Fréttablaðið - 10.06.2005, Blaðsíða 27
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 6
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Góðan dag!
Í dag er föstudagur 10. júní,
161. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 3.03 13.27 23.53
AKUREYRI 1.59 13.12 00.29
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Ásta Þ. Vilhjálmsdóttir hefur alltaf
haft gaman af matargerð og var strax
sem unglingsstúlka farin að prófa sig
áfram með alls konar rétti. Henni
finnst kjöt heldur ofmetið í elda-
mennsku Íslendinga.
„Það kom oft fyrir þegar ég og vinkonur mín-
ar vorum á ferð í útlöndum að við fórum á
matsölustaði og prófuðum eitthvað skrítið og
óvenjulegt. Ég eldaði það svo þegar við kom-
um heim og þurfti engar uppskriftir. Ég nota
reyndar aldrei uppskriftir,“ segir hún hlæj-
andi. „Þetta snýst um tilfinningu.“
Ásta var dugleg að fara á alls kyns mat-
reiðslunámskeið fram eftir aldri, og eldaði að
sjálfsögðu daglega þegar hún var með börnin
heima. Nú er hún gift portúgölskum manni
sem hefur sjálfur gaman af að elda og ekki
síst grilla. „Ég er frekar vondur grillari,“ seg-
ir hún hlæjandi „en eiginmaðurinn bætir það
upp.“
Hún segir hann vissulega hafa innleitt
portúgalska matarsiði í fjölskylduna, ekki síst
sé kryddið piri piri mikið notað, en tengda-
mamma hennar sendir þeim það sérblandað
frá Portúgal. „Piri piriið sem fæst hér heima
er ekki alvöru,“ segir Ásta.
„Ég sé hins vegar um matargerð á stór-
hátíðum og ef eitthvað sérstakt stendur til, og
mér finnst ógurlega gaman að búa til tertur.“
Nú hneigist Ásta til að nota sem mest af
grænmeti sem uppistöðu í alla rétti. „Ég er
ekki grænmetisæta í þeim skilningi, en mér
finnst fólk leggja allt of mikið upp úr kjöti í
eldamennsku. Það sem við köllum meðlæti
mætti að ósekju vera aðalatriði og svo er í
góðu lagi að bæta örlitlu kjöti við.“
Ásta er nýkomin heim úr skemmtilegri
helgarferð með stórum hópi kvenna þar sem
hún sá um matseldina. „Þar bauð ég upp á ein-
faldan kjúklingarétt með grænmeti sem féll í
góðan jarðveg. Ég ætla að gefa uppskrift að
þeim rétti.“
Þess má geta að kjúklingarétturinn hennar
Ástu er fáanlegur á Kaffi Kósý í Austurstræti.
Uppskrift Ástu er á bls. 3
edda@frettabladid.is
Meðlætið mætti
vera aðalatriðið
tilbod@frettabladid.is
Dömufatnaður af ýmsum
gerðum er á 40-60% afslætti í
versluninni Friendtex í Síðu-
múla 13. Sem dæmi um
verð má nefna kjól
með blúndu sem áður
kostaði 7.100 en fæst
nú á 3.900, kvartbux-
ur sem voru á 5.700
en nú á 2.900 og
síðar skyrtur sem
áður voru á 6.200
en eru nú á 3.800.
Þetta er ekta sum-
arfatnaður sem
kemur sér vel nú
þegar er að
hlýna í veðri hér
á landi.
Ralph Lauren-gallabuxur í
samnefndri verslun í Smára-
lindinni eru seldar á 25% af-
slætti fram á sunnudag. Þetta
gildir bæði um herra- og
dömugallabuxur af öllum þeim
gerðum sem fyrirfinnast í búð-
inni, en það eru fimm mismun-
andi herrasnið og sjö misum-
andi dömusnið. Algengasta
verð á buxunum fyrir lækkun
var 11.900 og nú lækkar það
um 3.000, niður í
8.900.
Safnkassar,
kantskerar og
skóflur eru meðal
þess sem Byko
býður þessa dag-
ana á lækkuðu
verði í tilefni þess
að fólk er farið að
bjástra í görðun-
um sínum og gera
fínt í kringum sig.
Safnkassi sem áður
kostaði 11.598 er
nú seldur á 7.990 og skóflurnar
og kantskerarnir eru á 20-25%
afslætti. Bykó er líka með 25%
afslátt af viðarvörn og útimáln-
ingu. Þá má ekki gleyma fugla-
húsunum sem fást í Byko á
590 krónur og bókstaflega
biðja fuglana að búa í sér.
Ásta er listakokkur en segist eiga erfitt með að gefa uppskriftir því allt byggist þetta á tilfinningu.
LIGGUR Í LOFTINU
í tilboðum
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA BRÚÐKAUP FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl.
KRÍLIN
Það heitir „sjálf-
stjórn“ að eiga
konfektkassa og
borða bara einn
mola í einu!
Flísar og vaskar á tilboði
BLS. 5
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 OG Á visir.is
ÞÚ GETUR PANTAÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
Á visir.is