Fréttablaðið - 06.09.2005, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 06.09.2005, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 6. september 2005 11 Réðst á lækni í mars: Fjóra mánu›i í var›haldi DÓMSTÓLAR Maður sem setið hefur í gæsluvarðhaldi í rúma fjóra mánuði fyrir að hóta og ráðast á prófessor í réttarlæknisfræði í mars, var í gær úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald, til 30. september. Sveinn Andri Sveinsson, lög- maður mannsins, segir hann hafa kært úrskurðinn til Hæstaréttar. Maðurinn, sem er 34 ára gam- all, sætir einnig ákæru, með öðr- um 43 ára gömlum manni, fyrir að hafa um nokkurt skeið fram til nóvemberloka árið 2003 staðið að framleiðslu amfetamíns í sölu- skyni. Málin voru sameinuð í síð- ustu viku. - óká MÓTMÆLI Í ÚKRAÍNU Mótmælendur úr úkraínska Sósíalistaflokknum í stymping- um við lögreglu þegar þeir reyna að fara með kornpoka í úkraínska stjórnarráðið í Kíev í gær. Aðgerðirnar voru mótmæli gegn breytingum á landbúnaðarstefnu ríkisstjórnarinnar sem þeir halda fram að skaði úkraínska bændur og þorp. Þrjú hundruð flóttamenn: Ná›ust á gúmmíbátum MADRÍD, AP Spænska lögreglan handsamaði þrjú hundruð afríska flóttamenn sem gerðu tilraun til að komast til Spánar á gúmmíbát- um um helgina. Þetta er mesti fjöldi flóttamanna sem náðst hef- ur á Spáni á þessu ári. Flóttamennirnir voru flestir karlmenn og meirihlutinn frá Marokkó. Þúsundir flóttamanna reyna að komast yfir Gíbraltar- sund frá Afríku til Spánar á hverju ári. ■ HOUSTON, AP Tveir fyrrverandi forsetar Bandaríkjanna, George Bush eldri og Bill Clinton, hafa lagt fjársöfnun til handa fórnar- lamba fellibylsins Katrínar lið. Fjársöfnunin er með sama sniði og sú sem hrundið var af stað eftir flóðbylgjurnar við Ind- landshaf og nefnist Bush-Clint- on Katrínarsjóðurinn. „Við höfum mestan áhuga á því að bretta upp ermarnar og hefjast handa,“ sagði Bush. „Við þurfum öll að vinna saman til að ná markmiði okkar.“ Bush og Clinton heimsóttu fórnarlömb flóðanna sem hafast við í flóttamannaskýlum í Houston í Texas. Clinton sagði að hann og Bush hefðu ekki af- ráðið að leggja söfnuninni lið sitt vegna þess að þeim þætti al- ríkisstjórnin ekki vera að standa sig heldur til að fylla upp í þar sem aðstoð yfirvalda nær ekki til og hjálpa fólki sem ann- ars gæti orðið útundan. Milljarðar íslenskra króna hafa þegar safnast og hafa stór- fyrirtæki í Bandaríkjunum ekki látið sitt á eftir liggja. Meginmarkmið sjóðsins verður að hjálpa fólki að koma undir sig fótunum að nýju eftir hamfarirnar. - sda Fyrrverandi forsetar Bandaríkjanna hefja fjársöfnun: Milljar›ar króna hafa safnast BILL CLINTON OG GEORGE BUSH ELDRI Meginmarkmiðið er að hjálpa fólki að koma undir sig fótunum að nýju eftir ham- farirnar. Tillaga um sameiningu fellur í grýttan jarðveg hjá bæjarstjórum á höfuðborgarsvæðinu: Engin ástæ›a til a› sameinast SVEITARSTJÓRNARMÁL Bæjarstjórar Kópavogs, Mosfellsbæjar og Sel- tjarnarnesbæjar taka illa í tillögu Ólafs F. Magnússonar, borgarfull- trúa Frjálslynda flokksins, um að sameina sveitarfélögin á höfuð- borgarsvæðinu. Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, segir að tillagan beri vott um að Ólafur F. sé orðinn mið- stýringarsinni. „Ég tel ekki neina ástæðu til að sameina sveitarfélögin á höfuð- borgarsvæðinu,“ segir Gunnar I. „Ef það yrði gert yrði til 185 þúsund manna sveitarfélag sem væri mjög miðstýrt, líkt og ríkið. Það verður líka að vera ákveðin samkeppni milli sveitarélaga um þjónustu. Sú samkeppni deyr ef þetta yrði gert.“ Jónmundur Guðmarsson, bæjar- stjóri Seltjarnarnesbæjar, segist telja að tillaga Ólafs F. myndi falla í afar grýttan jarðveg á Seltjarnar- nesi. „Seltjarnarnesbær hefur veitt sínum íbúum góða þjónustu á betri kjörum en nágrannasveitarfélögin. Það er því alveg ljóst að sameining myndi ekki koma Seltirningum til góða.“ Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæj- arstjóri í Mosfellsbæ, segir ekki koma til greina að Reykjavík inn- limi Mosfellsbæ. „Sameinað sveitarfélag yrði allt of stórt gagnvart sveitarfélögunum á landsbyggðinni. Það væri miklu frekar að kanna möguleikann á því að búa til þrjú álíka stór sveitarfé- lög á svæðinu sem gætu keppt hvort við annað um þjónustu.“ - th ÆTLAR EKKI AÐ LÁTA LYKLANA AF HENDI Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, hyggst ekki láta lyklana að bæjarstjóraskrifstofunni af hendi. Hann vill ekki sameiningu. ÁSTRALÍA RÚTUSLYS Í ÁSTRALÍU Tveir létust og fleiri en tuttugu slösuðust al- varlega í rútuslysi suður af Sydn- ey í Ástralíu í gær. Nær allir far- þegar voru taívanskir ferðamenn. Rútan rann út af veginum og valt niður bratta hlíð.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.