Fréttablaðið - 06.09.2005, Page 16
„Börnin eru komin í skólann og lífið því að komast í fastar skorður á
ný eftir talsverðan losarabrag síðsumars,“ segir Helga Mölller söng-
kona og flugfreyja hjá Icelandair. Hún segir sumarið hafa verið ágætt
þótt það hafi haft sína galla eins og gengur. „Veðrið var nú ekkert
sérstakt og golflega séð var sumarið ekki of gott, í það minnsta ekki
framan af,“ segir hún en golfbakterían heltók Helgu fyrir sex árum.
„Ég er í Nesklúbbnum og spila úti á Nesi og svo á ég sumarhús við
Grindavík og spila talsvert þar. Annars spila ég bara úti um allt land
og allan heim.“ Helga hefur ferðast mikið í starfi sínu hjá Icelandair
og hin seinni ár tekur hún golfsettið með sér þegar stoppað er leng-
ur en í nokkrar klukkustundir.
Eflaust eru fæstir landsmenn farnir að huga að jólunum en Helga
Möller er ekki í þeim hópi. Jólahátíðin er enda annatími hjá henni.
„Ég syng mikið á aðventunni og eins og undanfarin jól verð ég á Hót-
el Loftleiðum,“ segir hún. „Ég er eiginlega orðin eins og réttur á jóla-
hlaðborðinu þar og einhverju sinni sagði Magnús Kjartansson að það
ætti að pakka mér niður með jólaskrautinu. Ég er hins vegar ekki
sammála því,“ segir Helga og hlær. Hún hefur haft talsvert að gera í
söngnum að undanförnu og söng meðal annars í fjölmörgum brúð-
kaupum í sumar.
16 6. september 2005 ÞRIÐJUDAGUR
fireifa sig áfram
í kolni›amyrkri
Reykkafarar slökkviliða leggja sig jafnan í mikla
hættu þegar þeir fara inn í brennandi hús sem er fullt
af hita, sóti og reyk. Á skömmum tíma þurfa þeir að
ganga úr skugga um að enginn sé í húsinu, finna elds-
upptök og hefja slökkvistarf. Líkamshiti reykkafara
getur hækkað um þrjár gráður.
„Við horfðum á húsið og reyndum
að ímynda okkur hvernig það er
að innan. Svo þreifuðum við okkur
áfram með höndum og fótum,“
segir Sverrir B. Björnsson
slökkviliðsmaður sem ásamt fé-
lögum sínum þurfti að kafa inn í
reykjarkófið í Fiskislóð 45 í morg-
unsárið á sunnudag.
Sverrir var ekki á vakt þegar
kallið kom heldur lá hann sofandi
í rúminu sínu. Fáum mínútum eft-
ir að síminn gall var hann kominn
inn í brennandi húsið.
Reykköfun er með því erfiðara
sem slökkviliðsmenn þurfa að
kljást við í störfum sínum enda
kolniðamyrkur og brennandi hiti.
Og hætturnar leynast víða. „Menn
geta dottið niður um göt í gólfum
eða um hluti sem standa í gang-
veginum,“ segir Valgarður
Sæmundsson slökkviliðsmaður en
þannig var einmitt umhorfs í
Fiskislóðinni.
Þrátt fyrir góðan útbúnað
slökkviliðsmanna segir hitinn
fljótt til sín í brennandi húsi og
líkamshiti reykkafara getur
hækkað um tvær til þrjár gráður
auk þess sem vökvatap er mikið.
Búningur og búnaður vega um 25
kíló og af þessu má sjá að
reykköfun kostar mikla orku.
Sagt er að hálf klukkustund í
reykfylltu húsi jafnist á við fjög-
urra tíma erfiðisvinnu. Hitinn
uppi við loft getur verið 1.000 til
1.500 gráður en niðri við gólf er
hann yfirleitt á bilinu 60 til 80
gráður. Og vart þarf að spyrja að
leikslokum ef eldtunga teygir sig
að slökkviliðsmanni.
„Þjálfun og reynsla er lykilat-
riði þegar reykköfun er annars
vegar,“ segir Valgarður og félagar
hans, Sverrir og Sigurjón Hend-
riksson, taka undir.
Eitt er að fikra sig áfram í þétt-
um reyknum, annað að vita ekki
hvað stendur í gangveginum – eða
yfirleitt vita hvert leiðin liggur.
Og alltaf er unnið í kapphlaupi við
tímann.
bjorn@frettabladid.is
„Þetta mikla mannfall og allur þessi
mikli skaði kemur mér mjög á óvart í
ljósi þess að Bandaríkjamenn segjast
alltaf vera mestir og bestir í öllu, þar
á meðal björgunaraðgerðum. Nú er
kannski að koma í ljós að þeir eru
ekki mestir og bestir,“ segir Guð-
mundur R. Gíslason, veitingamaður í
Egilsbúð í Neskaupstað og söngvari
hljómsveitarinnar Sú Ellen, spurður
um afstöðu hans til viðbragða
Bandaríkjastjórnar við fellibylnum
Katrínu.
Guðmundur segir að eflaust hefðu
Bandaríkjamenn gagnrýnt aðrar þjóð-
ir ef staða sem þessi hefði komið
upp annars staðar. „En kannski er
þetta meira en menn bjuggust við og
björgunarstarfið því ekki öflugra en
raun ber vitni,“ segir Guðmundur.
GUÐMUNDUR R. GÍSLASON
VEITINGAMAÐUR
Ekki mestir og bestir
VIÐBRÖGÐ BANDARÍKJASTJÓRN-
AR VIÐ FELLIBYLNUM KATRÍNU
SJÓNARHÓLL
Lífi› a› komast í fastar skor›ur á n‡
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? HELGA MÖLLER SÖNGKONA
nær og fjær
OR‹RÉTT„ “
Næsta útspil borgaryfir-
valda var tillaga Dags B.
Eggertsson um kaffihús í
Hljómskálagar›inum
„til a› hleypa lífi í
hann.“ fietta er merki-
legt flví Reykjavíkurlist-
inn hefur drepi› lífi› í
flessum gar›i me› um-
gengni sinni vi› hann.“
SIGRÍÐUR DÚNA KRISTMUNDS-
DÓTTIR, ÍBÚI VIÐ BJARKARGÖTU,
UM HLJÓMSKÁLAGARÐINN Í GREIN Í
MORGUNBLAÐINU.
„Ég er alveg viss um
a› ska›abótadómn-
um sem féll n‡lega í
Texas, eftir a› ma›ur
sem nota›i Vioxx lést,
ver›ur snúi› vi› í
Hæstarétti.“
MAGNÚS JÓHANNESSON, LÆKNIR
OG PRÓFESSOR, Í FRÉTTABLAÐINU
UM AUKAVERKANIR LYFJA OG
SKAÐABÓTAMÁL.
Eiginkonan og tveir þingmenn
fengu far til Siglufjarðar
Notaði flugvél
Flugmála-
stjórnar sem
einkaþotu
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R
ÞORSTANUM SVALAÐ Vökvatapið verð-
ur mikið eftir stuttan tíma í reykfylltu húsi.
RÝNT Í REYKINN Slökkviliðsmenn meta stöðuna á brunastað.
GULLIÐ GLÓIR Að loknum störfum í
Fiskislóð á sunnudagsmorgun.
DAGSLJÓS Slökkviliðsmaður gengur út úr reykjarkófinu.