bændur þekkja.
Verð kr. 61.000.—
Til afgreiðslu nú þegar
Nánari upplýsingar hjá sölumanni
G/obusp
LÁGMÚLI 5, SÍMI 81555