Fréttablaðið - 06.09.2005, Blaðsíða 18
Frá því um helgina hafa orðið að
minnsta kosti fimm brunar í
Reykjavík og rökstuddur grunur
um íkveikju í fjórum þeirra. Ekki
er hægt að útiloka aðkomu
brennuvargs eða brennuvarga,
segir Hörður Jóhannesson, yfir-
lögregluþjónn í Reykjavík.
„Á Fiskislóð bendir margt til
þess að kveikt hafi verið í. Að
minnsta kosti var það svo í fyrra
skiptið að farið var þar inn og
kveikt í bíl. Í Melabúðinni voru
upptök eldsins í kyndikompu þar
sem geymdir eru pappakassar og
langlíklegast að einhver hafi
kveikt í þeim. Þar var hins vegar
lítil hætta því eldurinn var af-
markaður við kompuna. Svo var
maður handtekinn grunaður um
að kveikja í rusli í porti fyrir utan
Pravda, en hann var tekinn dauða-
drukkinn um það leyti og það mál
í skoðun,“ segir Hörður, en bætir
við að sá hafi verið í haldi lög-
reglu í gærmorgun þegar kvikn-
aði í öðru sinni á sama stað á
Fiskislóð. „Svo var líka bruni á
Freyjugötu, en þar var um að
ræða bilun í heimilistæki, en
vissulega þarf að skoða þetta
Fiskislóðarmál eitthvað. Þar er
engin starfsemi og engin sérstök
ástæða fyrir einhvern að vera
ráðast þar inn.“
Brennuvargar á ferð
Hörður segir sammerkt með elds-
voðunum við Fiskislóð, í Melabúð-
inni og við skemmtistaðinn
Pravda að það séu mál sem öll
komi upp seint að nóttu. „Þarna
gæti einhver eða einhverjir verið
á ferðinni sem kalla mætti
brennuvarga. Það er ekki hægt að
útloka það, en við erum að byrja
að skoða málin.“
Hörður segir rannsókn á
íkveikjum um margt erfiðari en
rannsókn annarra mála hjá lög-
reglu og komi þar aðallega tvennt
til. „Í fyrsta lagi að sanna eldsupp-
tökin. En það er bara ekki nóg, því
jafnvel þótt menn komist að þeir-
ri niðurstöðu að kveikt hafi verið
í, þá þarf líka að finna út hver
gæti hafa haft hag af íkveikjunni
og hver gæti svo hafa gert það.
Síðan þarf að sanna sjálfa íkveikj-
una.“ Á honum er þó að skilja að
menn vilji ekki útiloka að ein-
hvern tímann upplýsist um gaml-
ar íkveikjur. „Það voru nú sterkar
grunsemdir á Laugaveginum og
maður í gæsluvarðhaldi um tíma.
Alveg eins var það svo með
Fákafenið að þar tókst ekki með
óyggjandi hætti að sýna fram á
annan möguleika á eldsupptökum
heldur en íkveikju. Það kom hins
vegar aldrei botn í það hver það
hefði getað verið, eða hvaða hags-
muni hann hefði getað haft af því
að kveikja í þar,“ segir hann og
vísar með orðum sínum til tvegg-
ja stórra bruna sem áttu sér stað
árið 2002 og eru enn óupplýstir. Í
báðum tilvikum komst lögregla
að þeirri niðurstöðu að kveikt
hafi verið í.
Aðrir brunar óupplýstir
Þá eru einnig óupplýstir stórir
brunar úti á landi þar sem
lögregla telur nokkuð ljóst að
kveikt hafi verið í. Stærsta
málið er trúlega Ísfélags-
bruninn í Vestmannaeyjum í
desemberbyrjun 2000. Þar
nam tjón um milljarði króna
og á þriðja tug manna yfir-
heyrðir án þess þó
að nokkur
hafi beinlínis verið grunaður um
verknaðinn. Sömuleiðis hefur
ekki verið upplýst um hver var
valdur að eldsvoða í rækjuvinnsl-
unni Strýtu á Akureyri í júní-
byrjun 2001, en þar hljóp
tjón á tugum milljóna
króna. Rætt var um að
unglingar kynnu að hafa
kveikt í en aldrei neitt
sannað. Lögreglan á Akur-
eyri sagði rannsókn máls-
ins erfiða,
Athugasemdir hafa borist frá ESA,
Eftirlitstofnun EFTA, þar sem mein-
bugir eru taldir á því að breyta Ríkis-
útvarpinu í sameignarfélag. Davíð
Oddsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, svarar spurningum um
málið.
Hver er afstaða þín til að gera Rík-
isútvarpið að hlutafélagi? Ég heyrt
umræður um afleiðingar athuga-
semda frá Brüssel. Um að það fyrir-
komulag sem menn höfðu ætlað í
frumvarpinu um Ríkisútvarpið feli í
sér of mikil ríkisafskipti ef svo má
segja. Það er auðvitað svolítið flókið
að finna það að ekki megi vera með
ríkisafskipti af ríkisfyrirtækjum. Það
virðist nú vera þannig. Heimurinn er
flókinn.
Ertu þá hlynntur því að gera Ríkis-
útvarpið að hlutafélagi? Ég held nú
reyndar að það sé skynsamlegri leið
en sú sem við völdum í vor. Það er
erfitt að rökstyðja það að félag sé í
sameign sem er í einkaeign. Það er
að segja í eign eins aðila. Það er
hálfgert klúður.
DAVÍÐ ODDSSON
Skynsamlegra en
sameignarfélag
RÍKISÚTVARPIÐ EHF?
SPURT & SVARAÐ
18 6. september 2005 FIMMTUDAGUR
Athygli vakti þegar nýverið var kveðinn upp
sýknudómur yfir litháískum manni sem tek-
inn var í tolli á Keflavíkurflugvelli með tvær
áfengisflöskur sem innihéldu brennisteins-
sýru. Málið fékk skjóta afgreiðslu hjá Sýslu-
mannsembættinu í Keflavík og ákært var fyrir
innflutning efna til fíkniefnaframleiðslu. Höfð
voru stór orð um málið í fjölmiðlum og rætt
um fyrstu vísbendingu um tengsl erlendra
glæpasamtaka við innlenda fíkniefnafram-
leiðslu.
Hvað gerðist eiginlega?
Í dómnum sem upp var kveðinn í Héraðs-
dómi Reykjaness var sýslumaður gagnrýndur
fyrir að fara fram með málið án fullnægjandi
sönnunargagna. Mistök í verkbeiðni virðist
hafa orðið til þess að látið var hjá líða að
sanna að í flöskunum hafi verið brennisteins-
sýra. Einungis var beðið
um rannsókn með tilliti
til fíkniefna.
Þá var gagnrýnt að ekki
hafi farið fram rannsókn
á fullyrðingum Litháans
um að hann hafi í góðri
trú keypt flöskurnar
á útimarkaði í
Póllandi og
talið þær
inni-
halda
áfengi. Ekki voru lagðar fram upplýsingar úr
sakaskrá mannsins, eða kannað hvort væri
dýrara í Póllandi, brennisteinssýra eða brenni-
vín. Þá þótti ekki hrakin saga hans um ástar-
fund á Íslandi.
Af hverju var málið ekki rannsakað ytra?
Fram kom í máli sýslumanns eftir dóminn að
síðustu ár hafi dómstólar ekki lagt trúnað á
framburð burðardýra fíkniefna sem ekki hafa
viljað kannast við farm sinn. Ósvarað er hvort
þetta hafi valdið óþarfa værukærð hjá emb-
ættinu, þegar þeir voru komnir með mál sem
þeir töldu borðleggjandi að tengdist fíkni-
efnaframleiðslu. Eftir stendur að maðurinn
var sýknaður og að lög kveða á um að lög-
regla rannsaki alla þætti mála, jafnt til sýknu
eða sakfellingar grunaðra.
Var rannsóknarskyldu ekki sinnt?
FBL GREINING: SÝKNUDÓMUR Í BRENNISTEINSSÝRUMÁLI
fréttir og fró›leikur
SVONA ERUM VIÐ
FJÖLDI FÓLKS SEM GREINDIST MEÐ LIFRARBÓLGU B
Á ÁRUNUM 1997 TIL 2004
Heimild: HAGSTOFAN
ÓUPPLÝSTIR STÓRBRUNAR
ÞAR SEM GRUNUR LEIKUR
Á ÍKVEIKJU:
Desember 2000 – Ísfélagið, Vest-
mannaeyjum – tjón talið um milljarð-
ur króna
Júní 2001 – Rækjuvinnslan Strýta, Ak-
ureyri – tjón talið 80 til 100 milljónir
króna
Ágúst 2002 – Fákafen, Reykjavík –
tjón metið um 300 milljónir króna
Október 2002 – Laugavegur, Reykjavík
– tjón nálægt 200 milljónum króna
September 2004 – Votmúli, Blönduósi
– tjón metið á yfir 100 milljónir króna
LITHÁINN Maðurinn var sýknaður af ákæru um
innflutning á efni til fíkniefnaframleiðslu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
LI
RÚSTIR EFTIR BRUNA Á LAUGAVEGI HAUSTIÐ 2003 Um tíma var maður í haldi lögreglu vegna brunans á Laugavegi, en sannanir
voru ekki nægar á hendur honum til að málið færi lengra og telst því óupplýst hver var valdur að brunanum.
Erfitt a› rannsaka íkveikjur
Lögreglan í Reykjavík leitar brennuvargs e›a -varga, eftir a› kveikt var í fjórum sinnum um helgina, flar af
tvisvar á sama sta› me› sólarhrings millibili. Íkveikjumál eru fló flung í rannsókn og nokkur stór hafa kom-
i› upp sí›ustu ár sem eru enn flá óuppl‡st.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
S
.JÖ
KU
L
ÁR FJÖLDI FÓLKS
1997 21
1998 15
1999 45
2000 49
2001 61
2002 39
2003 23
2004 39