Fréttablaðið - 06.09.2005, Síða 6
6 6. september 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Flugslys í Indónesíu:
Á anna› hundra› létust
INDÓNESÍA, AP Þota í innanlands-
flugi hrapaði niður í íbúðahverfi
í Indónesíu aðeins fáeinum sek-
úndum eftir flugtak með þeim
afleiðingum að í það minnsta 131
létust, margir þeirra voru á
jörðu niðri. Fimmtán farþegar
lifðu flugslysið af og sátu þeir
allir aftast í vélinni.
Slysið var í suðurhluta borg-
arinnar Medan í Súmötru og var
annað mannskæða flugslysið í
Indónesíu á síðustu níu mánuð-
um. Þotan var af gerðinni Boeing
737-400 og var frá Mandala flug-
félaginu á leið til Jakarta. Skýjað
var og lítið skyggni þegar vélin
flaug inn í húsaröð og rann því
næst eftir fjölfarinni umferðar-
götu. Fréttastofa í Indónesíu seg-
ir að vélin hafi flogið á raf-
magnsvíra en ekki sé ljóst hvort
það hafi valdið slysinu.
Eldur kviknaði í þotunni við
slysið og stóðu á annan tug íbúð-
arhúsa í ljósum logum. Þá kvikn-
aði í að minnsta kosti í tíu bílum.
Alls voru 116 farþegar og
áhöfn um borð í vélinni en talið
er að rúmlega 100 farþegar hafi
látist og að minnsta kosti þrjátíu
á jörðu niðri.
- sda
Sjálfstæðismenn vilja gjaldfrjáls bílastæði í Reykjavík:
Vilja stö›umælana
burt úr mi›bænum
BORGARMÁL Stöðumælar verða
fjarlægðir í miðborginni og tekið
upp svokallað skífukerfi ef tillaga
sem sjálfstæðismenn leggja fram
í borgarstjórn í dag verður sam-
þykkt.
Með skífukerfinu er bíleigend-
um gert kleift að leggja ókeypis í
tiltekin stæði í ákveðinn tíma. Þá
verða þeir að setja skífu eða miða
í framrúðu bílsins sem gefur til
kynna hvað klukkan var þegar
bílnum var lagt. Ef fólk virðir
ekki sett tímatakmörk á það á
hættu að þurfa að greiða sekt.
„Kaupmenn í miðborginni eru
flestir ósáttir við núverandi fyrir-
komulag og benda á ójafna sam-
keppnisstöðu þar sem viðskipta-
vinir þeirra séu skattlagðir á með-
an verslanir í öðrum hverfum aug-
lýsi óspart að hjá þeim séu næg
ókeypis bílastæði og engar sekt-
ir,“ segir í greinargerð með tillögu
sjálfstæðismanna. „Skífukerfið
hefur gefist vel á Norðurlöndun-
um, Þýskalandi og víðar um heim.
Fyrir skömmu var slíkt kerfi tekið
upp í miðbæ Akureyrar og hafa
viðtökurnar verið góðar.“
Áætlað er að tekjur borgarinn-
ar vegna stöðubrota muni nema
um 450 milljónum króna á þessu
ári. - th0
Vill a› læknar reki sjúkrahús
Spítali sem rekinn er af læknum myndi skapa faglega samkeppni, bætta fljónustu vi› sjúklinga og auki›
starfsöryggi lækna. fietta segir Tómas Helgason prófessor sem vill sjá slíkan spítala. Framkvæmdastjóri
lækninga Landspítala - háskólasjúkrahúss er ósammála.
HEILBRIGÐISMÁL Læknar þurfa nú
þegar að hefjast handa við undir-
búning sjúkrahúsreksturs á eigin
vegum eða í samvinnu við fjár-
festa.
Þetta segir prófessor Tómas
Helgason, fyrr-
um sviðsstjóri
geðssviðs Land-
spítala – háskóla-
sjúkrahúss, í
grein sem hann
ritar í nýtt
Læknablað og
nefnir að slíkur
rekstur gæti ver-
ið í byggingu
Borgarspítalans.
Læknar hins
sjálfstæða spít-
ala gætu samið
við Trygginga-
stofnun um kaup
á þjónustu af
honum eins og á
Landspítalanum.
„Kæmi þá
g æ l u v e r k e f n i
Landspítalans,
DRG-kerfið, loks
að góðum notum
til að verðleggja
þ j ó n u s t u n a , “
segir Tómas. Hann segir að með
tilkomu sjúkrahúss, sem læknar
rækju myndi skapast „fagleg
samkeppni og þjónusta við sjúk-
linga batna, starfsöryggi lækna
myndi aukast, stjórnunarvandi
Landspítalans leysast og draga
mætti úr því byggingarmagni,
sem ætlunin er að reisa í þrengsl-
unum við Hringbraut.“
Jóhannes M. Gunnarsson,
framkvæmdastjóri lækninga
Landspítalans, er honum ekki
sammála.
„Það má ekki gleyma hvers
vegna spítalarnir voru sameinaðir
og rökunum fyrir því,“ segir
hann. „Þau rök gilda áfram. Sam-
einingin var gerð til að ná hag-
kvæmni stærðar og komast upp í
þá stærðargráðu sem gefur mönn-
um færi á að fullnægja kröfum
samfélagsins annars vegar og
reglna Evrópusambandsins hins
vegar um það að veita mönnum
nægjanlega hvíld frá vinnu. Til
þess þarf að ná ákveðnum fjölda.
Ég tel, burtséð frá því hvað mönn-
um fannst um sameiningu Sjúkra-
húss Reykjavíkur og Landspítala
á sínum tíma, útilokað að reyna að
nálgast þessi markmið nema með
þetta sem eina hjörð.“
Tómas fjallar í grein sinni um
það sem hann nefnir stjórnunar-
vanda Landspítalans. Hann segir
að sá vandi skapist fyrst og
fremst af einokunaraðstöðu hans
og því að framkvæmdastjórn spít-
alans telji að reka eigi hann eins
og einkafyrirtæki, sem hún ráði
og reki eftir eigin geðþótta.
„Starfsmenn þora því ekki að
hafa uppi gagnrýni af ótta við að
verða atvinnulausir og sjúklingar
Piltur í gæsluvarðhaldi:
Neitar annarri
stunguárásinni
LÖGREGLA Gæsluvarðhald yfir pilti,
sem talinn er hafa stungið tvo aðra
með hnífi í miðborg Reykjavíkur á
Menningarnótt, hefur verið fram-
lengt allt til föstudagsins 14. októ-
ber.
Sigurbjörn Víðir Eggertsson, að-
stoðaryfirlögregluþjónn í Reykja-
vík, kvað rannsókn málsins ganga
vel, en fátt um hana að segja að
sinni. Í skjölum lögreglu sem lögð
voru fyrir Hæstarétt vegna fyrri
gæsluvarðhaldsúrskurðar kemur
fram að pilturinn vilji ekki kannast
við að hafa stungið nema einn um
nóttina og neitar því að hafa lagt til
hans tvisvar, heldur hljóti hnífur-
inn að hafa skoppað. - óká
Rúðubrjótar á Selfossi:
Skemmdar-
varga leita›
LÖGREGLA Vegfarandi á Selfossi
tilkynnti um eld í blaðabunka við
aðalinngang Fjölbrautaskóla
Suðurlands um miðnætti á
sunnudagskvöld. Lögregla segir
að fundist hafi eldspýta í blaða-
bunkanum og telur að kveikt hafi
verið í. Tjón var óverulegt en
vegna hitans kom sprunga í eina
rúðu.
Fyrr um kvöldið höfðu verið
brotnar rúður í Vallaskóla við
Sólvelli á Selfossi og telur lög-
regla ekki útilokað að þar hafi
sömu skemmdarvargar verið á
ferð. Þar bar lögreglu að garði
um klukkan tíu um kvöldið, eftir
að brothljóð höfðu heyrst, en
greip í tómt.
Lögreglan á Selfossi vinnur að
rannsókn málanna tveggja.
- óká
LÖGREGLUFRÉTTIR
TVÖ FÍKNIEFNAMÁL Í FIRÐINUM
Lögreglan í Hafnarfirði hefur til
rannsóknar tvö fíkniefnamál
sem upp komu í bænum aðfara-
nótt mánudags. Maður var hand-
tekinn með fimm grömm af því
sem talið er amfetamín og í bíl
tveggja annarra fundust þrjú
grömm af kannabisefnum. Allir
voru handteknir og yfirheyrðir.
Bandaríkin:
N‡r forseti
Hæstaréttar
WASHINGTON, AP
George Bush
Bandaríkjafor-
seti hefur til-
nefnt John Ro-
berts sem nýjan
forseta Hæsta-
réttar. Roberts
tekur við af Willi-
am H. Rehnquist
sem lést fyrir
skömmu. Ákvörð-
un Bush kom á
óvart, því John Roberts var ekki
einn þeirra sem nefndir höfðu
verið sem hugsanlegir eftirmenn
Rehnquists, sem Bush tilnefndi
sem hæstaréttardómara í júlí.
Bush þarf nú að tilnefna nýjan
hæstaréttardómara.
Roberts er eindreginn fylgis-
maður Bush forseta og var lög-
fræðilegur ráðgjafi George Bush
eldri. - sda
KÓSÓVÓ
FORSETI MEÐ KRABBAMEIN
Ibrahim Rugova, forseti sjálfs-
stjórnarhéraðsins Kósóvó, skýrði
frá því í gær að hann væri með
krabbamein í lungum en ætlar
ekki að segja af sér embætti. For-
setinn, sem er 61 árs, sagðist ætla
að halda áfram að berjast fyrir
sjálfstæði Kósóvó frá Serbíu, nú
sex árum eftir lok stríðsins í
Júgóslavíu.
Á að styrkja foreldra ungra
barna sem vilja vera heima?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú fundið fyrir auka-
verkunum vegna lyfjatöku?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
26%
74%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
BÆJARLIND 6,
SÍMI 554-7030
EDDUFELL 2,
SÍMI 557-1730
NÝJAR HAUSTVÖRUR
STR. 36 - 56
JOHN ROBERTS
Nýr forseti hæsta-
réttar Bandaríkj-
anna.
ENGIR STÖÐUMÆLAR Á AKUREYRI Þóra Ákadóttir, forseti bæjarstjórnar Akureyrar, og Guð-
mundur Jóhannsson, formaður umhverfisráðs bæjarins, fjarlægðu fyrir skömmu síðasta
stöðumælinn í bænum.
RÚSTIR EFTIR FLUGSLYS Þota hrapaði á
íbúðabyggð skömmu eftir flugtak í borg-
inni Medan í Indónesíu. Um hundrað far-
þegar létust og að minnsta kosti þrjátíu á
jörðu niðri.
verða að sætta sig við þá þjónustu
sem einokunarspítalinn býður.“
Jóhannes kvaðst ekki vilja
eyða orðum að þessum fullyrðing-
um, öðrum en þeim að þær væru
fjarri öllu sanni.
jss@frettabladid.is
TÓMAS HELGASON
Gagnrýnir fram-
kvæmdastjórn LSH
harðlega.
Í FOSSVOGI Spítali sem rekinn er af læknum gæti verið í byggingu Borgarspítalans, segir
Tómas Helgason í grein sinni.
JÓHANNES M.
GUNNARSSON
Hafnar gagnrýninni.