Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.09.2005, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 06.09.2005, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 6. september 2005 13 SJÁVARÚTVEGUR Íslenska sjávarút- vegssýningin 2005 verður sett á morgun klukkan tíu og stendur í fjóra daga, til 10. september. Sýningin hefur verið haldin á þriggja ára fresti síðan 1984 og verður nú líkt og 2002 haldin í íþróttahúsinu Smáranum í Kópa- vogi. Talsmenn sýningarinnar gera ráð fyrir svipuðum gesta- fjölda og síðast, en það var stærsta sýningin frá upphafi og voru gestirnir rúmlega 18.000 talsins. Fjölmiðlafyrirtækið Nexus Commercial Fishing stendur að sýningunni. „Sýningin er mjög mikilvæg fyrir bæði framleiðend- ur og notendur,“ segir Bjarni Þór Jónsson, fulltrúi Nexus á Íslandi. „Þarna sjá menn á einum stað allt það nýjasta í þessum geira.“ Um 800 fyrirtæki verða með sýningarbása í Smáranum. Sýn- ingarrýmið er alls 13.000 fermetr- ar undir þaki og auk þess er úti- rými. Sýningin er alþjóðleg og hefur gegnum tíðina unnið sér sess sem einn helsti viðburður heimsins fyrir allt sem tengist sjávarút- vegi. Sýnendur eru frá 37 löndum og eru margir hverjir komnir langt að. Heimasíða sýningarinnar er www.icefish.is. - grs Íslenska sjávarútvegssýningin hefst á morgun: Ein stærsta s‡ning fyrir sjávarútveg Lögreglan á Selfossi: Fann fíkniefni á skemmtista› LÖGREGLA Skemmtistaður á Sel- fossi var rýmdur eftir að lög- regla fann þar fíkniefni og tól til neyslu þeirra við eftirlit aðfar- arnótt laugardags. Málið er til rannsóknar og efn- in í greiningu, en að sögn lögreglu á Selfossi voru fáir inni á staðn- um, starfsfólk og örfáir aðrir. Í greinargerð á lögregluvefn- um kemur fram að starfsmenn skemmtistaðarins voru taldir eigiendur þeirra tóla til fíkni- efnaneyslu sem fundust og því áleit lögregla nauðsynlegt að loka staðnum til að gera þar frek- ari leit. - óká NORSKU KONUNGSHJÓNIN Konungshjónin eru á leið í opinbera heimsókn til Was- hington. Noregskonungur: Heimsækir Washington OSLÓ, AP Haraldur Noregskonung- ur og Sonja drottning fara í opin- bera heimsókn til Washington í næstu viku. Konungurinn afhjúp- ar þar styttu af móður sinni heit- inni, Mörtu krónprinsessu. Styttan er úr bronsi og er eftir norska myndhöggvarann Kirsten Kokkin. Hún er gjöf frá Banda- ríkjamönnum af norskum upp- runa til að minnast hundrað ára sjálfstæðis Noregs. Marta var eiginkona Ólafs V. konungs og flúði til Bandaríkj- anna ásamt þremur börnum sínum þegar Þjóðverjar hernámu Noreg í síðari heimsstyrjöldinni. ■ Kína og Evrópusambandið: Samkomulag um fatna› BRUSSEL, AP Fulltrúar Evrópusam- bandsins og Kínverja hafa náð samkomulagi um innflutning á kínverskri vefnaðarvöru til Evr- ópusambandsríkjanna. Sam- kvæmt samningnum verður heim- ilt að flytja inn kínverskar vefn- aðarvörur, sem hafa verið kyrr- settar á landamærum Evrópu- sambandsins um nokkra hríð. Leyfilegt verður að flytja 75 milljónir flíkur frá Kína til Evr- ópusambandsins og er það tölu- vert meira en áður var leyft. Sam- komulagið er undir því komið að ríki Evrópusambandsins sam- þykki það fyrir sitt leyti. ■ BRETLAND TVEIR FÓRUST Í FLUGSLYSI Breska strandgæslan fann flug- vélarflak á Írlandshafi í gær og var lík eins manns í vélinni. Ann- ars manns er enn saknað. Flug- vélarinnar hafði verið leitað frá því á sunnudag. Slæm veðurskil- yrði voru á Írlandshafi í gær, þoka og ókyrrð í lofti. UNNIÐ HÖRÐUM HÖNDUM Verið er að ljúka uppsetningu sýningarbása í Smáranum í Kópavogi áður en sýningin opnar í fyrramálið.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.