Fréttablaðið - 10.06.2005, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 10.06.2005, Blaðsíða 52
10. júní 2005 FÖSTUDAGUR > Við hrósum KSÍ ... ... fyrir að taka á máli Ólafs Þórðarsonar en hann gekk of langt með ummælum sínum gegn Garðari Erni Hinrikssyni. Menn geta ekki komist upp með að segja það sem þeim dettur í hug og haldið að þeir komist upp með það bara af því að þeir biðjast afsökunar daginn eftir. Heyrst hefur ... ... að landsliðsþjálfarar Íslands í knatt- spyrnu leggi ofurkapp á það að fá æfingalandsleik fyrir lokatörnina í haust. Ásgeir og Logi horfa til landsleikjadagsins 18. ágúst en þá fara fjölmargir vináttu- landsleikir fram en flestar þjóðirnar sem eru ekki að spila í undankeppninni hafa þegar skipulagt sína leiki þennan dag. sport@frettabladid.is 32 > Við óskum ... .... Björgvini Rúnarssyni og íslenskum körfubolta til hamingju með að eignast nýjan alþjóðlegan dómara. Björgvin stóðst FIBA-prófið á dögunum og bættist í hóp með þeim Kristini Óskarssyni og Sigmundi Má Herbertssyni en þeir voru einu FIBA-dómarar íslands. Tryggvi Gu›mundsson hefur skora› öll 10 landsli›smörkin sín gegn fljó›um sem eru fyrir ne›an okkur á Styrkleikalista FIFA. Tilbúinn í stóru þjóðirnar FÓTBOLTI Tryggvi Guðmundsson átti mjög góðan leik með íslenska karlalandsliðinu gegn Möltu á mið- vikudagskvöldið, skoraði eitt mark, lagði upp tvö og var óhepp- inn að skora ekki fleiri mörk sjálf- ur. Markið sem kappinn skoraði var það tíunda fyrir íslenska A- landsliðið en það vekur athygli að Tryggvi hefur bara skorað gegn litlu þjóðunum – knattspyrnuþjóð- um sem voru í 133. sæti eða neðar á síðasta FIFA-listanum. Tryggvi hefur 12 sinnum verið í byrjunarliðinu gegn „stórri“ þjóð en það eru hinsvegar liðin tæp fjögur ár síðan hann fékk að byrja inn á gegn stórri þjóð í und- ankeppni HM eða EM. Tryggvi var í byrjunarliðinu og spilaði 70 mín- útur í 1-2 tapi gegn Dönum á Laug- ardalsvellinum 2. september 2000 en þetta er jafnframt í eina skiptið sem hann hefur byrjað alvöru landsleik gegn „stærri“ þjóð. Verið á spýtunni „Ég hef fengið að byrja um það bil helmingin af mínum landsleikj- um og flesta gegn þessum litlu lið- um. Annars hefur maður verið á spýtunni og fengið að koma inn kannski í fimm til tíu mínútur í lok- in. Það segir sér sjálft að það er auðveldara að skora þegar maður spilar 90 mínútur en 5 eða 10 mín- útur,“ sagði Tryggvi í viðtali við Fréttablaðið í gær en hann hefur aðeins fengið að klára 2 leiki af þeim 20 sem hann hefur spilað gegn „stóru“ þjóðunum. „Ég þykist alveg vera tilbúinn að fá að spila gegn þessum stóru þjóðum en ég er samt ekkert bitur. Það er langur tími í næsta leik en ef maður heldur áfram á sömu braut hér heima og spilar vel með FH þá fær maður vonandi að vera með í haust,“ sagði Tryggvi sem var að koma af æfingu hjá FH-lið- inu en það stutt stórra högga á milli hjá kappanum enda næsti leikur FH-liðsins í Landsbanka- deildinni gegn Þrótti í Kaplakrika á morgun. Tryggvi hefur farið sérstaklega illa með Möltubúa og Ísland hefur unnið sannfærandi sigra í öllum fjórum leikjunum sem hann hefur spilað gegn þessari 400 þúsund manna þjóð í Miðjarðarhafinu. Tryggvi hefur leikið þá alla frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu og á þeim tíma skorað 3 mörk sjálfur og gefið 5 stoðsendingar á félaga sína í liðinu. Markatala Íslands í þessum fjórum leikjum er 16-2 ís- lenska liðinu í hag. Staðráðinn í að sanna sig „Ég fæ að spila gegn þessum litlu þjóðum og er alltaf staðráðinn í að sanna mig. Ég er sóknarmaður og þegar við erum að spila við minni þjóðirnar þá er meiri áhersla lögð á sóknina. Þegar við spilum gegn stærri þjóðunum þá er kannski komnir menn í mína stöðu sem eru sterkari varnarlega. Vinstri vængurinn í 4-3-3 er frá- bær staða fyrir mig, þar er ég fyr- ir framan markið en get einnig nýtt mér minn vinstri fót og gefið góðar fyrirgjafir fyrir markið. Þessi staða hentar mér því mjög vel,“ sagði Tryggvi og nú er að sjá hvaða leikkerfi og hvaða leikmenn landsliðsþjálfarnir nota í næsta leik sem verður væntanlega gegn Króötum á Laugardalsvellinum 3. september. ooj@frettabladid.is „Ég bjóst aldrei við því að þetta mál færi svona langt og þetta kom mér á óvart,“ sagði Eiríkur Guðmundsson, for- maður meistaraflokksráðs ÍA, í gær. Aganefnd KSÍ ákvað að sekta Knatt- spyrnudeild ÍA um 15.000 krónur vegna ummæla sem Ólafur Þórðarson, þjálfari liðsins, lét hafa eftir sér í fjölmiðlum eftir leik gegn Val. Þá fékk Ólafur sjálf- ur alvarlegar ávítur vegna ummælanna. Hann vildi ekki tjá sig um málið þegar Fréttablaðið hafði samband við hann í gær. Ólafur lét ýmis orð falla um dómarann Garðar Örn Hinriksson, var ósáttur við víta- spyrnudóm í umræddum leik og sakaði Garðar um að hata ákveðna leikmenn Skagamanna. Eftir að myndir af atvik- inu, þar sem Garðar dæmdi vítaspyrnu, voru opinberaðar hringdi Ólafur í hann og bað hann afsökunar og viðurkenndi síðan mistök sín í útvarpsþættinum Mín skoðun daginn eftir. „Ólafur átti að halda þessum skoðunum fyrir sjálf- an sig en ekki fara með þá í fjöl- miðla. Hann biður síð- an Garðar afsökunar og ég hélt að þessu máli væri þar með lokið, en það þýðir ekkert að æsa sig yfir þessu, þetta er bara búið og gert,“ sagði Eiríkur en neitaði því að Ólafur fengi refsingu frá sjálfu félaginu. „Við þurfum bara að treysta á að hann verði skynsamur og láti ekki skapið hlaupa með sig í gönur. Ég tók nú eftir því að Logi Ólafsson gargaði eitthvað framan í fjórða dómar- ann í landsleiknum gegn Ungverjum um helgina, það er spurning hvort KSÍ muni sekta hann líka?“ Í fyrrasumar veitti KSÍ þjálfara einnig al- varlegar ávítur. Þá sakaði Þorvaldur Ör- lygsson, þjálfari KA, Kristin Jakobsson um kynþáttafordóma eftir bikarleik gegn ÍA. Leikmaður félagsins, Slobodan Milisic, fékk einnig ávítur fyrir ummæli um Kristin eftir leik. AGANEFND KSÍ: ÁVÍTTI ÓLAF ÞÓRÐARSON, ÞJÁLFARA ÍA, OG SEKTAÐI KNATTSPYRNUDEILD FÉLAGSINS Bjóst aldrei vi› flví a› fletta færi svona langt HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 7 8 9 10 11 12 13 Föstudagur JÚNÍ ■ ■ LEIKIR  20.00 KA og KS mætast á Akureyrarvelli í fyrstu deild karla. ■ ■ SJÓNVARP  07.00 Olíssport á Sýn.  07.30 Olíssport á Sýn.  08.00 Olíssport á Sýn.  08.30 Olíssport á Sýn.  17.45 Olíssport á Sýn.  19.00 Gillette sportpakkinn á Sýn.  19.30 Motorworld á Sýn.  20.00 World Supercross á Sýn.  21.00 HM í póker á Sýn.  23.15 NBA úrslitakeppni á Sýn. GUÐJÓN ÞÓRÐARSON Lætur mikið til sín taka í Nottingham þessa dagana. Guðjón Þórðarson: Mótar li›i› ekki strax FÓTBOLTI Guðjón Þórðarson, knatt- spyrnustjóri Notts County, segir í viðtali á heimasíðu félagsins í gær að hann sé búinn að ákveða dag- setningu til að velja þá leikmenn sem hann ætli að nota á næsta tímabili og segir hana vera daginn fyrir fyrsta leik. Guðjón hefur lítið getað fylgst með leikmönnum liðsins nema á myndbandsupptökum, því hann kom ekki til liðsins fyrr en leiktíð- inni lauk nú í vor. Hann segist í viðtalinu lítið geta metið frammi- stöðu leikmanna eftir upptökun- um, því hann sé ekki með á hreinu hvaða taktísku skipanir þeir voru með undir þjálfara sínum á þeim tíma. „Ég verð sjálfur að skoða þessa leikmenn á undirbúningstímabil- inu og þar fæ ég væntanlega að sjá hvernig hver og einn bregst við ólíkum aðstæðum í leik og þannig get ég tekið ákvörðun um framhaldið sjálfur,“ sagði Guðjón. „Ég get horft á leikmann spila á myndbandi, en það segir mér fátt fyrr en ég fæ að sjá til hans á undirbúningstímabilinu og því verður það okkur gríðarlega mik- ilvægt,“ sagði Guðjón. - bb George Best, fyrrum stórstjarnaManchester United, var handtek- inn í gær eftir að fullyrt hafði verið að hann hefði ráðist á konu. Vicky Pope heitir þessi umrædda kona og er 34 ára, hún segist hafa reynt að hindra Best þegar hann var að áreita fyrrum kærustu sína, Ginu Devivo, en þá hafi hann brugðist ókvæða við og slegið sig í hálsinn fyrir framan börnin hennar þrjú. Best var eins og svo oft áður undir áhrifum áfengis þegar þetta gerðist Hollenski sóknarmaðurinn DirkKuyt hefur mikinn áhuga á að ganga til liðs við Liverpool. Heyrst hefur af áhuga Evrópumeistarana á leikmanninum þótt enn hafi liðið ekki komið með tilboð í hann. Kuyt leikur með Feyenoord í heimalandinu en segist dreyma um að leika fyrir Liverpool. Hann skoraði eitt af mörkum hol- lenska landsliðsins sem sigraði Finnland 4-0 á miðvikudaginn og var einnig á skotskónum á nýaf- stöðnu tímabili þar sem hann lét boltann syngja 32 sinnum í mark- inu. Rafael Benitez, stjóri Liver- pool, er í leit að sóknarmanni og hefur víst verið að skoða Peter Crouch, Raul og Albert Luque und- anfarna viku. David Pizarro, leikmaður ítalskaliðsins Udinese, bað í gær um að verða settur á sölulista. Það er mikið áfall fyrir Udinese að missa þennan leikmann sem er algjör lyk- ilmaður og leikstjórnandi á miðj- unni. Udinese tekur þátt í Meist- aradeild Evrópu á næstu leiktíð og sagði Luciano Spalletti þjálfari liðs- ins starfi sínu lausu fyrir skömmu og nú er ljóst að Pizarro er líka á leið burt. Vonast var til að Meistaradeild- arsætið yrði gulrót fyrir Pizarro til að vilja halda áfram en svo var ekki. Inter, Juventus og AC Milan hafa öll sýnt áhuga sinn og ekki er ólík- legt að Roma blandi sér í slaginn ef Spalletti tekur við liðinu. Pizarro er 25 ára landsliðsmaður frá Chile og ljóst að verðmiðinn sem Udinese skellir á hann verður í hærri kantin- um. West Bromwich Albion vill fámarkvörðinn Chris Kirkland frá Liverpool samkvæmt Sky fréttastof- unni og kemur til greina að hann fari til þeirra á lánssamningi í eitt tímabil. Kirkland er orðinn 24 ára og hefur hvað eft- ir annað misst sæti sitt sem að- almarkvörður Liverpool vegna þrálátra meiðsla sinna. Ef Liver- pool fjárfestir í spænska markverðinum Jose Reina frá Villareal gætu möguleikar Kirklands takmarkast enn frekar. Kirkland hefur átt við meiðsli að stríða í baki en er orðinn alveg heill af þeim meiðslum samkvæmt um- boðsmanni hans og ætlar nú að gera allt sem hann getur til að reyna að vinna sér sæti í landsliðs- hópi Englands fyrir HM í Þýskalandi á næsta ári. ÚR SPORTINU Íslenskir kylfingar taka þátt á mótum erlendis: Ólöf María á tveimur yfir GOLF. Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG lauk fyrsta hring sínum á áskorendamótaröðinni í Esbjerg í Danmörku í gær á þremur högg- um yfir pari. Birgir lék fyrstu níu holurnar í gær á 36 höggum en þær síðari á 38 höggum og var því samanlagt á 74 höggum eftir dag- inn, sem skilaði honum í 69-89 sæti á mótinu. Birgir fékk þrjá fugla á hringn- um í gær, tíu pör, fjóra skolla og einn skramba. Það er því ljóst að Birgir Leifur þarf að taka sig sam- an í andlitinu á mótinu í dag, ef hann á að komast áfram í gegn um niðurskurðinn, sem væntanlega miðast við parið eða einn yfir. Ólöf María Jónsdóttir úr GK lék fyrsta hringinn á opna franska meistaramótinu, sem er liður í evrópsku mótaröðinni, á 74 högg- um í dag á tveimur höggum yfir pari og er á 73-89 sæti af 126 kepp- endum á mótinu. Ólöf fékk tvo fugla, fjórtán pör og þrjá skolla á fyrsta deginum og á ágæta mögu- leika á að komast í gegn um niður- skurðinn á mótinu í dag ef hún leikur vel. Mótið franska er henn- ar fimmta mót á evrópsku móta- röðinni í sumar, en hún hefur að- eins einu sinni komist í gegn um niðurskurðinn hingað til og það var einmitt á fyrsta mótinu henn- ar á Tenerife á Spáni. - bb Á TVEIMUR YFIR Ólöf María er að gera það gott í Frakklandi. LANDSLEIKIR TRYGGVA GEGN LIÐUM OFAR EN VIÐ Á FIFA-LISTANUM Leikir spilaðir: 20 Leikir í byrjunarliði: 12 Leikir sem varamaður: 8 Mínútur spilaðar: 1013 Mörk skoruð: 0 LANDSLEIKIR TRYGGVA GEGN LIÐUM NEÐAR EN VIÐ Á FIFA-LISTANUM Leikir spilaðir: 15 Leikir í byrjunarliði: 8 Leikir sem varamaður: 7 Mínútur spilaðar: 911 Mörk skoruð: 10 MÖRK TRYGGVA GEGN ÁKVEÐNUM ÞJÓÐUM: Færeyjar (133. sæti) 2 mörk Indland (135. sæti) 3 mörk Malta (136. sæti) 3 mörk Liechtenstein (141. sæti) 2 mörk FRÁBÆR GEGN MÖLTU Tryggvi Guðmundsson stóð sig mjög vel gegn Möltu en hann hefur ekki enn náð að setja mark sitt á landsleiki gegn stærri þjóðunum, það er gegn þjóðum sem eru ofar en við á styrkleikalista FIFA. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.