Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.09.2005, Qupperneq 31

Fréttablaðið - 06.09.2005, Qupperneq 31
ÞRIÐJUDAGUR 6. september 2005 19 þar sem hvorki hafi verið á vett- vangi ummerki sem gæfu vís- bendingar um hver, eða hverjir gætu hafa verið þar á ferð, né heldur hafi verið nokkur vitni af atburðum. Á Blönduósi er svo enn óupp- lýstur bruni Votmúla, atvinnuhús- næðis sem brann til kaldra kola aðfaranótt þriðjudagsins 28. sept- ember í fyrra. Ummerki á vett- vangi bentu sterklega til þess að kveikt hafi verið í, en eldurinn kom upp í skilrúmi milli matvæla- verksmiðjunnar Vilkó og pakk- húss kaupfélagsins. Rannsókn lögreglu leiddi í ljós að kveikifim- um vökna hafði verið skvett upp um veggi hússins, en Votmúli brann nánast til kaldra kola. Tjón í þeim bruna var talið nema yfir hundrað milljónum króna. Skífan Laugavegi 26 opið alla daga til 22 • Skífan Smáralind • Skífan Kringlunni • www.skifan.is ...skemmtir þér ; ) PSP VÉLIN ER KOMIN Skífan kynnir byltingu í afþreyingu Lifðu í þínum heimi. Spilaðu í okkar. Medievil World Tour Soccer Everybody’s Golf Gran Prix Fired Up Ridge Racer Wipeout Pure Leikir. Kvikmyndir. Tónlist. Ljósmyndir. PlayStation Portable. www.yourpsp.com Í VERSLANIR SKÍFUNNAR! Frítt niðurhal að verðmæti fylgir hverri PSP-vél TONLIST.IS 999 kr. Skráðu vélina þína á www.yourpsp.com og fáðu senda myndina Spiderman 2. ÓLI KRISTJÁN ÁRMANNSSON olikr@frettabladid.is FRÉTTASKÝRING SLÖKKVISTARF VIÐ KLAPPARSTÍG Seinni partinn á sunnudag varð vegfarandi var við að kviknað hafði í skemmtistaðn- um Sirkus við Klapparstíg í Reykjavík. Um nóttina var svo kveikt í ruslageymslu við skemmtistaðinn Pravda í Lækjargötu og um morguninn logaði í annað sinn á sólar- hring í iðnaðarhúsnæði við Fiskislóð. Skráaskipti gerð útlæg í Ástralíu: Slegi› á fingur Kazaa UPPLÝSINGATÆKNI Eigendum Kazaa hefur verið gert að breyta forriti sínu til að koma í veg fyrir höf- undarréttarbrot, en Kazaa er eitt vinsælasta skráaskiptaforrit heims. Fjallað var um dóminn á öllum helstu tæknivefjum heims- ins í gær. Dómstóll í New South Wales í Ástralíu kvað í gær upp þann dóm að Kazaa bryti í bága við áströlsk höfundarréttarlög og fékk Sharm- an Networks, sem á Kazaa og er með rekstur sinn í Ástralíu, tveg- gja mánaða frest til að gera við- eigandi breytingar. Talsmenn tón- listarframleiðenda og samtök höf- undarrétthafa hafa fagnað dómn- um og kalla hann sigur sem hafi áhrif um heim allan. Óvíst er þó um áhrif dómsins, því fólk sem skiptist á skrám á netinu notast einnig við fjölda annarra forrita. Í dómnum segir að honum sé ekki beint gegn tækninni, heldur til verndar höfundarrétti og komst að þeirri niðurstöðu að Sharman Networks hefði ekki á nokkurn hátt reynt að sporna við ólöglegri notkun forritsins, þrátt fyrir að á vef fyrirtækisins séu auglýsingar þar sem notendur Kazaa eru beðnir um að deila ekki með sér höfundarréttarvörðu efni. - óká MARY STILL LÖGFRÆÐINGUR KAZAA Lögmaður skráaskiptanetsins Kazaa ræðir við blaðamenn fyrir utan dómstólinn í New South Wales í Ástralíu, eftir að dómurinn komst að raun um að Kazaa-forritið væri brotlegt við höfundarréttarlög í landinu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.