Fréttablaðið - 06.09.2005, Qupperneq 19
ORMAR
Sníkjudýr geta nýst gegn
ofnæmi. BLS 3
[ ÞEMABRÚÐKAUPHvernig væri að gifta sig í
anda Friends? BLS 6
]
SMÁAUGLÝSINGAR
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Góðan dag!
Í dag er þriðjudagur 6. september,
249. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 6.24 13.26 20.26
AKUREYRI 6.05 13.11 20.15
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Katla Margrét Þorgeirsdóttir leikkona
er ein af Stelpunum á Stöð tvö. Hún er
að eigin sögn ekki mikil líkamsrækt-
arstelpa en tekur tarnir í ræktinni og
á hjólinu milli þess sem hún er límd
við bílinn.
„Ég gerði ekkert í sumar nema hjóla
stundum en nú er ég að byrja aftur í
ræktinni,“ segir Katla. Eins og hjá mörg-
um dettur líkamsræktardugnaður hennar
niður milli þess sem hún fer reglulega í
leikfimi. Spurð um hvað hún geri helst í
líkamsræktarstöðvunum segir Katla að
hún skemmti sér ekki svo vel í tækjasaln-
um. „Mér finnst bara gott að fara í góðan
þrektíma og taka vel á því.“
Katla fær líka dálítið út úr því að setj-
ast á bak hjóli sínu. „Ég hjóla bæði mér
til ánægju og líka til að komast á milli
staða,“ segir hún, en bætir við að það fari
eftir skapinu hverju sinni hvort hún
nenni að nota hjólið til að komast milli
staða. „Ég er kannski límd við bílinn í
einhverja mánuði og svo fer ég aftur að
hjóla.“
Þegar maður vinnur sem leikari er
kannski ekki svo nauðsynlegt að vera í
reglulegri líkamsrækt. Katla jánkar því
að í leikarastarfinu felist í raun mikil lík-
amsrækt. „Það fer rosaleg orka í að sýna
kannski þrisvar til fjórum sinnum í viku.
Þótt þú sért ekki á harðaspretti inni á
sviðinu allan tímann þá ertu samt að nota
mikla orku í þetta,“ segir hún.
Katla lætur ekki hvað sem er ofan í sig
og tekur vítamín til að halda líkamanum
góðum. Hún er vön að drekka aloa vera-
drykk á hverjum morgni og finnst það
gera sér mjög gott. Hún drekkur heldur
ekki kaffi – hefur eiginlega gefist upp á
því og drekkur grænt te í staðinn. „Ég
hef drukkið það í þrjú ár og líður miklu
betur. Þegar maður er undir miklu álagi
kemur kaffið ekki sterkt inn. Þá er betra
að drekka eitthvað róandi.“ ■
Hjólar, s‡nir og
drekkur aloa vera
Fellibylurinn Katrín skilur eftir
sig mikla eyðileggingu og nú
hafa menn verulegar áhyggjur af
því að sjúkdómar kunni að
breiðast út á svæðunum sem
verst urðu úti. Ýmsar bakteríur
ná að grassera við aðstæður
sem þessar og smitsjúkdómar
eru fljótir að berast. Þá hafa flóð-
in einnig mengað drykkjarvatn
og uppskeru.
Kóleru-faraldur er að breiðast
út í Vestur-Afríku. Sameinuðu
þjóðirnar hafa gefið út formlega
viðvörun og reyna nú að bregð-
ast við af mætti við faraldirnum.
Enn sem komið er hefur Gínea-
Bissá orðið verst úti. Þar voru
9.047 tilfelli verið tilkynnt í júní,
júlí og ágúst. Þar sem mikið hef-
ur ringt í Vestur-Afríku uppi á
síðkastið má búast við að farald-
urinn berist til Nígeríu, Kamerún
og Tsjad.
Brúðarkjólaleiga Katrínar hefur
boðið upp á skemmtilegan af-
mælisleik fyrir brúðhjón í sumar.
Leikurinn er þannig uppbyggður
að þeir viðskiptavinir sem leigja
eða kaupa brúðar-
kjól og ætla að gifta
sig á árinu fara í
lukkupott. Dregið er
á tveggja mánaða
fresti og eru vinn-
ingarnir veglegir,
til dæmis leik-
húsmiðar og gjafa-
kort frá fyrirtækjum. Í síðasta út-
drætti ársins verður dregið um
ferðavinning til Evrópu sem er
ekki amalegur glaðningur fyrir
nýgift par.
Brúðkaupsferðir eru alltaf vin-
sælar. Nú hefur færst í aukana
að brúðhjón kjósi að fara saman
í ævintýraferð til framandi slóða
í stað hefðbundinna brúðar-
ferða. Ýmsir aðilar bjóða upp á
skemmtilegar ævintýraferðir sem
henta vel fyrir brúðhjón. Hjá
Ferðaskrifstofu stúdenta er hægt
að fá ýmsar upplýsingar um æv-
intýraferðir og þá hefur ferða-
skrifstofan Embla líka verið dug-
leg við að bjóða upp á spenn-
andi lúxusferðir til spennandi
staða sem henta brúðhjónum
vel.
Hjólið er Kötlu kært og á því ferðast hún sér til ánægju og nytsemdar.
KRÍLIN
Allar hugsanirnar
sem maður er búinn
að hugsa fljúga upp
í loftið og verða
að skýjum!
SMÁAUGLÝSINGAR
SÍMI: 550 5000
ÞÚ GETUR PANTAÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
Á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
LIGGUR Í LOFTINU
[ HEILSA - BRÚÐKAUP ]