Fréttablaðið - 06.09.2005, Page 33

Fréttablaðið - 06.09.2005, Page 33
21ÞRIÐJUDAGUR 6. september 2005 „Við lítum svo á að við séum að kaupa grunn, sem hægt er að bæta ofan á, stækka og gera mjög verðmætan,“ sagði Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbank- ans, þegar hann kynnti kaup bankans á verðbréfafyrirtækinu Kepler Equities í París í gær. Til að byrja með kaupir Lands- bankinn 81 prósent í fyrirtækinu á 5,8 milljarða króna, en mun eignast afganginn af hlutabréf- unum á næstu fimm árum. Verð- mæti Kepler miðað við kaupverð- ið er um 7,2 milljarðar króna og eigið fé tæpar 60 milljónir evra. Áætlar Landsbankinn að tekjur Kepler á næsta ári verði 7,2 millj- arðar og hagnaður 615 milljónir. Kepler er hefðbundið verð- bréfafyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu og miðlun hlutabréfa til fag- fjárfesta. Greining fyrirtækja er einnig viðamikill þáttur í rekstr- inum. Félagið er með höfuðstöðv- ar í París auk starfsemi í Amsterdam, Frankfurt, Madríd, Mílanó, París og Zürich. Hjá því vinna 241 starfsmaður. Um 40 prósent tekna verða til í Frakk- landi. Seljendur hlutabréfanna eru bandaríska fjárfestingarfyrir- tækið Lightyear og svissneski bankinn Julius Bär. Starfsmenn eiga 25 prósent í fyrirtækinu en selja einungis sex prósent til að byrja með. Í máli bankastjóranna, Halldórs J. Kristjánssonar og Sigurjóns, kom fram að starf- semi Kepler falli mjög vel að Landsbankanum. Sögðu þeir meðal annars hægt að bjóða við- skiptavinum Kepler fyrirtækja- ráðgjöf, fjármálaþjónustu og lán til viðbótar við núverandi þjón- ustu. bjorgvin@frettabladid.is Umsjón: nánar á visir.is MESTA HÆKKUN ICEX-15 4.665,96 Fjöldi viðskipta: 340 Velta: 1.856 milljónir +0,56% MESTA LÆKKUN Actavis 41,30 +0,00% ... Bakkavör 43,70 +0,23%... Burðarás 18,20 +1,68% ... FL Group 15,10 -0,66% ... Flaga 4,00 -0,74% ... HB Grandi 9,00 +0,00% ... Íslandsbanki 15,20 +0,00% ... Jarðboranir 20,50 -0,97% ... KB banki 600,00 +0,67% ... Kögun 56,40 +0,53% ... Landsbankinn 23,00 +1,77% ... Marel 62,80 +0,00% ... SÍF 4,80 -0,62% ...Straumur 13,25 +0,00% ... Össur 87,50 -0,57% Og Vodafone +1,89% Landsbankinn +1,77% Burðarás +1,68% Jarðboranir -0,97% Flaga -0,74% Fl Group -0,66% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf ] Íslenskir fjárfestar undir forystu Sverris Berg Steinarssonar, fyrr- verandi forstjóra Dags Group, eiga í viðræðum um kaup á dönsku raftækjakeðjunni Merlin af danska fyrirtækinu FDP. Sverrir vildi ekki tjá sig um þessi kaup að öðru leyti en því að hann ásamt hópi fjárfesta væru að skoða fyrirtækin. Kaupin munu ekki vera frágengin. Hann vildi að svo stöddu ekki gefa upp hvaða fjárfestar yrðu með honum í kaupunum ef af þeim yrði. Samkvæmt heimildum er þó líklegast að Baugur muni koma að þessum kaupum og hugsanlega Milestone sem er í eigu Karls Wernerssonar og Róbert Melax, eigandi Dags Group. Milestone hefur verið að hasla sér völl í fjár- festingum og var aðili að kaupum á Iceland-keðjunni, auk þess sem félagið fjárfesti nýlega í ilm- vatnsdreifingarfyrirtæki í Bret- landi. Rekstur Merlin hefur gengið illa að undanförnu og var tap síð- asta árs 1,3 milljarðar króna. Merlin er þekkt vörumerki í raf- tækjum og þvottavélum en hefur ekki gengið vel í samkeppni á markaði. Þeir þykja seinir til nýj- unga og ætlun Íslendinganna verði af kaupum er að færa búð- irnar í nútímalegra horf. Íslensku fjárfestarnir hafa komið að rekstri BT-verslananna á Íslandi og hyggjast nýta sér þá þekkingu við uppbyggingu Merlin-verslan- anna sem eru margar hverjar vel staðsettar í Danmörku. - hh Kaupa evrópskt ver›bréfafyrirtæki Landsbankinn hefur keypt ver›bréfafyrirtæki› Kepler í París fyrir 7,2 milljar›a króna. Kepler er me› starfsstö›var í sjö Evrópulöndum. Halldór J. Kristjánsson, Sigurjón Árnason, Stéphane Michel og Arnaud Michel eftir undirrit- un samninga um kaup Landsbankans á Kepler. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B JÖ RG VI N Mazda fer til Brimborgar Brimborg tekur vi› Mazda-umbo›inu af Ræsi. Brimborg hefur fengið umboð fyrir Mazda-bifreiðar. Ræsir var fyrir með umboðið, en þetta er annað umboð fyrirtækisins sem fer til annarra bílainnflytjenda. Askja tók við Benz-umboðinu fyrr á þessu ári. Kostnaður við uppbyggingu Brimborgar á nýju umboði Mazda er áætlaður rúmur hálfur millj- arður króna við húsnæði og lóð, birgðir bíla og varahluta og fjár- festingu í tækjabúnaði og þjálfun starfsmanna. Brimborg tekur formlega við sem umboðsaðili Mazda á Íslandi 1. október næst- komandi. - hh Mikill halli á vöruskiptum Halli á vöruskiptum við útlönd nam 65 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins samanborið við 33 milljarða halla á sama tíma í fyrra. Hallinn er í samræmi við spár þess efnis að methalli verði á vöruskiptum í ár. Hagstofan mun í næstu viku birta tölur um lands- framleiðslu og mun þá verða ljóst hvert hlutfall hallans er af lands- framleiðslu. Þensla á fasteigna- markaði, stóriðjuframkvæmdir og mikil einkaneysla eru helstu ástæður viðskiptahallans. - hh Baugur me› í Merlin-kaupum Fyrrverandi forstjóri Dags Group fer fyrir hópi fjárfesta sem á í vi›ræ›um um kaup á danskri raftækjake›ju. MIKILL TAPREKSTUR Verslanir raftækjaverslunarkeðjunnar Merlin þykja vel staðsettar en reksturinn gengur illa. Íslenskir fjárfestar hyggjast freista þess að snúa við rekstri keðjunnar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /K R IS TJ ÁN S IG U R JÓ N SS O N

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.