Tíminn - 26.07.1975, Síða 1
mmm
Landvélar hf
167. tbl. — Laugardagur 26. júlí 1975 — 59. árgangur
Erlent lán til
smíði vöruhafn-
ar á Akureyri?
ASK-Akureyri. Allt að 50
milljónir vantar til að fram-
kvæmdir geti hafizt við rekstur
og stögun stálþils við vöruhöfn-
ina á Oddeyrartanga og þils hjá
Slippstöðinni h/f, en efnið er
þegar komið til bæjarins. I at-
hugun er að taka erlend lán til
framkvæmdanna, en að sögn
Stefáns -Reykjallns eru góðar
horfur á að slik lán fáist.
Hér er um að ræða 145 metra
langt þil við Slippstöðina og 120
metra langan viðlegukant á
Oddeyrinni. Lánið verður Akur-
eyrarbær að fá til að standa við
sinn hluta af tveggja ára áætl-
un, er gerð var um hafnarmál á
Akureyri. Fáist lánið, munu
framkvæmdir hefjast i haust og
Eimskipafélag Islands getur
lokið byggingu vöruskála á
Oddeyri, en hann hefur tafizt I
nokkur ár vegna skipulags-
breytinga og jarðsigs á hafnar-
svæðinu.
ÍSLENDINGUR
■n
HANNAR LAMPA
o
Á HEIAASAAARKAÐ
NÝLEGA var gerður samningur
milli Jóhannesar Pálssonar,
plastframleiðanda og uppfinning-
armanns og Henning Jensen, eig-
anda Belysningsagenturet A/S i
Kaupmannahöfn um framleiðslu
á nýrri gerð af handlampa
(vinnuljósi) sem Jóhannes hefur
hannað.
Handlampanná að framleiða að
hluta til á Islandi hjá nýstofnuðu
FLEIRI LYF EFTIR-
RITUNARSKYLD HÉR
EN ANNARS STAÐAR
— VALIUM OG SKYLD LYF EKKI
EFTIRRITUNARSKYLD EN ÚTGÁFA
ÞEIRRA KÖNNUÐ MEÐ
SKYNDIRANNSÓKNUM VIÐ OG VIÐ
fyrirtæki, sem heitir Bjallaplast,
Hvolsvelli og að hluta til i Dan-
mörku. Henning Jensen mun sjá
um sölu lampans á erlendum
mörkuðum; en Jóhannes Pálsson
hér. Gert er ráð fyrir að fram-
leiða 200 þús. lampa á ári og þar
af seljist í Danmörku ca. 50.000 en
það sem þá sé eftir verði flutt út.
Væntanlega seljast 3—4000 lamp-
ar á íslandi á ári. Framleiðslu-
verðmæti 200 þús. lampahluta
sem framleiddir verða á íslandi
nema ca. 28 millj. króna og veitir
5 manns atvinnu.
Jóhannes byrjaði að hanna
lampann fyrir 2 árum og hafði þá
samband við Útflutningsmiðstöð-
ina jafnframt þvi að hann reyndi
fyrir sér i Noregi. Skriður komst
á málið fyrir 9 mánuðum, er Út-
flutningsmiðstöð iðnaðarins náði
sambandi við Henning Jensen i
gegnum umboðsmann Glits i
Danmörku, Agnar Samuelsson,
en Glit hefur selt þessum danska
aðila keramiklampa.
Danska rafmagnseftirlitið hef-
ur skoðaö frumgerðir af lampan-
um og samþykkt hann fyrir sitt
leyti.
Gsal —Reykjavik — Eitt af þeim
lyfjum sem eiturlyfjasjúklingar
sækjast mest eftir heitir valium,
og einnig eru Iyf skyld því vinsæi
meðal eiturlyfjasjúklinga. Vali-
um og skyld lyf eru ekki eftirrit-
unarskyld, og því fara útgefnir
lyfseðlar á þau lyf ekki I gegnum
eftirlit lyfjamáladeildar heil-
brigðisráðuneytisins. Ekki er þó
hægt að halda þvl fram að útgáfa
á þessi lyf sé eftirlitsiaus, þvl að
sögn Almars Grimssonar deildar-
stjóra i heilbrigðisráðuneytinu
eru þessi lyf sérstaklega athuguð
I könnunum þeim, sem lyfja-
máladeildin framkvæmir um
lyfjanotkun, —ogsagði Almar, að
i slðustu könnun hefði m.a. komið
I ljós, að I 10—20 tilvik-
um hefði verið taiið, að
um óeðliiega mikið magn
hefði verið að ræða. Sagði Almar(
að landlæknir hefði gert viðeig-
andi ráðstafanir, hvað þá lækna
áhrærði, sem átt hefðu I hlut.
Greint hefur verið frá lyfjakönn-
unum heilbrigðisráðuneytisins i
Timanum.
— Mönnum hefur vaxið mjög i
augum að gera fleiri lyf eftirrit-
unarskyld en nú eru, og það má
minna á, að hér á landi eru fleiri
iyf eftirritunarskyld en þekkist
annars staðar sagði Almar. — 15
febr. 1974 voru settar reglur um
bað, hversu miklu magni læknar
máttu ávisa af valium á hverjum
íyfseðli, og var þessi ráðstöfun
m.a. gerð i þvi augnamiði að
hamla á móti notkun lyfsins.
— Hefur ekki komið til álita,
hvort eigi að gera valium og skyld
lyf eftirritunarskyld til að koma i
veg fyrir hugsanlega misnotkun?
— Já, ég ber ekki á móti þvi, að
hættaer fyrirhendi, en til þess að
mæta þessari hættu á einhvern
hátt, höfum við gert þessar
kannanir á lyfjanotkun. Þær
spanna að visu einungis lyfja-
ávisanir i einn mánuð, en þvi er
hins vegar haldið algjörlega
leyndu, hvenær þessár kannanir
eru i gangi.
Ein skýringin á þvi, hvers
vegna valium og skyld lyf eru ekki
eftirritunarskyld, er sú, að fjöl-
margir sjúklingar þurfa á lyfjun-
um að halda. „Langflestir sjúkl-
ingar sem fá valium neyta þess
eins og þeim er fyrirskipað’,
sagði Almar.
Viö inntum Almar eftir þvi,
hvort brögð væru að þvi, að fólk
reyndi að falsa lyfseðla, og sagði
Almar að þeir I heilbrigðisráðu-
neytinu yrðu ekki mikið varir við
slikt, en það kæmi þó fyrir. „Það
er mjög erfitt að falsa lyfseðil
þannig, að það sjáist ekki, — og
við höfum hreinlega ætlazt til
þess af starfsfólki apótekanna að
kallað sé á lögregluna i þeim til-
vikum, enda er skjalafals bein-
llnis lögreglumál”, sagði Almar.
Um lyfjaeftirlitið almennt
sagði Almar, að það hefði tekið
stórstigum framförum á undan-
förnum árum og hefði aldrei verið
betra en nú. „Ég get ekki fallizt á
skoðun blaðamanns Timans, að
eftirlitið sé ekki virkt, þvi að ég
tel að það sé virkt. Hins vegar má
gagnrýna það opinberlega, að það
sé ekki nægilega gott, og það má
alltaf bæta sig”, sagði Almar
Grímsson að lokum.
íbúar við Grettis-
götu:
Við neyðumst
til að selja
íbúðirnar, ef
vínveitinga-
leyfið verður
endurnýjað
--------- o
ISSKEMMUR
JJL.
Í
HF HÖRÐUR GUNNARSSON
ákULATUNI C - SÍMI (91)1946
ISINN
HREKUR
AÐ
LANDINU
Norðmenn
rannsaka
hrefnu-
veiðar
norskra
báta
fyr-
ir Norður-
landi
gébé Rvik— Norðmenn hafa
nú hafið rannsókn á ferðum
norskra hrefnubáta við
Norðurland, en nýlega var
skýrt frá þvf i Tímanum, að
grunur léki á ólöglegum
hrefnuveiðum norsku bát-
anna, og þar á meðal sagt frá
norskum báti sem kom til
ólafsfjarðar með hrefnukjöt
á þilfari, og beinagrindum af
hrefnu, sem fundizt höfðu, og
talið útilokað,að gætu verið
frá islenzkum bátum.
Fiskveiðistjóri Noregs
hefur fyrirskipað rannsókn
vegna fréttar þessarar, sem
birtust i Timanum. íslenzka
sjávarútvegsráðuneytið
hefur beðið Norðmenn um að
fá að fylgjast með rannsókn-
inni og fá niðurstöður hennar
þegar þær liggja fyrir.
BYGGINGARSAMVINNUFÉLAG
KÓPAVOGS REISIR FIMM
HÁHÝSI MEÐ 230 ÍBÚÐUM
HHJ-Rvlk — Byggingarsam-
vinnufélagi Kópavogs hefur verið
úthlutað lóðum undir fimm há-
hýsi með samtals um 230 Ibúðúm
á Digraneshálsi. Hafizt verður
handa í haust, og er áætlað aö
smiði allra húsanna verði lokið á
5—7 árum. Beitt verður nýjustu
tækni og allt staðlaö eftir þvi sem
unnter.til þess, að verð ibúðanna
verði eins lágt og frekast er kost-
ur. Félagið hefur áður reist um 70
ibúðir i fjölbýlishúsum auk rað-
húsa — og nú eru 90 ibúðir I fjöl-
býlishúsum i smiðum á vegum fé-
lagsins. A myndinni sést fjöl-
býlishús, sem Byggingarsam-
vinnufélag Kópavogs er að reisa
við Furugrund.
1 grein á bls. 9 I blaðinu i dag
fjallar Magnús Bjarnfreðssbn
bæjarfulltrúi um lóðaúthlutanir i
Kópavogi.