Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.09.2005, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 06.09.2005, Qupperneq 14
HEILSUGÆSLA Gamla heilsuvernd- arstöðin við Barónsstíg verður væntanlega sett í sölu á næstu tveimur vikum, að sögn Þórhalls Arasonar hjá fjármálaráðuneyt- inu. Hann segir að ekki sé búið að verðmeta bygginguna, en það verði gert þannig að menn hafi hugmyndir um hvernig eigi að verðleggja hana. Hún verður seld samkvæmt samningi sem fulltrú- ar ríkis og borgar gerðu með sér á dögunum. Guðmundur Einarsson, for- stjóri Heilsugæslunnar, telur að meira liggi á að finna nýtt hús- næði undir miðstöð heimahjúkr- unar, sem nú er á Grensásvegi. Hún er í leiguhúsnæði, sem hefur verið selt. Nýi eigandinn þarf að nota húsnæðið, þannig að miðstöð- in verður að víkja. „Það verður að rýma húsnæðið fyrir næsta vor,“ segir Guðmund- ur. „Að auki hefur húsnæðisþörf miðstöðvarinnar aukist í tengslum við samþættingu við félagsþjón- ustu Reykjavíkurborgar. Við þurf- um því heldur stærra húsnæði en það sem starfsemin er í núna.“ Hann bætir við að miðstöðin þurfi helst að vera staðsett á því svæði þar sem þjónustan er mest austan til í borginni, en þó ekki mikið austur fyrir Elliðaár. Ríkis- kaup sem sér um fasteignavið- skipti af þessu tagi hefur enn ekki auglýst eftir húsnæði fyrir mið- stöðina, þar sem starfsmenn fjár- málaráðuneytis og heilbrigðis- ráðuneytis hafa ekki gefið grænt ljós á að þarfalýsingu fyrir hana. Sumarleyfi hafi sjálfsagt sett þar strik í reikninginn. Hvað varðar nýtt húsnæði fyrir Heilsugæsluna sem er í gömlu heilsuverndarstöðinni við Baróns- stíg segir Guðmundur að ekki liggi eins mikið á því. Hann hefur gert drög að þarfalýsingu fyrir nýtt húsnæði Heilsugæslunnar, en seg- ir að betur þurfi að vinna í henni. „Starfsmenn fjármálaráðuneyt- isins vilja ganga í að selja húsið,“ segir Guðmundur.“ Við höfum í sjálfu sér engan áhuga á að fara héðan út en við förum að sjálf- sögðu eftir þeim ákvörðunum sem æðri embætti taka.“ jss@frettabladid.is Á MARKAÐ Gamla heilsuverndarstöðin við Barónsstíg verður auglýst til sölu á næstu dögum. Ekki er búið að setja verðmiða á hana. 6. september 2005 ÞRIÐJUDAGUR FASTEGINIR Fulltrúar Reykjavíkur- borgar vonast til að fá nálægt hundrað milljónir króna fyrir húsið við Fríkirkjuveg 3 sem auglýst hefur verið til sölu. Hús- ið, sem er fæðingarstaður Gunn- ars Thoroddsen, fyrrverandi for- sætisráðherra, hefur staðið autt í rúmt hálft ár eða síðan Innkaupa- stofnun Reykjavíkurborgar var flutt í Ráðhúsið. „Það hafa margir sýnt húsinu áhuga,“ segir Karl Georg Ragn- arsson hjá umhverfis- og tækni- sviði borgarinnar. „Þeir sem hafa helst áhuga er fólk sem tengist Gunnari. Síðan hafa veitinga- menn haft samband við okkur Hægriflokkarnir vinna á í Noregi: Stefnir í tvís‡nar kosningar NOREGUR Fylgiskannanir sýna lít- ilsháttar aukinn stuðning við hægriflokkana í Noregi þegar að- eins vika er til kosninga. Í nýrri könn- un Norska ríkis- útvarpsins og Dagbladet hallar mjög á Mið- flokkinn sem er í r a u ð g r æ n a bandalaginu svo- nefnda með Verkamannaflokkn- um og Sósíalíska vinstriflokknum. Samanlagt hafa þessir flokkar haft ríflega helming kjósenda með sér eða allt að 54 prósent eða þar til nú að þeir hafa nákvæm- lega helming fylgisins. Flokkur Kjells Magne Bondevik, Kristilegi þjóðarflokk- urinn, hefur ástæðu til að fagna nærri níu prósenta fylgi í könnun- inni, en það er talsvert umfram það sem hann hefur mælst með að undanförnu. Fimmtungur norskra kjósenda hyggst kjósa Framfaraflokk Carls. I. Hagen, sem veitt hefur minnihlutastjórn Bondeviks stuðning. Þrátt fyrir sveiflurnar að und- anförnu fengi Jens Stoltenberg og rauðgræna bandalagið þann fjölda þingsæta sem tryggt gæti því meirihlutastjórn. - jh sem vilja búa til ráðhúsveislusal með möguleika á að nýta garðinn. Þá hefur Fríkirkjan sýnt þessu mikinn áhuga,“ segir Karl, en þótt húsið sé friðað að utanverðu eru margir möguleikar á að breyta lóð og innviðum hússins. Brjóstmynd af Gunnari Thorodd- sen stendur á lóð hússins en styttan fylgir ekki með í kaupun- um. „Hún verður líklega í geymslu í vetur,“ segir Karl, „en henni verður valin nýr staður næsta vor.“ Húsið hefur verið metið á um áttatíu milljónir króna. „Við vitum að við fáum meira fyrir það,“ seg- ir Karl. - sgi F í t o n / S Í A F I 0 1 3 7 2 7 Vantar þig... YFIR 150.000 ÍSLENDINGAR LESA FRÉTTABLAÐIÐ AÐ MEÐALTALI Á HVERJUM DEGI. SMÁAUGLÝSING Í FRÉTTA- BLAÐINU ER ÓDÝR OG ÁHRIFARÍK LEIÐ SEM TRYGGIR MESTU HUGSANLEGU ÚTBREIÐSLU Á SKILABOÐUM ÞÍNUM. AUGLÝSINGIN ER AUK ÞESS BIRT ÞÉR AÐ KOSTNAÐARLAUSU Á VISIR.IS. PANTAÐU SMÁAUGLÝSINGAR Í SÍMA 550 5000 EÐA Á VISIR.IS. – smáauglýsingar sem allir sjá Heilsuverndarstö›in ver›ur sett í sölu Rá›gert er a› augl‡sa gömlu Heilsuverndarstö›ina til sölu innan tveggja vikna. Forstjóri Heilsugæslunnar, sem flar er til húsa, telur meira liggja á a› finna húsnæ›i fyrir mi›stö› heimahjúkrunar sem flarf a› flytja fyrir vori›. SKIPTING ÞINGSÆTA Samkvæmt könnun NRK og Dagbladet halda Verkamannaflokkurinn, Sósíalíski vinstriflokkurinn og Miðflokkurinn 88 þingsætum af 165. Fríkirkjuvegur 3 auglýstur til sölu: Borgin vill fá hundra› milljónir GUNNAR FER Í GEYMSLU Brjóstmynd af Gunnari Thoroddsen stendur á lóð hússins við Fríkirkjuveg 3. Styttan verður ekki seld með húsinu og verður í geymslu í vetur þangað til henni verður fundinn nýr staður að vori. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M AP, SV OG SP 88 sæti FRP 34 sætiRV, 2 sæti V-KRF-H 45 sæti Norsku ÞINGKOSNINGARNAR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.