Fréttablaðið - 10.06.2005, Page 10

Fréttablaðið - 10.06.2005, Page 10
10. júní 2005 FÖSTUDAGUR Verkefnisstjórn um heilsufar kvenna: Úrbætur gegn heimilisofbeldi HEILBRIGÐISMÁL Verkefnisstjórn um heilsufar kvenna hefur verið falið að athuga sérstaklega nokkra þætti er varða heilbrigð- isþjónustu við konur sem eru fórnarlömb heimilisofbeldis, og vinna að úrbótum. Í bréfi Jóns Kristjánssonar, heilbrigðisráðherra, til Jónínu Bjartmarz, alþingismanns og formanns verkefnisstjórnar, segir að í fyrsta lagi feli ráð- herra verkefnisstjórninni að skoða leiðir til að auka fræðslu til heilbrigðisstétta á þessu sviði í samráði við forsvarsmenn heil- brigðisstétta og heilbrigðis- stofnana. Í öðru lagi að skoða leiðir til að bæta skráningu upp- lýsinga um heimilisofbeldi í sjúkraskrár. Í þriðja lagi feli ráðherra hópnum að kanna hvort gerð klínískra leiðbein- inga sé æskileg leið til að styðja við starfsfólk í heilbrigðisþjón- ustu sem í starfi sínu þurfi að fást við erfið mál af þessu tagi, efla þekkingu fagfólks og al- mennings og bæta þannig þjón- ustu og stuðning við þolendur heimilisofbeldis. -jss NEYTENDAMÁL „Salan á mjólkuraf- urðunum hefur verið það mikil upp á síðkastið að við fylgjumst vel með framleiðslunni og erum tilbúnir með aðgerðir, að senda kúbændum bréf ef framleiðslan dregst saman,“ segir Snorri Sig- urðsson framkvæmdastjóri Landsambands kúabænda. Kvótaárinu í mjólkurfram- leiðslu lýkur í ágúst og því fylgj- ast mjólkurframleiðendur vel með framleiðslunni síðustu mánuði kvótaársins til að fram- leiðsla fari ekki yfir kvóta. Það er hins vegar ekki svo að mjólk- urskortur sé yfirvofandi segir Snorri. „Á síðustu 12 mánuðum hefur sala á skyrdrykkjum gert það að verkum að sala mjólkur hefur aukist verulega og eins hafa ost- arnir verið vinsælir og þetta gerir það að verkum að fram- leiðslan þarf að aukast.“ segir Snorri. Snorri segir að einnig sé far- ið að horfa í auknum mæli til út- landa með markvissan útflutn- ing á skyri í huga. ■ Spyr hvort flytja eigi Bílddælinga til Kína Kristinn H. Gunnarsson segir Framsóknarflokkurinn hafa fylgt fleirri stefnu a› n‡ta náttúruau›lindir heima í héra›i. Hann er ósammála formanni flokksins um a› ekki megi flytja kvóta til sjávarbygg›a. ATVINNUMÁL Kristinn H. Gunnars- son, þingmaður Framsóknar- flokksins, stendur fast við þá skoðun að flytja beri aflaheim- ildir til sjávarbyggða sem ekki njóta annarra auðlinda. Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokks- ins, kvaðst í Fréttablaðinu síð- astliðinn þriðjudag ekki sjá hvernig útfæra ætti hugmyndir Kristins um flutning á 20 þús- und tonna kvóta til sjávar- byggða sem standa höllum fæti. „Ég held að það fari nærri lagi að við Halldór Ásgrímsson séum gersamlega á öndverðum meiði. Ég spyr: Er það eðlilegt að allur kvóti fari frá Stöðvar- firði til Dalvíkur? Fari frá Rauf- arhöfn til Akureyrar? Frá Bol- ungarvík til Grindavíkur? Frá Ísafirði til Akureyrar? Er það eitthvert lögmál í kerfinu sem má ekki hrófla við? Er það eitt- hvað sem menn taka bakföll yfir ef gerðar eru breytingar sem miða að því að kvóti og atvinna geti verið í þessum byggðarlög- um áfram? Kvótakerfið er mannanna verk og með mann- anna verkum er hægt að breyta því,“ segir Kristinn. Hann bendir á að það hafi verið stefna Framsóknarflokks- ins og ríkisstjórnarinnar í tíu ár að standa með opinberum að- gerðum fyrir atvinnuuppbygg- ingu sem grundvallast á því að nýta náttúruauðlindir heima í héraði. „Þannig hafa menn til dæmis ákveðið að nýta orkuna í fallvötnunum og lagt mikið á sig til þess að koma hlutunum í gang á Austurlandi og snúa íbúaþróuninni við. Og það hefur tekist. Það eru nokkur svæði sem hafa orðið útundan í þess- um efnum, fyrst og fremst sjáv- arbyggðir. Ég segi: Það á að nýta auðlind þeirra, sem er fiskimið- in undan landi, til atvinnuupp- byggingar á þeirra svæði. Það á að ríkja sama stefna þar og er annars staðar á landinu þótt auðlindin sé önnur. Og ef menn vilja ekki breyta fiskveiði- stjórnunarkerfinu til að gera það mögulegt spyr ég: Hvaða at- vinnuuppbyggingu ætlar ríkis- stjórnin að beita sér fyrir á þessum stöðum á landinu? Störf- in eru að fara úr landi. Störfin eru að leggjast niður vegna þenslu og hágengis krónunnar. Fólk er að missa vinnuna. Og hvað ætlar ríkisstjórnin að bjóða upp á fyrir þetta fólk. Á það að flytja til Kína?“ spyr Kristinn H. Gunnarsson. johannh@frettabladid.is JÓNÍNA BJARTMARZ Formaður verkefnisstjórnar um heilsufar kvenna. KRISTINN H. GUNNARSSON, ÞINGMAÐUR FRAMSÓKNARFLOKKSINS Allir ættu að njóta auðlinda sinna, líka sjávarbyggðir með gjöful fiskimið skammt undan landi. MJÓLKURAFURÐIR Mikil aukning hefur verið á neyslu mjólkurafurða upp á síðkastið. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Neysla mjólkurafurða hefur aukist verulega: Bændur tilbúnir me› a›ger›ir

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.