Fréttablaðið - 10.06.2005, Blaðsíða 64
44 10. júní 2005 FÖSTUDAGUR
Kringlan
Fótaaðgerðafræðingur
- nuddari
Í lok júní verður opnuð ný og endurbætt
snyrtistofa á 3. hæð Kringlunnar. Á stofunni er
til leigu aðstaða fyrir fótaaðgerðafræðing
og nuddara
Áhugasamir hringi í síma 892 6962 eða 891 7513.
Lindsay Lohan hefur reynt að halda
því fram undanfarið að hún sé ekki
með lystarstol eða aðra átröskun.
Þegar myndir af henni eru skoðaðar
sést þó greinilega að kílóin eru að
hrynja af henni og var hún þó ekki
með nein aukreitis til að missa. Lík-
legt þykir að stúlkan sé að sligast
undan álagi. Síðasta ár hefur verið
henni mjög erfitt en faðir hennar,
Michael Lohan, var dæmdur í fang-
elsi fyrir ýmis afbrot. Kærastinn
hennar, Wilmer Valderrama, hætti
einnig með henni og nú fyrir
skemmstu keyrði ljósmyndari á bíl
hennar til að ná góðri mynd. Slúður-
blöðin hafa elt hana á röndum og
umfjöllunin er oftast neikvæð, ann-
að hvort um það hversu mikið hún
skemmti sér eða rifrildi hennar við
ungpíuna Hilary Duff.
Nú virðist Lindsay hafa ákveðið
að taka þátt í nýjasta æðinu hjá ung-
um Hollywood-stjörnum en það er
að grenna sig hættulega mikið. Fyr-
ir aðeins sex mánuðum var Lindsay,
sem er átján ára gömul, eðlileg í
laginu, með þykkt og glansandi
rautt hár og fallegar freknur.
Nú er hún hins vegar orðin
hættulega grönn, langt undir kjör-
þyngd og með þunnt aflitað hár.
Þær sögur gengu einnig að hún
hefði losað sig við freknurnar með
geislameðferð til að vera fullorðins-
legri.
Þegar Lindsay mætti á frumsýn-
ingu myndarinnar Mr. and Mrs.
Smith í síðustu viku áttu ljósmynd-
ararnir erfitt með að trúa sínum
eigin augum. Stúlkan nánast hvarf
þegar hún stóð á hlið og þótti minna
meira á Pappírspésa en þá ungu
konu sem þeir áttu að kynnast og
var með fallegar línur og ávalan
barm.
Hún og aðrar stjörnur eins og
Jessica Simpson og Nicole Richie,
sem hafa verið í öfgafullri megrun
nú upp á síðkastið, þykja vera öðr-
um ungum konum afar slæm fyrir-
mynd og hafa fjölmiðlar vestanhafs
gagnrýnt þær harðlega fyrir útlitið.
■
Hverfilist Lindsay Lohan
GRENNST Nánast óþekkjanleg. Söng- og
leikkonan sem aðeins fyrir sex mánuðum
var eðlileg í laginu og heilbrigð virðist nú
bókstaflega vera að hverfa.
Hvetja á klúrinn hátt
Fótboltastelpurnar í Macalester
College í Bandaríkjunum öskra
„rökum þessar píkur“ til að hvetja
félaga sína á fótboltaleikjum. Tvær
íslenskar stelpur sem stundað hafa
nám við skólann kenndu félögum
sínum í fótboltanum nokkra góða
frasa sem eru óspart notaðir. Nú eru
tvær stelpur úr liðinu, þær Meghan
Leahey og Annie Borton, komnar til
Íslands til að spila fótbolta með
Fjölni.
„Ólöf, vinkona mín og herbergis-
félagi úti, kom okkur í samband við
liðið og þetta hljómaði eins og frá-
bært tækifæri til að spila fótbolta
einhvers staðar annars staðar,“ seg-
ir Meghan. „Ég hitti Ólöfu í fyrra
þegar hún kom í Macalester til að
spila fótbolta. Systir hennar Erla
var þar líka og við urðum góðar vin-
konur og ákváðum að búa saman,“
segir Meghan og á við grindvísku
systurnar Ólöfu og Erlu Pétursdæt-
ur.
Meghan er frá bænum Plymouth
í Minnesota-ríki og spilar á sumrin
með St. Paul Blackhawks. Hún
kynntist Annie, sem er frá Berkeley
í Kaliforníu, í Macalester College
þar sem þær stunda BA-nám. Skól-
inn er í tvíburaborgunum svoköll-
uðu, í höfuðborg Minnesota-ríkis,
St. Paul. Meghan á eftir eitt ár en
Annie tvö og munu þær halda áfram
að spila með fótboltaliði skólans
sem er í þriðju deild bandaríska fót-
boltans.
Þær kunna vel við sig á Íslandi
og þakka þjálfurum og liðsfélögum
í Fjölni fyrir góðar móttökur. Þær
hafa komið sér fyrir í miðbæ
Reykjavíkur. „Þetta er mjög lítill
bær en fólkið er vingjarnlegt og það
er mjög fallegt hérna. Ég held að
þetta verði gott sumar. Alla vega
þegar við verðum búnar að læra á
almenningssamgöngurnar,“ segir
Meghan. Þær stöllur hafa þegar
ferðast eitthvað um landið með ís-
lenskum vinkonum sínum úr
Macalester, en efst á dagskránni
fyrir sumarið er að fara til Vest-
mannaeyja um verslunarmanna-
helgina. rosag@frettabladid.is
FJÖLNISSTÚLKURNAR Meghan Leahey og Annie Borton leika knattspyrnu með Fjölni
og kunna ágætlega við sig á Íslandi.
LINDSAY LOHAN Sæt og frískleg í falleg-
um kjól. Þetta er sú Lindsay sem flestir
þekkja.
GRENNRI Hér var ferlið byrjað. Lindsay er
hér óneitanlega grönn en hefur ennþá
rauða hárið og freknurnar.