Fréttablaðið - 14.09.2005, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 MARKAÐURINN8
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
Jón Skaftason
skrifar
Gagnrýnendur eru ekki sammála um nýja Rokr-
farsímann sem Apple og Motorola kynntu á dögun-
um. Síminn er samvinnuverkefni stórfyrirtækj-
anna tveggja og er hvort tveggja í senn, farsími og
stafrænn tónlistarspilari.
Það var stjórnarformaður Apple, Steve Jobs,
sem kynnti farsímann: „Við hugsum þetta sem far-
síma með innbyggðum iPod Shuffle-spilara.“
Rokr-síminn getur geymt allt að hundrað lög
sem hægt er að hala niður með tölvu gegnum
iTunes-forritið frá Apple. Ekki er hægt að hala
niður tónlist beint í símann gegnum netið.
Síminn er einnig með utanábyggðan stereóhátal-
ara auk þess sem hann hristist og blikkar í takt við
tónlistina. Sérfræðingar segja símann þó frekar
líkjast hefðbundnum farsíma frá Motorola en
nýjasta meðlimi iPod-fjölskyldunnar: „Síminn er
ekki næstum jafn flottur og aðrar afurðir Apple.
Fólk mun ekkert missa hökuna í gólfið þegar maður
dregur Rokr-símann út á skemmtistöðunum,“ sagði
John Jackson hjá ráðgjafarfyrirtækinu Yankee
Group.
Kollegi hans hjá OneCompare var heldur ekki
ýkja hrifinn: „Ég sé ekki af hverju fólk ætti að
borga tvö hundruð dali fyrir þennan síma þegar
komnir eru á markað farsímar sem eru bæði flott-
ari og geta geymt meira magn af tónlist.“
Ed Snyder hjá Charter Equity var þó öllu sáttari:
„Mér sýnist Rokr-síminn flottur og einfaldur í
notkun. Mér finnst hann heldur ekki dýr og tel hann
líklegan til vinsælda.“
Misjafnar viðtökur
iPod-farsímans
Rokr-farsíminn virðist ekki falla í kramið. Sérfræðingar
segja mun betri farsíma þegar á markaðnum.
Apple kynnti, samhliða Rokr-far-
símanum, iPod nano; nýjasta
stafræna tónlistar-
spilara fyrirtækis-
ins. iPod nano er að-
eins sex millimetrar
á þykkt, níu senti-
metra langur og fjór-
ir sentimetrar á
breiddina.
Spilaranum er ætl-
að að koma í stað
hins geysivinsæla
iPod Mini, sem
selst hefur í 21
milljón eintaka um
allan heim. iPod nano
getur geymt allt að
þúsund lög og notast
við minnisörflögur í stað harða
disksins sem er á öðrum tónlist-
arspilurum frá Apple.
Spilarann er hægt að fá í
svörtu og hvítu og þykir hönn-
unin einstök: „Þetta útspil
Apple breytir öllum viðmið-
um. Þetta er sá langflottasti
til þessa,“ sagði Van Baker
hjá ráðgjafarfyrirtækinu
Gartner.
Um 75 prósent allra staf-
rænna spilara sem seljast í
heiminum koma frá Apple.
- jsk
iPod nano slær í gegn
Nýi spilarinn frá Apple er sagður gjörbreyta
öllum viðmiðum.
ROKR-SÍMINN FRÁ APPLE OG MOTOROLA Rokr-farsíminn
virðist hafa valdið gagnrýnendum vonbrigðum. Síminn er sagður
líkjast hefðbundnum farsíma frá Motorola en ekki nýjasta með-
limi iPod-fjölskyldunnar.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/A
FP
Vísindamenn við Frjálsa háskól-
ann í Berlín uppgötvuðu nýlega
eldkeilubelti á norðurpól Mars og
telja ekki loku fyrir það skotið að
finna megi virk eldfjöll á plánet-
unni.
„Fyrir tveimur til þremur
milljónum ára var Mars gríðar-
lega virk pláneta. Ég tel að á viss-
um svæðum séu enn miklar jarð-
hræringar. Það gæti þess vegna
orðið eldgos á Mars í fyrramálið,“
sagði dr. Gerhard Neukum, prófessor við Frjálsa háskólann í Berlín.
Eldkeilurnar uppgötvuðu dr. Neukum og félagar er þeir rannsök-
uðu myndir sem teknar voru af Mars með þar til gerðri hátækni-
myndavél. - jsk
IPOD NANO SPILARINN FRÁ
APPLE
Virk eldfjöll á Mars
FRÁ MARS Þýskir vísindamenn segjast
hafa uppgötvað virk eldkeilubelti á Mars.
Í nóvember kynnir Og Vodafone
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
94
07
09
/2
00
5
Mobile Office
FRÁ OG VODAFONE
Global Hotspots veitir viðskiptavinum Og Vodafone aðgang að
þúsundum heitra reita í helstu viðskiptalöndum Íslendinga. Þjónustan
er aðgengileg bæði fyrir notendur Vodafone Mobile Connect og aðra
farsímanotendur Og Vodafone. Viðskiptavinir tengjast með einföldum
hætti og notkunin er gjaldfærð á reikning þeirra.
» Auðvelt að tengjast » Notkunin er gjaldfærð
á reikning viðskiptavinar
» Engin þörf á að
greiða með kreditkorti
Global Hotspots er hluti af MobileOffice, heildstæðu þjónustuframboði Og Vodafone fyrir
viðskiptalífið sem gerir fólki mögulegt að miðla upplýsingum óháð stað og stund. Hraði, öryggi og
einfaldleiki eru einkunnarorð okkar í þeim lausnum sem við bjóðum fyrirtækjum.
Global Hotspots
Nánari upplýsingar veitir Fyrirtækjaþjónusta Og Vodafone, Síðumúla 28, í síma 599 9500. Einnig er hægt að senda tölvupóst á 5999500@ogvodafone.is