Fréttablaðið - 10.06.2005, Síða 34
2 ■■■ { Grill }■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Lamb er sennilega eitt vinsælasta
kjötið á grillið og eitthvað sem
flestum líkar, enda bragðgott kjöt
sem einfalt er að grilla. Hvort sem
grilla á lundir, kótilettur eða heilt
lamb þá er gott að ákveða fyrirfram
hvernig á að krydda kjötið. Með
góðum fyrirvara er hægt að búa til
ljúffenga maríneringu til að leggja
kjötið í nokkrum klukkustundum
fyrir grillið eða yfir nótt.
Maggi og Villi hjá Mangó grilli eru
sannkallaðir grillkóngar og alla
jafnan grilla þeir lamb nokkrum
sinnum í viku, enda með risastórt
útigrill utan við veitingastað sinn.
Hérna gefa þeir góða uppskrift að
lambi með meðlæti sem allir ættu
að geta fylgt.
Grill að hætti Mangó grills
Uppskrift fyrir 4
800 gr lambainnanlærisvöðvi
látinn liggja í maríneringu í 4
klst.
Mangó marínering
2 bollar grill blazing bbq sósa
1/2 bolli Jack Daniels viskí
1/2 tsk svartur pipar
2 tsk Worchestershire-sósa
1 tsk tabasc-sósa (rauð)
1/2 tsk sítrónusafi
Salat
Tilbúið blandað sumarsalat
1 1/2 bolli ítölsk dressing
1/2 bolli grill blazin bbq sósa
ítölsk dressing og bbq sósa
ítölsk dressing og bbq sósa
Öllu blandað vel saman og salatið
sett saman við.
Bakaðar kartöflur settar á grillið í
45 mínútur á undan kjötinu.
Maggi og Villi segja að þessi upp-
skrift geti einnig gengið með kjúk-
lingi, nauta- eða svínakjöti, en
nauðsynlegt sé að borða Dorritos-
flögur með sætum chili pipar með
þessum mat.
Sjóðheitt lamb í mangó
Maríneraður lambavöðvi með salati og kartöflum að hætti Magga og Villa.
Grillað lamb með kartöflugratíni og salati.
Það er hægt að grilla flest og þar sem
margir vilja prófa eitthvað nýtt í stað-
inn fyrir sömu kóteletturnar ár eftir ár
er alltaf gaman þegar nýjar uppskriftir
verða á vegi manns. Ekki síst ef það er
heil bók, full af góðgæti á pappír sem
bíður þess að stökkva albúið fram á
veisluborðið þitt.
Bókin Gott á grillið kom út hjá Vöku-
Helgafelli fyrir skömmu og er einmitt
svona bók. Þar er bæði að finna alls
kyns uppskriftir og ýmsan fróðleik um
grill og grillun sem flestum mun koma
að góðu gagni.
Hér eru tvær uppskriftir, birtar með
góðfúslegu leyfi höfundarins, Margrét-
ar Þóru Þorláksdóttur.
Taílensk kjúklingaspjót
4 kjúklingabringur, skornar í 3
ræmur
1 vorlaukur í þunnum sneiðum
1 rautt chili, fræhreinsað og smátt
saxað
1 msk grófsaxað kóríander
1 msk grófsöxuð mynta
Marinering
1 rautt chili, fræhreinsað og smátt
saxað
2 marin hvítlauksrif
1 msk. smátt saxað engifer
4 msk. hunang
2 msk. sojasósa
4 msk. límónusafi
Blandið saman öllu sem á að fara í
marineringuna. Geymið fjórar mat-
skeiðar af henni. Mar-
inerið kjúklingabring-
urnar í a.m.k. tvær
klukkustundir. Þræðið
kjötið upp á spjót og
grillið beint á meðalheitu
grilli í 8-10 mínútur, snú-
ið einu sinni á meðan.
Leggið spjótin á fat og
dreifið afganginum af mar-
ineringunni, vorlauk, chili, engifer og
kóríander yfir. Berið fram með hrís-
grjónum.
Og svo einn indælis eftirréttur:
Grillaðir bananar með stökkri kara-
mellu
4 bananar
5 msk. sykur
2 msk. kókosmjöl
1 appelsína, börkur og safi
1 peli rjómi
2 msk. appelsínulíkjör
Setjið 4 msk. af sykrinum í lítinn pott
með 1 msk. af köldu vatni. Látið suð-
una koma mjög hægt upp og látið
malla í 6-8 mínútur eða þar til sykur-
inn er orðinn gullinn. Takið pottinn af
hitanum og blandið kókosmjöli og app-
elsínuberki saman við. Hellið kara-
mellublöndunni á bökunarpappír og
látið kólna og stífna vel.
Brjótið karamelluna síðan niður í styk-
ki og myljið þau í matvinnsluvél.
Þeytið rjómann með líkjörnum og af-
ganginum af sykrinum. Geymið í kæli
þar til eftirrétturinn er borinn fram.
Skerið bananana í
tvennt og penslið sárið
með appelsínusafa.
Skiptið karamellumauk-
inu á milli banana-
helminganna. Grillið,
með hýðið niður, beint
ofan á meðalheitu grilli
í 5 mínútur eða þar til
karamellan hefur
bráðnað og er orðin
gullin. Berið fram með
þeytta rjómanaum og rífið smávegis
appelsínubörk yfir til að skreyta.
Kartöflusneiðar með steikinni
Það er hægt að flýta fyrir sér með því að nota forsoðnar
kartöflur með grillmatnum.
Forsoðnar og kryddaðar kartöflu-
sneiðar eru seldar í álbakka sem er
hægt að skella beint á grillið og
snúa kartöflunum einu sinni. Það
má líka hafa grillið lokað á meðan
kartöflurnar grillast og sleppa að
snúa þeim. Kartöflusneiðarnar
henta vel með grillmat og hægt er
að bera þær fram sem hollt meðlæti
með hamborgurum í staðinn fyrir
franskar. Kaldar ídýfur úr sýrðum
rjóma, jógúrt, skyri eða AB-mjólk
henta mjög vel með kartöflusneiðun-
um og þá er hægt að bragðbæta þær með söxuðum kryddjurtum, papriku-
dufti, chilipipar og ýmsum kryddjurtablöndum.
Kartöflubátar henta vel með flestum
grillmat og má bera fram í staðinn fyrir
franskar.
Grænmetisætur
geta líka grillað
því það er hægt
að grilla græn-
meti, ávexti,
brauð og tofú.
Einfalt er að
grilla tofú og er þessi uppskrift sem
hér fylgir sérstaklega góð og jafnvel
þeir sem yfirleitt borða ekki tofú
eiga eftir að moka þessu í sig. Ef von
er á gestum er því ráð að gera nóg.
Grillað tofú
Tofú
Tamari sojasósa
Hvítlaukskrydd
Síróp
Aðferð
Betra er að nota kolagrill en gasgrill
fyrir þessa uppskrift.
Skerðu tofúið í 5 cm þykka bita
Helltu sojasósunni vel yfir bitanna.
Kryddaðu með hvítlaukskryddi
Láttu ögn af sírópi með.
Notaðu bursta til að dreifa blöndunni vel
yfir tofúið.
Settu tofúbitana á álpappír á
grillið, en ef þú vilt fá grillrendur í
það skaltu smyrja grillið vel áður en
þú setur tofúið beint á grindina.
Grillaðu tofúið vel báðu megin.
Berðu fram tofúið með góðu sal-
ati. Afganga er hægt að nota í sam-
lokur næsta dag.
Grillað tofú
Grænmetisætur geta líka átt góða stund við grillið.
Mangó grill-kóngarnir Maggi og Villi á
Mangó grill þar sem grillað er alla daga.
Fjölbreytt og
óvenjulegt á grillið
Bókin Gott af grillinu lumar á ýmsu.