Fréttablaðið - 10.06.2005, Page 18

Fréttablaðið - 10.06.2005, Page 18
18 10. júní 2005 FÖSTUDAGUR Afmælishátí› í Öskjuhlí› Fuglavinir óttast um ófleyga unga: Haldi› köttunum inni Öskjuhlíðarskóli hélt upp á 30 ára starfsafmæli í gær. Nemendur og starfs- fólk skólans gerðu sér glaðan dag og fóru í skrúðgöngu upp í Lundar- skóg sem er grenndar- skógur skólans. Mikil gleði ríkti meðal nemenda Öskjuhlíðarskóla þegar þrjátíu ára starfsafmæli skólans var fagnað með eftirminnilegum hætti. Ekki spillti fyrir að þetta var síðasti skóladagur fyrir sumarfrí. Skemmtanahald var á leikvelli skólans með hoppikastala og skemmtiatriðum. Börnin hlustuðu andaktug á idolstjörnuna Hildi Völu sem söng nokkra ljúfa tóna. Kókómjólkurkisinn læddist um skólavöllinn og nokkrir vaskir drengir sýndu vel æfðan breik- dans sem vakti mikla lukku. Að loknum skemmtiatriðum var haldið af stað í stutta skrúð- göngu inn í Lundarskóg sem er grenndarskógur Öskjuhlíðarskóla og vinsæll til lautarferða. Í lund- inum var foreldrum, nemendum, systkinum og starfsfólki boðið upp á pylsur af grillinu sem allir gæddu sér á af bestu list. Þó Öskjuhlíðarskóli hafi starf- að í 30 ár er saga hans mun lengri. Mikið starf hefur verið unnið allt frá árinu 1961 þegar Höfðaskóli var settur á stofn í Sigtúni. Á þeim grunni sem lagð- ur var með starfinu í Höfðaskóla byggist starfsemi Öskjuhlíðar- skóla, en það voru nemendur Höfðaskóla ásamt kennurum sem fluttu í hið nýja húsnæði haustið 1975 ásamt nemendum Skóla fjölfatlaðra. ■ Nú þegar fuglsungar skríða úr eggjum sínum, ýmist hálf- eða ófleygir, hýrnar yfir köttum sem hugsa sér gott til glóðarinnar. Fuglavinum er því mikið í mun að kattaeigendur hafi hemil á dýrum sínum og haldi þeim inni eins og kostur er. „Við hvetjum fólk til að halda köttum sínum inni, sérstaklega yfir nóttina því það er þá sem þeir veiða mest,“ segir Arnór Þ. Sig- fússon formaður Dýraverndar- ráðs. Hann segir ekki liggja ljóst fyrir hvort ágangur katta hafi áhrif á stærðir fuglastofna en ef- ast ekki um hæfni þeirra til að drepa. „Kettir eru gríðarlega öfl- ug rándýr og það er í eðli þeirra að drepa sér til matar þó þeir þurfi þess ekki.“ Og ekki er nóg með að blessað- ir ungarnir séu í hættu því kettir eru líka fullfærir um að drepa fullvaxna fugla. „Þeir drepa rjúp- ur,“ segir Arnór, „og ég hef séð ketti ráðast á endur við Tjörnina.“ Eina ráðið gegn árásum katta á fugla er að halda þeim innan dyra; bjöllur í hálsólum geta gert gagn en þó ekki nægt. „Bjöllur koma alls ekki í veg fyrir að kettir geti veitt því fuglar eru ekkert sér- staklega hræddir við bjöllur og að auki eru margir kettir það snjallir að þeir geta læðst án þess að það heyrist í bjöllunni,“ segir Arnór formaður Dýraverndarráðs sem tekur skírt fram að honum sé ekki illa við ketti. „Mér er hins vegar illa við óábyrgt kattahald. Kettir eru hin ágætustu dýr og þetta er alls ekki þeim að kenna. Eigendur þeirra verða að sýna meiri ábyrgð.“ bjorn@frettabladid.is „Einhvern veginn fyndist manni eðlileg- ast að Vilhjálmur yrði áfram,“ segir Lísa Pálsdóttir útvarpskona um næsta leið- toga sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Margir eru nefndir sem mögulegt leið- togaefni í fyrirhuguðu prófkjöri flokksins í Reykjavík í haust. Vilhjálmur er oddviti borgarstjórnar- flokksins og vill vera það áfram. Líklegt er að Gísli Marteinn Baldursson fari fram á móti honum en einnig hafa verið nefndir Júlíus Vífill Ingvarsson og Guð- laugur Þór Þórðarson. Lísu finnst æskudýrkunin of mikil, Vil- hjálmur hafi verið í þessu í mörg ár og staðið sig ágætlega. Hún giskar á að bar- áttan muni standa milli Vilhjálms og Gísla Marteins og sér engan annan fyrir sér í baráttunni. „Í svona flokki flykkjast menn um einhverja tvo,“ segir Lísa, sem finnst erfitt að taka mark á Gísla Marteini sem leiðtogaefni þar sem hann sé krakkalegur og finnist allt æðislegt og frábært. LÍSA PÁLSDÓTTIR ÚTVARPSKONA Erfitt a› taka mark á Gísla Marteini LEIÐTOGAEFNI D-LISTA SJÓNARHÓLL Það er margt spennandi að gerast í tónlistarlífi Harðar Áskelssonar organista og stjórnanda Mótettukórs Hallgrímskirkju. Í næstu viku heldur hann til Finnlands og spilar á þremur orgeltónleikum og verða aðaltónleikarnir í dómkirkjunni í Tampere. Hörður ætlar að spila blandaða tónlist bæði eldri barrokkverk og íslenska tónlist. „Ég fer aldrei utan nema spila eitthvað íslenskt,“ segir Hörður en Bach er þó aldrei langt undan hjá honum. Þá stendur Hörður í miklum undirbúningi fyrir kirkjulistahátíð sem haldin verður í ágúst. „Sumarfríið verður því stutt bæði hjá mér og kórfélögunum,“ segir Hörður sem ætlar þó að vera í fríi í júlí. Hann er með veiðidellu og fer obbi sumarfrísins í að standa úti í á að sveifla veiðistöng. Hann byrjar á að fara til Grænlands í sjó- bleikju. Hörður er spenntur fyrir því enda hefur hann aldrei komið til Grænlands áður. Þá fer hann í veiði í Laxárdal eins og hann gerir á hverju ári og í laxveiði á Norðausturlandi. Þá ætlar hann, á miðri kirkjulistahátíð, að bjóða einsöngvurunum Mattheusar pass- íunnar að veiða hálfan dag í Elliðaánum í Reykjavík. En áður en Hörður getur slakað á í ánum í júlí þarf hann að halda fimm tónleika og því nóg við að vera. Vei›ir sjóbleikju á Grænlandi HVAÐ ER AÐ FRÉTTA: HÖRÐUR ÁSKELSSON ORGANISTI nær og fjær „En ástin á sér skugga- hli›ar á langri lei› a› settu marki. Bolli í Sautján leitar hennar eftir skilna› vi› Svövu sína og hefur ekki alltaf erindi sem erfi›i.“ EIRÍKUR JÓNSSON BLAÐAMAÐUR UM LJÓNIN Á VEGI AMORS Í HÉR&NÚ. „Osturinn er lúmskur og flá er ég a› tala um allar ger›ir af ostum alveg frá kotasælu og í vel geymdan flroska›- an ost.“ HALLDÓRA RUT BJARNADÓTTIR SJÓN- VARPSKONA UM OST Í FRÉTTABLAÐ- INU. OR‹RÉTT„ “ Ástarsamband prests og kennara að leggja Landakots- skóla í rúst Rifrildi foreldra og skólastjórnar má rekja til staðgengils biskups Bæjarstjórar á höfuð- borgarsvæðinu: Gunnar, Gunnar og Gunnar Lengi vel var Gunnar Valur Gísla- son, bæjarstjóri á Álftanesi, eini bæjarstjórinn á höfuðborgar- svæðinu sem hét Gunnar. Það hef- ur aldeilis breyst á stuttum tíma, því nú hafa tveir bæst til viðbótar. F y r i r skemmstu tók Gunnar Einars- son við stjórnar- taumunum í Garðabæ af Ás- dísi Höllu Bragadóttur og í síðustu viku settist Gunnar I. Birgisson í stól bæjarstjóra í Kópavogi. Eftir því sem næst verður komist er þetta í fysta sinn sem menn að nafni Gunnar eru hæst- ráðendur í þremur nágranna- sveitafélögum á höfuðborgar- svæðinu, að minnsta kosti sunnan við Fossvoginn. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði heitir Lúðvík. -bs ARNÓR Þ. SIGFÚSSON „Kettir eru gríðarlega öflug rándýr og það er í eðli þeirra að drepa sér til matar þó þeir þurfi þess ekki.“ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H EI Ð A SKRÚÐGANGA Berglind fánaberi fer fyrir fríðum flokki nemenda, starfsfólks og foreldra sem gengu undir lúðrablæstri upp í Lundarskóg til að gæða sér á pylsum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H EI Ð A H EL G AD Ó TT IR FÉLAGAR Þeir Björgvin, Danni og Ólafur skemmtu sér hið besta á afmælisdegi skólans. HILDUR VALA Söngur idolstjörnunnar heillaði krakkana og margir sungu með.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.