Fréttablaðið - 06.09.2005, Qupperneq 1
S‡na Kabarettinn Efst
á spaugi í Súlnasal
SPAUGSTOFAN
▲
FÓLK 30
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
STJÓRNMÁL „Þetta mál er ekki búið
að gera upp endanlega og því
stendur umsóknin enn. Við vinn-
um enn í málinu,“ segir Davíð
Oddsson utanríkisráðherra um að-
ildarumsókn Íslands að Öryggis-
ráði Sameinuðu þjóðanna. „Það
má segja að við séum að leita leiða
og kanna hvort hægt sé að halda
þessu áfram með miklu minni
kostnaði en menn höfðu áður velt
fyrir sér.“
Davíð átti fund með utanríkis-
ráðherrum Norðurlandanna fyrir
rúmri viku í Danmörku. „Þeir
tóku þetta mál upp við mig og ég
ræddi þetta. Það er heilmikill
þrýstingur af þeirra hálfu að við
hverfum ekki frá þessu,“ segir
Davíð og bætir við að ákvörðun
verði tekin áður en þing kemur
saman í haust.
Kjörið til Öryggisráðs Samein-
uðu þjóðanna verður ekki fyrr en
2008 en umfangsmikil kosninga-
barátta er fyrir höndum þangað
til. Áætlað hefur verið að kostnað-
ur við framboð Íslands verði vart
minni en 600 milljónir króna en Ís-
lendingar etja kappi við Tyrki og
Austurríkismenn um sæti í Ör-
yggisráðinu. Norðurlandaþjóðirn-
ar hafa skipst á um að bjóða sig
fram til Öryggisráðsins en þetta
er í fyrsta sinn sem Ísland lýsir
áhuga á setu í ráðinu. - jh
Umsókn um aðild að Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna ákveðin fyrir upphaf þings:
Utanríkisrá›herrarnir vilja sk‡r svör
BJARVIÐRI VESTAN TIL
og á Vestfjörðum. Rigning eða súld
sunnan og austan til og sumstaðar á
annesjum nyrðra. Hiti 3-11 stig,
hlýjast suðvestan til. VEÐUR 4
ÞRIÐJUDAGUR
6. september 2005 - 240. tölublað – 5. árgangur
Með pönkhljómsveit
í messukaffinu
Ása Björk Ólafsdóttir var vígð til prests
ásamt tveimur öðrum konum, sett í
embætti annars prests Fríkirkjusafnað-
arins í Reykjavík, hélt sína jómfrúar-
predikun og kom síðan öllum á óvart
með því að gift-
ast unnusta sín-
um Óskari Þór-
issyni. Allt
þetta á ein-
um degi.
TÍMAMÓT 22
Hver er Barði?
Stuttmyndinni Who's Barði? eftir Ragn-
ar Bragason hefur verið boðið til
keppni á hinni virtu, alþjóðlegu kvik-
myndahátíð Atlantic Film
Festival. Í myndinni
var fylgst með Barða
og er útkoman
þrælskemmtileg
og kemur margt
óvænt í ljós.
MENNING 82
Guðjón verður ekki kærður
Stjórn knattspyrnu-
deildar Keflavíkur
mun ekki kæra
Guðjón Þórðarson
fyrir samningsrof
eins og talað var um
að gera þegar Guðjón
sagði starfi sínu lausu
þrem dögum fyrir
fyrsta leik í Lands-
bankadeildinni.
ÍÞRÓTTIR 24
Gefa uppl‡singar
um heilsugæslu
HRÖNN OG STEFANÍA:
Í MIÐJU BLAÐSINS
● heilsa ● brúðkaup
▲
Lilja fær a› ættlei›a
Lilja Sæmundsdóttir, konan sem dómsmálará›uneyti› synja›i um a› ættlei›a
barn frá Kína, hefur unni› sigur. Hún hefur fengi› samflykki frá rá›uneytinu
eftir a› hafa barist fyrir dómstólum fyrir flví a› jafnt gangi yfir alla.
ÆTTLEIÐINGAR Lilja Sæmundsdóttir
sem barist hefur fyrir því fyrir
dómstólum að fá að ættleiða barn
frá Kína hefur unnið sigur. Hún
hefur fengið erindi þess efnis frá
dómsmálaráðuneytinu að það hafi
veitt henni forsamþykki til að ætt-
leiða barn frá Kína.
„Ég er sérstaklega ánægð með
að réttlætið skyldi ná fram að
ganga, þannig að jafnt gangi yfir
alla,“ sagði Lilja við Fréttablaðið í
gær. „Þess vegna ákvað ég að fara
með þetta alla leið. Svo er ég afar
glöð yfir þessum málalokum, en
það er hlutur sem ég tekst á við í
rólegheitum eins og ég á að gera,“
bætti hún við og undirstrikaði að
þar sem málið væri nú komið af
opinberum vettvangi myndi hún
ekki tjá sig frekar um það.
Lilja sótti um forsamþykki til
ættleiðingar til dómsmálaráðu-
neytis. Barnaverndarnefnd Eyja-
fjarðar mælti eindregið með því
að forsamþykki til ættleiðingar-
innar yrði veitt. Þá leitaði ráðu-
neytið til ættleiðingarnefndar
með vísan til þess að þyngd um-
sækjanda væri yfir kjörþyngd.
Nefndin mælti ekki með leyfi til
ættleiðingar þrátt fyrir að fyrir-
liggjandi væru ítarleg læknisvott-
orð um heilbrigði Lilju. Ráðuneyt-
ið synjaði ættleiðingarumsókn-
inni.
Lilja höfðaði mál fyrir Héraðs-
dómi Reykjavíkur. Hann felldi í
dómsniðurstöðu sinni synjunarúr-
skurð dómsmálaráðuneytisins úr
gildi. Hins vegar vísaði dómurinn
frá viðurkenningarkröfu Lilju um
að hún uppfyllti skilyrði til for-
samþykkis, þar sem það væri í
verkahring stjórnvalda en ekki
dómstóla að kveða á um slíkt. Lög-
maður Lilju, Sigríður Rut Júlíus-
dóttir hdl., kærði síðarnefnda at-
riðið til Hæstaréttar. Jafnframt
fór Ragnar Aðalsteinsson hrl.
fram á endurupptöku umsóknar
Lilju hjá ráðuneytinu. Nú fékk
hún samþykki. Kæran til Hæsta-
réttar er þar með niður fallin.
„Ég hlýt að fagna því að ráðu-
neytið skuli hafa ákveðið að við-
hafa réttar aðferðir til að komast
að niðurstöðu,“ sagði Sigríður
Rut, lögmaður Lilju. „Með því er
að sjálfsögðu ekki hægt að komast
að annarri niðurstöðu en þeirri að
veita forsamþykki. Hér eftir geri
ég ráð fyrir að ráðuneytið muni
fara að lögum þegar það er að
taka afstöðu til umsókna um ætt-
leiðingar, en ómálefnaleg sjónar-
mið verði ekki látin ráða för.“
jss@frettabladid.is
Raftækjakeðjan Merlin:
Baugur me›al
fjárfesta
VIÐSKIPTI Líklegt er að Baugur
verði meðal þeirra fjárfesta sem
munu koma að kaupum á dönsku
verslanakeðjunni Merlin.
Sverrir Berg Steinarsson, fyrr-
verandi forstjóri Dags Group,
leiðir hóp fjárfesta sem eiga í við-
ræðum við FDP sem á Merlin. Tap
hefur verið á rekstrinum og nam
tapið í fyrra 1,3 milljörðum króna.
Sverrir Berg er annar aðaleig-
andi Dags Group ásamt Róberti
Melax sem aftur hefur átt í nánu
samstarfi við Karl Wernersson,
eiganda Milestone. Talið er að
Milestone sé í hópi íslensku fjár-
festanna. Ef af kaupum verður er
meiningin að nýta reynsluna af
rekstri BT-verslananna til að snúa
við rekstri Merlin.
- hh / sjá síðu 21
Íkveikjur í höfuðborginni:
Lögregla leitar
brennuvargs
BRUNAR Lögreglan í Reykjavík
svipast um eftir brennuvargi eftir
ítrekaða íkveikju í iðnaðarhús-
næði við Fiskislóð, að morgni
sunnudags og mánudags.
Þá er talið líklegt að kveikt hafi
verið í pappakössum sem geymd-
ir voru í kyndiklefa í Melabúðinni
aðfaranótt sunnudags.
Aðfaranótt mánudags var mað-
ur handtekinn í miðbænum grun-
aður um að hafa kveikt í rusli í
porti við skemmtistaðinn Pravda í
Lækjargötu í Reykjavík. Sá var
hins vegar í haldi lögreglu þegar
aftur var kveikt í á Fiskislóðinni.
Sjá síðu 18 - óká
VEÐRIÐ Í DAG
GLEÐILEG DAGSKRÁ FYRIR GÓÐA ÍSLENDINGA
DAVÍÐ ODDSSON UTANRÍKISRÁÐHERRA
Utanríkisráðherrar Norðurlanda vilja svör
um það hvort umsókn Íslands um aðild að
Öryggisráði SÞ standi.
GRÁTIÐ Í NEW ORLEANS Leonard Thomas grét þegar sérsveit lögreglunnar réðst inn í hús fjölskyldu hans í New Orleans. Nágrannar hans
höfðu sagt að ókunnugt fólk hefði í leyfisleysi sest að í húsinu. Þurfti Thomas að leggja fram sannanir fyrir því að fjölskylda hans ætti
húsið til að fá að vera þar áfram. Sjá síður 2 og 4
ELDUR Á FISKISLÓÐ Lögreglan rannsakar
eldsupptök.