Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.09.2005, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 06.09.2005, Qupperneq 20
Passaðu liðina Liðirnir eru viðkvæm svæði sem gera okkur kleift að hreyfa okkur. Skemmdir liðir lagast ekki og því er mjög nauðsynlegt að reyna ekki á þá ef þeir eru veikir fyrir. Ekki má horfa fram hjá því ef mann verkjar í liðina heldur binda um þá og hjúkra þeim.[ ] Opið virka daga kl. 10-20 laugardaga kl. 10-17 Plokkfiskur 650 kr. / kg Fiskbúðin Álfheimum Fiskbúðin Reykjavíkurvegi Álfheimum 4 Reykjavíkurvegi 68 553 8090 564 2783 Rope Yoga - Ármúla 44 Kennsla hefst fimmtudaginn 8. september Kennari Emma Bjarnadóttir. Nánari upplýsingar á www.eger.is. Skráning í síma 8602173 og á info@eger.is Rope Yoga • Ármúli 44, 3 hæð • 108 Reykjavík Opið 8-24 alla daga í Lágmúla og Smáratorgi Gefa uppl‡singar um heilsugæslu Hjúkrunarfræðingarnir Hrönn Håkansson og Stefanía Guð- bergsdóttir svara þeim sem hringja í 1700 og leita eftir úr- ræðum innan heilbrigðis- kerfisins. Upplýsingamiðstöð heilsugæsl- unnar á höfuðborgarsvæðinu var opnuð í byrjun maí og hefur hún símanúmerið 1700. Tveir hjúkrunarfræðingar svara í símann frá 8 til 17 á virkum dög- um og veita ráðgjöf um almenn úrræði í heilbrigðiskerfinu, vegna veikinda, forvarna og réttinda sjúklinga. Þetta eru hjúkrunarfræðingarnir Hrönn Håkansson og Stefanía Guð- bergsdóttir og þegar stund gefst frá skyldustörfunum veita þær Fréttablaðinu fúslega viðtal um þjónustuna. „Það er mjög sveiflukennt hversu mikið er að gera,“ segja þær. „Stundum kemur hvert símtalið á fætur öðru og í annan tíma koma eyð- ur.“ Þær segja einkum hringt í þær ef um veikindi er að ræða. „Fólk er að leita ráða. Oft vill það fá aðstoð við að taka ákvörð- un um hvort það eigi að fara til læknis eða ekki og margir hringja fyrir aðra, foreldra sína, börnin sín eða maka. Svo er ann- ar hópur sem hringir af því hann veit ekki hvert hann á að leita með sín mál innan heilbrigðis- kerfisins. Við höfum góð tengsl og aðstöðu til að finna út úr hlut- unum fyrir fólk.“ Báðar hafa þær Hrönn og Stefanía unnið innan heilsugæsl- unnar áður og Hrönn einnig á barnadeild. Spurningu um hvort þær hafi bjargað mannslífum með upplýsingaþjónustunni vilja þær hvorki játa né neita, en leggja áherslu á að þetta sé ekki neyðarlína. „Við getum hinsveg- ar hjálpað fólki að taka ákvörð- un um það hvort það þurfi að hringja í neyðarlínuna ef það er ekki visst,“ segja þær og taka líka fram að þjónustan sé ókeyp- is fyrir utan símakostnaðinn. Stefanía og Hrönn hafa reynslu af störfum á heilsugæslu og barnadeild. Reykingar } Láttu starfsfólkið hætta að reykja REYKLAUSIR STARFSMENN ERU VERÐMÆTARI. Reykingar á vinnustöðum eru mikið vandamál enda hafa rann- sóknir sýnt að reykjandi starfsfólk nýtist verr en reyklausir. Þess vegna býður Liðsinni-Sólarplexus upp á námskeið sem er sniðið að þörfum fyrirtækja sem vilja lækka hlutfall reykjandi einstaklinga innan þess. Námskeiðin eru þrír og hálfur til fimm mánuðir að lengd og er skipt upp í þrjá áfanga. Sá fyrsti er undir- búningur þar sem heilsufarskönnun fer meðal annars fram. Þá tekur við námskeið á vinnustaðnum þar sem er einn fundur í viku í sex til tólf vik- ur. Að því loknu er eftirfylgni í sex vikur þar sem hjúkrunarfræðingur hringir vikulega í þátttakanda og hvetur hann áfram.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.