Fréttablaðið - 06.09.2005, Side 43
Gerimax fjölvítamín, steinefni og ginseng.
Eykur orku og vellíðan.
GERIMAX
Áttu eitthvað til að lina verki og hressa mig við?
20%
Móðir MelanieGriffith sem
heitir Tippi
Hedren er mikill
dýraunnandi. Hún
er miður sín
þessa dagana yfir
dauða fíls sem
hún átti og bar
heitið Timbo. Árið 1972 bjargaði
leikkonan þessum afríska fíl, sem
nú er dáinn af völdum hjartabilunar.
Matthew Perry, fyrr-verandi Friends-
stjarna er búinn að
eignast nýjan nágranna,
en það er enginn ann-
ar en leikkonan Linds-
ey Lohan. Hún keypti
sér þriggja herbergja
íbúð en Matthew
Perry á tveggja her-
bergja íbúð í sömu
byggingu sem hann
keypti í maí á þessu
ári. Í húsinu má meðal annars finna
sundlaug, gufubað og einkabíla-
stæði.Tobey Maguire, Cameron
Diaz og Leonardo Dicaprio eiga
einnig íbúðir í sama hverfi.
Söngkonan BeyoncéKnowles varð 24
ára á dögunum og
fékk veglega afmæl-
isgjöf frá kærasta
sínum Jay-Z. Hann
gaf henni fokdýran
demants- og rúbín-
hring og úr í stíl.
Parið ástfangna er
víst að fara að gifta
sig í næsta mán-
uði. Það verður
forvitnilegt að sjá
skartgripina hjá
þeim þann daginn.
Það var greinilega mikill spenn-
ingur í loftinu fyrir tónleika
Franz Ferdinand í Kaplakrika
enda meðlimir sveitarinnar ný-
búnir að ljúka við sína aðra
plötu og rétt að byrja á tónleika-
ferð á nýjan leik.
Fyrri platan sló rækilega í
gegn. Hún var margverðlaunuð
í heimalandinu og ýmsar stjörn-
ur, þar á meðal Bono úr U2, hafa
keppst við að hlaða Franz
Ferdinand lofi. Það er skemmst
frá því að segja að hljómsveitin
kom, sá og sigraði á tónleikun-
um í Kaplakrika. Nýju lögin
hljómuðu hreint út sagt frábær-
lega og lofa þau mjög góðu fyrir
næstu plötu, þar á meðal lagið
þar sem Paul Thomson fékk
hjálp frá tveimur öðrum við
trommuleikinn. Útkoman var
feikigóð og hljómaði trommu-
slátturinn eins og hríðskota-
byssa.
Söngvarinn og gítarleikarinn
Alexander Kapranos og gítar-
leikarinn Nicolas McCarthy
náðu strax góðum tengslum við
áheyrendur með líflegri sviðs-
framkomu og mikilli spilagleði.
Minna fór fyrir Robert Hardy
bassaleikara og Thomson, þótt
þeir hafi staðið fyllilega fyrir
sínu.
Þegar Kapranos hristi haus-
inn minnti hann helst á Bítlana
þegar þeir voru og hétu.
Kannski Franz Ferdinand verði
bara næstu Bítlar? Þeir eru
virkilega alúðlegir, ná góðum
tengslum við áheyrendur, semja
grípandi popplög og hafa gaman
að því sem þeir eru að gera. Það
er í það minnsta ljóst að sveitin
á eftir að ná enn þá lengra og
getur maður ekki annað en
þakkað fyrir að hafa séð þá í
toppformi hér á litla Íslandi.
Tvímælalaust bestu tónleikar
ársins.
Freyr Bjarnason
Frábærir Franz-menn
FRANZ FERDINAND HLJÓMSVEITIN
BRESKA FÓR Á KOSTUM Í KAPLAKRIKA
2. SEPTEMBER
NIÐURSTAÐA: Frábærir tónleikar hjá stór-
skemmtilegri hljómsveit. Sannarlega bestu tón-
leikar ársins hingað til.
[ TÓNLEIKAR ]
UMFJÖLLUN
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
AL
LI
FRÉTTIR AF FÓLKI