Fréttablaðið - 06.09.2005, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 06.09.2005, Blaðsíða 24
[ ] Allir vilja a› athöfnin sé falleg Gunnar Gunnarsson organisti hefur leikið brúðarmarsana tvo oftar en hann getur mögulega rifjað upp. Gunnar Gunnarsson, organisti í Laugarneskirkju, hefur leikið við fleiri brúðkaup en hann getur mögulega rifjað upp í fljótu bragði. Flestir eiga erfitt með að hugsa sér kirkjubrúðkaup án þess að brúðarmarsinn sé leikinn á orgel þannig að undir taki í kirkjunni. Gunnar Gunnarsson, organisti í Laugarneskirkju, hefur leikið þessa tvo hefðbundnu brúðar- marsa, marsinn úr Lohengrin eft- ir Wagner í upphafinu og Mendel- son í lokin, oftar en hann getur mögulega rifjað upp. Svo hefur hann leikið kynstrin öll af öðrum lögum líka enda einn færasti pí- anóleikari landsins. Hvert brúð- kaup er þó sérstakt og hann á erfitt með að benda á einhver lög sem ganga eins og rauður þráður gegnum brúðkaup landsins. „Það er rosalega erfitt að benda á eitt lag eða tvö sem eru vinsælli en önnur, en það sem ég hef mest spilað er brúðarsálmur númer 263, Vor guð í Jesú nafni nú,“ segir Gunnar. „Mér finnst eðlilegt að kirkjutónlistin fari með eitthvert hlutverk í kirkju- legum athöfnum, fólk er að sækja ákveðna þjónustu af kirkj- unni og sumir prestar vilja gjarna hafa í það minnsta einn sálm í athöfninni. En við erum líka að koma til móts við fólk og þjóna því.“ Gunnar segist spila mest ást- arlög enda séu brúðkaup frekar eðlilegur staður til að syngja um ástina. „Ýmis dægurlög eru al- geng, til dæmis Kannski er ástin sem þeir Eyjólfur Kristjánsson og Bergþór Pálsson gerðu vin- sælt fyrir mörgum árum. Ást með Ragnheiði Gröndal er vin- sælt núna, en það hefur frekar trúarlegan undirtón og á vel við kirkjuathafnir.“ Gunnar segir starf organist- ans vera svolítið eins og tónlistar- stjóra, hann þurfi að spila á pí- anó, útsetja fyrir kór og strengi og ýmislegt í þeim dúr. „Fólk er oftast mjög smekkvíst og ég hef aldrei lent í því að þurfa að neita lagi vegna þess að það var óvið- eigandi.“ Hann neitar því þó ekki að tískubólur komi og fari. „Það hefur verið smátískubóla að spila kvikmyndastef sem útgöngulag en ef fólk hefur heyrt kraftinn í Mendelson-útgöngumarsinum þá bliknar flest annað. Stundum hef ég fengið óskir um að það sé bara djass eða bara klassík spiluð í brúðkaupinu. Ég reyni að gera það sem brúðhjónin biðja um, en því er alltaf vel tekið ef ég kynni aðrar hugmyndir fyrir þeim. All- ir vilja auðvitað að athöfnin sé falleg.“ Það færist í vöxt að brúðkaup séu haldin með einhverja ákveðna grunnhugmynd eða „þema“ að leið- arljósi. Þannig eru brúðhjónin kannski klædd í kántríföt og farið fram á að gestirnir klæðist í þeim stíl líka, veislan haldin í hlöðu og dans- aður línudans fram eftir nóttu. Hug- myndir að þemabrúðkaupum eru óþrjótandi og hér eru nokkrar sem ekki ætti að vera of flókið að gera að raunveruleika. Friends Brúðhjónin eru klædd eftir langnýj- ustu tísku. Besti vinur þeirra giftir þau og heldur langa ræðu um að gefa og þiggja, skipta með sér og elskast. Brúðguminn segir vitlaust nafn við altarið, helst nafn gamallar kærustu sem er einmitt stödd í kirkj- unni. Brúðurin lokar sig inni á klósetti og skríður út um gluggann. Lag: I'll be there for you Veitingar: Pitsa, brúð- arflan og kjúklinga- bringur. Tóga Allir gestirnir mæta í hvítum lökum og brúðurin og brúðguminn líka. Þau eru hins vegar eina fólkið með lár- viðarkransa. Skemmtiatriðin eru magadans, eldgleypar og dansandi geitur. Gjarna má athuga hvort gælu- dýr eða eftirlætis hestur getur fram- kvæmt athöfnina. Lag: That's amore Veitingar: Innbakaðir gíraffahálsliðir með hunangi, einn obbolítill villigölt- ur og auðvitað vínber eins og hver getur í sig látið. Hryllingsmyndir Brúðurin er með hvítar rendur í hár- inu og brúðguminn með skrúfu á hálsinum. Drakúla greifi leikur á org- elið og Varúlfakórinn spangólar brúð- armarsana. Allir gestirnir koma sem uppáhalds hryllingsmyndahetjan sín og taka eitt tíðhnitið enn. Lag: Damn it Janet og öll hin lög- in úr Rocky Horror Picture Show Veitingar: Grilluð innyfli, lifrar- kæfa, rauðvín, blóðmör. Brúðkaup sem bragð er að ÞEMABRÚÐKAUP FÆRAST Í VÖXT OG HÉR ERU NOKKRAR AÐFERÐIR TIL ÞESS AÐ GERA BRÚÐKAUPIÐ ENN EFTIRMINNILEGRA. Ekki sulla! Ekkert er meira svekkjandi en að sulla niður á skjannahvít brúðarklæðin. Það getur jafnvel verið best að sleppa því að borða mat í fljótandi formi þangað til eftir athöfnina og drekka litaðan vökva með röri.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.