Fréttablaðið - 06.09.2005, Side 34
„Ég var í svo mörgum hlutverkum
að þetta var eins og margar vikur
og mánuðir í lífi einnar mann-
eskju,“ segir Ása Björk Ólafsdótt-
ir guðfræðingur, en sunnudagur-
inn var stór dagur í lífi hennar.
Fyrir utan það að vera vígð til
prests ásamt tveimur öðrum kon-
um var hún sett í embætti annars
prests Fríkirkjusafnaðarins í
Reykjavík. Hún hélt sína jómfrúr-
predikun og kom síðan öllum á
óvart með því að giftast unnusta
sínum Óskari Þórissyni.
„Börnin okkar vissu þetta sam-
dægurs,“ segir Ása Björk glað-
lega, en þau eiga fjögur börn frá
fyrri samböndum. „Ekkert for-
eldra okkar vissi þetta og ég held
að mamma hafi komið mest af
fjöllum,“ segir Ása Björk hlæj-
andi, en hún hefur ásamt móður
sinni aðstoðað við undirbúning
brúðkaups systur sinnar sem ætl-
ar að gifta sig í París eftir rúma
viku. „Þannig að það var enginn
að hugsa um okkur,“ segir hún
kímin.
Um nítíu safnaðargestir mættu
til veislu eftir athöfnina en kven-
félagið hafði, að sögn Ásu, skipu-
lagt glæsilegt messukaffi. Auk
þess hafði Ása ásamt svarakonu
sinni laumast til að búa til kransa-
köku daginn áður. Mikil stemning
myndaðist í veislunni enda steig
hljómsveitin Taugadeildin á svið,
en það er gömul pönkgrúppa sem
maður Ásu syngur í. „Það má kall-
ast ansi frjálslynd kirkja sem
hefur pönkhljómsveit í messu-
kaffi,“ segir Ása Björk hlæjandi,
en dansinn dunaði í veislunni.
Ásu Björk finnst yndislegt að
safnaðarfélagar séu gerðir virkir
þátttakendur. Hjá Fríkirkjunni
tíðkast til dæmis að bæði skírnir og
fermingar séu gerðar í almennri
messu og því þótti henni viðeigandi
að bjóða öllum söfnuðinum í brúð-
kaup sitt með sama hætti.
Hveitibrauðsdögunum munu
þau Ása Björk og Óskar verja í
París þangað sem þau fara í brúð-
kaup systur hennar. „Við pöntuð-
um okkur hótel og ætlum að hafa
þetta svolítið notalegt,“ segir Ása
Björk og hlær smitandi hlátri.
22 6. september 2005 ÞRIÐJUDAGUR
AKIRA KUROSAWA(1910-1998)
lést þennan dag.
ÁSA BJÖRK ÓLAFSDÓTTIR VAR VÍGÐ TIL PRESTS, SETT Í EMBÆTTI OG GIFT SAMA DAG
Spilað Pönk í messukaffinu
„Í brjáluðum heimi eru aðeins þeir brjáluðu
heilir á geði.“
Akira Kurosawa var þekktur japanskur kvikmyndaleikstjóri.
timamot@frettabladid.is
Á þessum degi árið 1965 réðust indverskir her-
menn inn í Vestur-Pakistan. Indversk yfirvöld sögðu
að árásin væri til að fyrirbyggja árás Pakistana á
Indland. Þótt stöku skærur hefðu átt sér stað þar í
gegnum tíðina var fyrsta opinbera stríðsaðgerðin á
svæðinu, síðan svokölluðu friðarbelti var komið
upp milli Indlands og Pakistan, árið 1949. Styrinn
stóð að mestu um yfirráð í héraðinu Kasmír.
Pakistanar svöruðu í sömu mynt og bardagar stóðu
næstu þrjár vikurnar þar til Sameinuðu þjóðirnar
komu á vopnahléi. Í janúar árið 1966 undirrituðu
indversk og vestur-pakistönsk yfirvöld samkomulag
um að leysa deiluna friðsamlega og draga herafla
sinn til baka. Pakistanar héldu því stjórn yfir þriðj-
ungi Kasmír í norðri en Indverjar höfðu tögl og
hagldir í suður- og austurhluta héraðsins.
Deilan hefur þó fráleitt verið til lykta leidd og tog-
streita milli ríkj-
anna er mikil
vegna þessa.
Árið 1989 gerðu
íbúar Kasmír
uppreisn gegn
Indverjum.
Pakistanar
studdu upp-
reisnarmenn
sem leiddi til enn frekari spennu milli landanna.
Margar uppreisnir voru gerðar á tíunda áratugnum
og árið 1999 var allt við suðupunkt þegar indverski
herinn gerði loftárásir á uppreisnarmenn sem
studdir voru af Pakistönum.
Yfirvöld ríkjanna tóku upp friðsamlegar samninga-
umleitanir fyrir ári, en enn er langt í land.
ÞETTA GERÐIST > 6. SEPTEMBER 1965 MERKISATBURÐIR
Indverjar rá›ast inn í Vestur-Pakistan
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
Maren Níelsdóttir Kiernan
lést á dvalarheimilinu Hrafnistu Reykjavík, föstudaginn
26. ágúst. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 7. september kl. 15.00.
Edward, Erla, Elsa, Stella, Jóhann, Victor Pétur, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
Hafdís Matthíasdóttir
Leirubakka 14, Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum laugardaginn 3. september.
Jarðarförin auglýst síðar.
Bjarki Friðgeirsson
Friðgeir Bjarkason Ingibjörg Zoëga
Ísabella Björk Bjarkadóttir Reynir Þorsteinsson
Viktor Elvar Bjarkason
Magnús Bjarkason Þorbjörg Traustadóttir.
og barnabörn.
Kærar þakkir færum við öllum þeim, sem auðsýndu
okkur vinarhug við andlát og útför sonar míns,
bróður, mágs og föðurbróður,
Þorsteins Gylfasonar
prófessors
Guðrún Vilmundardóttir
Þorvaldur Gylfason og Anna Karitas Bjarnadóttir
Guðrún Vilmundardóttir og Gunnlaugur Torfi Stefánsson
Baldur Hrafn Vilmundarson
Gylfi Þorsteinn og Eyja Sigríður Gunnlaugsbörn.
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Ólafur Ragnar Karlsson
málarameistari, Núpalind 8, Kópavogi,
lést á Landakotsspítala aðfaranótt sunnudagsins 4. september.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hrefna Einarsdóttir.
Móðir okkar
Inga Hanna Ólafsdóttir
Kópavogsbraut 86, Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð laugardaginn 3. september sl.
Hulda Björg Sigurðardóttir
Haukur Sigurðsson
Anna Margrét Sigurðardóttir
Ólafur Atli Sigurðsson
og fjölskyldur
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Fjóla Baldvinsdóttir
síðast til heimilis að Hornbrekku, Ólafsfirði,
lést föstudaginn 2. september.
Útför hennar fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn
10. september kl. 14.00.
Guðni Ólafsson Ásdís Pálmadóttir
Ægir Ólafsson Guðný Ágústsdóttir
Sigurður Ólafsson Áslaug Sigurjónsdóttir
Jóakim Ólafsson Sæbjörg Ágústsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn www.steinsmidjan.is
PRESTUR Í HJÓNABAND Sunnudagurinn var viðburðaríkur í lífi Ásu Bjarkar Ólafsdóttur.
Hún var vígð til prests, sett í embætti sem annar prestur Fríkirkjunnar í Reykjavík og kom
svo öllum á óvart með því að ganga að eiga unnusta sinn, Óskar Þórisson.
ANDLÁT
Hafdís Matthíasdóttir, Leirubakka 14,
Reykjavík, andaðist á Landspítalanum
laugardaginn 3. september.
Ólafur Ragnar Karlsson málarameistari,
Núpalind 8, Kópavogi, lést á Landakots-
spítala sunnudaginn 4. september.
Helga Eiríksdóttir Eskihlíð 14a, Reykja-
vík, lést á Landspítalanum í Fossvogi
laugardaginn 3. september.
Margrét Gísladóttir Hólmgarði 12,
Reykjavík, lést á Landspítalanum í Foss-
vogi 3. september.
JAR‹ARFARIR
11.00 Þyri Þorláksdóttir Myers verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni í
Reykjavík.
13.00 Unnur Einarsdóttir, Nesbala 70,
Seltjarnarnesi, verður jarðsungin
frá Dómkirkjunni í Reykjavík.
14.00 Halldóra Ólafsdóttir frá Mýrar-
húsum, Akranesi, síðast til heimil-
is á Dvalarheimilinu Höfða, verður
jarðsungin frá Akraneskirkju.
14.00 Þorsteinn Lúðvík Þorsteinsson,
Hagatúni 12, Höfn, Hornafirði,
verður jarðsunginn frá Kálfafells-
staðarkirkju.
15.00 Kristjana Stefánsdóttir, Meðal-
holti 10, Reykjavík, verður jarð-
sungin frá Háteigskirkju.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
1522 Fyrsta skip úr flota Magellans
kemst til hafnar á Spáni og lýkur
þar með fyrstu hringferð um
hnöttinn.
1901 Bandaríski forsetinn McKinley
skotinn í New York. Hann lést
viku síðar.
1928 Bandalag íslenskra listamanna er
stofnað til að styðja vöxt og við-
gang íslenskra lista.
1943 Íslandsklukkan eftir Halldór Kiljan
Laxness kemur út.
1944 Annar burðarstrengur Ölfusárbrú-
ar slitnar. Tveir bílar falla í ánna
en bílstjórarnir bjargast.
1952 Iðnsýning er opnuð í Reykjavík.
Hana sækir annar hver Íslending-
ur.
1952 Fjöldi áhorfenda lætur lífið þegar
flugvél steypist í mannhaf á flug-
sýningu í Englandi.