Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.09.2005, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 06.09.2005, Qupperneq 4
KAUP Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR 61,12 61,42 113 113,54 76,67 77,67 10,28 10,34 9,793 9,851 8,249 8,297 0,5607 0,5639 90,79 91,33 GENGI GJALDMIÐLA 05.09.2005 GENGIÐ HEIMILD: Seðlabanki Íslands SALA 106,8203 4 6. september 2005 ÞRIÐJUDAGUR Efnahagsleg áhrif fellibylsins Katrínar: Hagvöxtur minnkar um allan heim LONDON, AP Afleiðinga fellibylsins Katrínar á Mexíkóflóa mun gæta um allan heim á næsta ári að mati hagfræðinga. Ástæðurnar eru að hækkandi olíuverð hefur áhrif á efnahagskerfi um allan heim. Peter Morici, prófessor í Mary- land-háskóla, fylgist með samlegð- aráhrifum alþjóðaviðskipta og segir að neytendur um allan heim þurfi að eyða meiri fjármunum í allt frá olíu til flugmiða. „Hækk- andi olíuverð í Bandaríkjunum hefur hækkandi áhrif á olíuverð í Evrópu og Asíu,“ segir Morici. „Bandarískt efnahagskerfi hægir á sér, Bandaríkjamenn kaupa færri vörur frá Evrópu og þannig veldur bandaríska efnahagskerfið samdrætti í efnahag Evrópu- ríkja,“ segir hann. Morici segir að eftirköst felli- bylsins hafi alvarlegustu efnahags- legu afleiðingar á hagvöxt í heimin- um frá því Íraksstríðið hófst og að neytendur verði að venja sig við þá hugsun að verð lækki ekki fljótlega að nýju. Hækkanirnar séu til lang- frama. - sda Lík fljóta í vatninu e›a eru á ví›avangi Nau›synlegt er a› flytja alla íbúa frá New Orleans svo a› uppbyggingarstarf geti hafist. Óleyfilegt a› nokkur ver›i eftir svo hreinsunarstarf gangi sem best. Fjöldi fólks neitar a› yfirgefa heimili sín. Líkum safna› af götum borgarinnar. HAMFARIR Meirihluti fórnarlamba fellibylsins í New Orleans hefur nú verið fluttur frá borginni. Leitar- fólk fer nú hús úr húsi til þess að reyna að finna fólk á lífi sem þarfn- ast hjálpar og svo flytja megi hvern einasta íbúa borgarinnar á brott. Lögreglan skaut á hóp byssu- manna og drap að minnsta kosti tvo. Byssumennirnir skutu á hóp viðgerðarmanna sem voru á leið yfir brú í borginni. Dregið hefur úr glæpum og ofbeldi eftir að þús- undir þjóðvarðarliða voru fluttar til borgarinnar til að koma á lögum og reglu. Flestir þjófnaðanna sem nú eiga sér stað eru framdir í neyð og er litið fram hjá því ef nauð- staddir stela sér matvælum eða drykkjarvörum til þess beinlínis að halda lífi. Hópar fólks hafa loks hafist handa við það hörmulega starf að safna saman líkum af götum borg- arinnar. Ótölulegur fjöldi líka er enn á floti í flóðvatninu, fastur í byggingum eða liggur á víðavangi. Yfirvöld vara við því að tala lát- inna geti farið að hækka all ískyggilega og óttast að mannfall geti skipt þúsundum. Björgunarmenn standa frammi fyrir þeim vandræðum að fjöldi fólks neitar að yfirgefa húsnæði sitt. Sumir segjast vilja vernda eigur sínar, en aðrir vilja ekki yfir- gefa gæludýr sín sem ekki eru leyfð í neyðarskýlunum. Haft er eftir aðstoðarinnan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, Michael Chertoff, í Washington Post að engum verði leyft að vera eftir. „Við munum ekki leyfa það að fólk dvelji í húsum sínum vik- um og mánuðum saman meðan við dælum vatni úr borginni og hreins- um hana,“ sagði hann. Borgarstjóri New Orleans, Ray Nagin, tók und- ir orð Chertoff og sagði það örygg- isatriði að allir yfirgæfu borgina. sda@frettabladid.is Evrópubúar senda aðstoð: Tjöld og teppi á fló›asvæ›in PARÍS, AP Fimm sérfræðingar í skipulagi hjálparstarfa á vegum franska Rauða krossins flugu til Bandaríkjanna í gær. Í fyrradag komu tólf sérfræðingar frá sex öðrum Evrópulöndum til flóða- svæðanna til að aðstoða við skipulagninguna. Fyrsta sending með hjálpar- gögnum fór frá Frakklandi í gær. Tjöld, teppi, læknaútbún- aður ásamt fleiru var sent frá bækistöðvum franska hersins á frönsku eyjunni Martiník í Karíbahafinu. ■ FRÁ NEW ORLEANS Hækkandi olíuverð í kjölfar fellibylsins í suðurríkjum Bandaríkjanna hefur áhrif á efnahagskerfi um allan heim. Japanar: Bjó›a olíu til hjálpar TÓKÝÓ, AP Japanar íhuga að ganga á olíuforða sinn og senda hluta af neyðarbirgðum sínum til Banda- ríkjanna vegna olíuskorts sem þar hefur myndast í kjölfar fellibylsins Katrínar sem reið yfir Mexíkóflóa. Olíuvinnslustöðvar, innflytj- endur og heildsalar í Japan eru skyldugir til að eiga 70 daga olíu- forða, en markið verður lækkað verði ákveðið að senda hluta birgðanna til Bandaríkjanna. Í síðustu viku ákváðu 26 ríki sem eiga aðild að Alþjóðaorku- málastofnuninni að senda tvær milljónir tunna á dag úr varaforða sínum til Bandaríkjanna. ■ HÖRMUNGAR AF VÖLDUM KATRÍNAR ERU MIKLAR Hópar fólks hafa loks hafist handa við það hörmulega starf að safna saman líkum af götum borgarinnar. Ótölulegur fjöldi líka er enn á floti í flóðvatninu, í byggingum eða liggur á víðavangi. Ríkisstjóri Texas: Fleiri fylki taki vi› fólki AUSTIN, AP Ríkisstjórinn í Texas ætlar að kanna hvort hægt sé að flytja hluta fórnarlamba fellibylj- arins, sem safnast hafa saman í Texas, til annarra ríkja sem hafa boðið hafa aðstoð. Þegar hafa um 250 þúsund manns flúið til Texas og fjölgar ört. „Neyðarskýli standa auð í öðr- um ríkjum meðan þúsundir flykkjast til Texas daglega. Við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að sinna þörfum þeirra sem hingað koma en við þurfum aðstoð frá öðrum ríkjum,“ segir Rick Perry ríkisstjóri. ■ Grikkir bjóða aðstoð: Lána tvö lystiskip AÞENU, AP Gríska ríkisstjórnin til- kynnti í gær að Bandaríkjastjórn hefði samþykkt að send yrðu tvö skemmtiferðaskip til að hýsa fórnarlömb flóðanna í suðurríkj- um Bandaríkjanna. Vonast er til að skipin geti hýst þúsundir manna í nokkra mánuði. Grikkir hafa einnig boðið fram aðstoð hjálparstarfsmanna úr slökkviliðum landsins sem hafa reynslu af því að bjarga fórnar- lömbum úr jarðskjálftum og öðr- um náttúruhamförum. Einnig hafa Grikkir boðist til að senda margs konar hjálpargögn. ■ FÓRNARLÖMB Á VERGANGI Grikkir ætla að senda tvö skemmtiferðaskip til að hýsa þúsundir fórnarlamba fellibylsins. Taílendingar aðstoða: Senda lækna og hrísgrjón BANGKOK, AP Taílendingar ætla að senda að minnsta kosti 60 lækna og hjúkrunarfræðinga til hjálpar á flóðasvæðunum í suðurríkjum Bandaríkjanna. Auk þess verða birgðir af hrísgrjónum sendar til hamfarasvæðanna. Taílendingar sögðust í bréfi til Bush Bandaríkjaforseta hafa áhyggjur af matarskorti í kjölfar flóðanna og buðust til að senda hrísgrjón. ■ MANNI BJARGAÐ Sérfræðingar í skipulagn- ingu hjálparstarfa hafa verið sendir frá Evrópu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.