Fréttablaðið - 14.09.2005, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 MARKAÐURINN14
F Y R I R T Æ K I
F Ó L K Á F E R L I
Magnús Ragnarsson, sjónvarps-
stjóri Skjás eins, segist hafa
fengið besta ráðið frá Sigurði G.
Guðjónssyni, lögmanni og fyrr-
verandi stjórnarformanni Norð-
urljósa. Magnús segist hafa
orðið vitni að því þegar Sigurður
tók hatrammlega á ungum lög-
fræðingi: „Eftir að Sigurður
hafði tekið lögmanninn unga al-
gerlega í gegn spurði hann hvort
hann gæti nokkuð skutlað sér
niður í bæ. Þetta kenndi mér að
þótt fólk sé að berjast hvert í
sínu horni eiga átök aldrei að
vera persónuleg.“
Þetta gerðist þegar Sigurður
og Magnús störfuðu saman hjá
Pegasus en þeir sátu síðar and-
spænis hvor öðrum, Sigurður hjá
Norðurljósum og Magnús hjá Ís-
lenska sjónvarpsfélaginu: „Þetta
hef ég reynt að hafa í huga og
ráðið reyndist mér sérstaklega
vel þegar ég átti í átökum við
Sigurð sjálfan á meðan lætin um
fjölmiðlafrumvarpið stóðu sem
hæst.“ - jsk
B E S T A R Á Ð I Ð
Eyjólfur lærði innanhúsarki-
tektúr við Kunsthaandværk-
erskólann í Kaupmannahöfn
og ákvað þegar hann flutti
aftur heim að setja Epal á
laggirnar: „Þegar ég kom
aftur heim áttaði ég mig á því að
það var ýmislegt sem vantaði
hérna heima. Eitt af því var versl-
un sem sinnti hönnun og fallegum
hlutum. Það þýðir víst ekkert að
stóla á aðra og því ákvað ég bara
að gera þetta sjálfur.“
Epal varð raunar ekki að
verslun fyrr en árið 1977, og má
segja að höfuðstöðvar fyrirtæk-
isins hafi verið í ferðatösku
fyrstu tvö árin: „Ég gekk á milli
arkitekta með ferðatösku fulla af
efnisbútum, sem flestir voru af
listrænum toga.“
Fyrsta verslunin var síðar
opnuð við Hrísateig 47 í Reykja-
vík: „Í fyrstu seldum við glugga-
tjaldaefni og húsgagnaáklæði frá
danska fyrirtækinu Kvadrat. Við
höfum frá upphafi lagt á það alla
áherslu að selja vandaða vöru.
Við seljum hönnun og gæði;
nytjahluti en ekki skrautmuni.
Það hefur alltaf verið okkar
prinsipp.“
Árið 1982 flutti Epal í Síðu-
múla 20 og tvöfaldaði um leið
verslunarrýmið. Epal vatt smám
saman upp á sig og fóru Eyjólfur
og félagar að standa að sýningum
á íslenskri hönnun.
Eyjólfur segir íslenska hönn-
un í stöðugri sókn: „Við höfum
alltaf reynt að hafa eins mikið
eftir íslenska hönnuði og mögu-
legt er, einnig það sem er í fram-
leiðslu erlendis. Íslensk hönnun
verður æ eftirsóknarverðari, og
íslenskir hönnuðir sífellt eftir-
sóttari.“
Eyjólfur segist einnig hafa
reynt að tengja hönnunina við
önnur listform: „Nú erum við til
að mynda með til sýnis leður-
klæddan sófa eftir Pétur B. Lúth-
ersson, þar sem Jón Sæmundur í
Nonnabúð var fenginn til að
þrykkja á leðrið.“
FÉKK DÖNSKU „MÖBELPRIZEN“
Epal flutti sig enn um set árið
1987 og reisti eigið hús við Faxa-
fen 7. Húsið þykir hin mesta
listasmíð, en það er teiknað af
Manfreð Vilhjálmssyni arkitekt í
samvinnu við Eyjólf sjálfan: „Það
má nú segja að við höfum komið
inn í húsið á versta tíma. Það
áraði illa og það fór svo að dansk-
ur vinur minn, sem átti þann
draum heitastan að eiga hús í
öllum höfuðborgum Norður-
landa, keypti húsið af mér og
leigði það síðan Epal.“
Epal var til húsa í Faxafeni
næstu tíu árin: „Félagi minn vildi
þá endilega hækka leiguna en ég
tók það ekki í mál og flutti í
þriðja sinn. Í það skiptið aðeins
um nokkur hundruð metra,
keypti húsnæðið í Skeifunni 6,
þar sem við höfum verið síðan.
Húsnæðið er í dag þúsund fer-
metrar og við höfum keypt 800
fermetra til viðbótar hér við hlið-
ina, þannig að rýmið verður á
endanum 1.800 fermetrar.“
Tengsl Eyjólfs við Danmörku
eru sterk. Eyjólfur lærði í Kaup-
mannahöfn og dönsk og skandin-
avísk hönnun hefur alla tíð verið
fyrirferðarmikil í verslunum
Epal.
Verk Eyjólfs eru líka mikils
metin í Danmörku. Árið 1986
hlaut hann sérstaka viðurkenn-
ingu fyrir sérlegt framlag sitt til
að auka viðskipti milli Danmerk-
ur og Íslands og árið 2001 tók
hann við hinum dönsku „Möbel-
prizen“ úr hendi Friðriks krón-
prins Dana. Eyjólfi var við það
tækifæri lýst sem „einum af
áhugasömustu sendiherrum
danskrar húsgagnalistar utan
Danmerkur“.
AÐ ÞEKKJA SÍN TAKMÖRK
Epal hefur nú verið í Skeifunni í
átta ár og hefur versluninni
vegnað vel þann tíma: „Veltan
hefur fjórfaldast frá því að við
fluttum hingað í Skeifuna. Við
höfum upplifað okkar erfiðu ár
og ætíð fylgt sveiflum. Við
höfum þó aldrei hvikað frá okkar
hugmyndafræði og aldrei fallið í
þá gryfju að fara að selja eitt-
hvert dót. Við höfum alltaf verið
trú sannfæringu okkar.“
Eyjólfur segist nú vera að
uppskera fyrir eigin þrjósku:
„Við höfum stundað hálfgert trú-
boð í hönnunarmálum. Þau mál
líta nú ágætlega út, skilningurinn
hefur aukist. Það er mikið af
ungu fólki í hönnunarnámi hérna
heima og þá hafa stjórnvöld loks
tekið við sér. Þau virðast vera að
uppgötva að það eru talsverðir
fjármunir fólgnir í hönnunar-
málum.“
Í dag eru sextán starfsmenn í
fullu starfi hjá Epal og segist
Eyjólfur afar þakklátur því góða
starfsfólki sem með honum hafi
starfað gegnum tíðina: „Það er nú
bara þannig að ég get ekki verið
fagmaður í öllu. Ég er til að
mynda með blaðafulltrúa og fjár-
málafulltrúa til að stíga á brems-
una. Ég fæ mikið af hugmyndum
og ef ég framkvæmdi þær allar
væri ég löngu búinn með alla
aura. Þetta er bara eins og með
áfengið, þú verður alkóhólisti ef
þú þekkir ekki þín takmörk.“
Eyjólfur hélt mikla afmælis-
veislu í tilefni af þrjátíu ára af-
mælinu og var um sjö hundruð
gestum boðið að þiggja veitingar
í húsakynnum Epal. Meðal heið-
ursgesta var finnski arkitektinn
Eero Arnio: „Það komu þrjátíu og
fimm erlendir gestir og þar af
flugu tveir hingað og heim aftur
samdægurs. Þetta sýnir bara að
þegar við segjumst ætla að gera
eitthvað, þá býst fólk við að það
verði gert almennilega,“ segir
Eyjólfur Pálsson í Epal.
BJÖRN VÍGLUNDSSON, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri vátrygg-
inga- og fjármálaþjón-
ustu Tryggingamið-
stöðvarinnar hf., hefur
verið ráðinn í starf
framkvæmdastjóra
markaðssviðs Og Voda-
fone.
HRÖNN SVEINSDÓTTIR, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs P. Samúels-
sonar hf. (Toyota), tekur við starfi fram-
kvæmdastjóra rekstrarsviðs Og Voda-
fone. Árni Pétur Jónsson, forstjóri Og
Vodafone, hefur tímabundið umsjón
með nýju sviði, sölu- og þjónustusviði.
GESTUR G. GESTSSON,
framkvæmdastjóri sölu-
og markaðssviðs Og
Vodafone, tekur við
starfi framkvæmda-
stjóra tæknisviðs fyrir-
tækisins.
ANNA HULD ÓSKARSDÓTTIR, fram-
kvæmdastjóri þjónustusviðs, lætur af
störfum hjá félaginu. Hún verður nýjum
stjórnendum innan handar á næstu vik-
um. Henni eru þökkuð vel unnin störf
hjá fyrirtækinu á liðnum árum.
VIÐAR ÞORKELSSON, aðstoðarforstjóri Og
Vodafone, og Örn Orrason, sem verið
hefur framkvæmdastjóri fjarskiptasviðs
Og Vodafone, munu hefja störf hjá Dags-
brún, móðurfélagi Og Vodafone, sam-
kvæmt nýju skipulagi samstæðunnar.
ÓLI JÓN GUNNARSSON hefur verið ráð-
inn fram-
kvæmdastjóri
hjá Loftorku í
Borgarnesi. Óli
Jón starfaði
áður sem bæj-
arstjóri í Stykk-
ishólmi og þar
áður sem bæj-
arstjóri í Borg-
arnesi sem síð-
ar varð Borgar-
byggð. Hann er byggingatæknifræðing-
ur að mennt frá Tækniskóla Íslands og
hefur lokið viðskipta- og rekstrarnámi
frá Endurmenntunarstofnun Háskóla Ís-
lands. Óli Jón starfaði hjá Loftorku áður
en hann tók við starfi bæjarstjóra í
Borgarnesi árið 1987.
EYJÓLFUR PÁLSSON Í „THE BUBBLE“ EFTIR EERO ARNIO Finnski arkitektinn Eero Arnio var meðal heiðursgesta í þrjátíu ára afmæl-
isveislu Epal: „Það komu þrjátíu og fimm erlendir gestir og þar af flugu tveir hingað og heim aftur samdægurs. Þetta sýnir bara að þegar
við segjumst ætla að gera eitthvað, þá býst fólk við að það verði gert almennilega.““
MAGNÚS RAGNARSSON, SJÓNVARPS-
STJÓRI SKJÁS EINS Magnús segir Sigurð
G. Guðjónsson lögmann hafa kennt sér að
átök eigi aldrei að vera persónuleg.
Átök eiga aldrei að vera persónuleg
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/V
ilh
el
m
„Ég fæ mikið af hugmyndum og ef ég framkvæmdi
þær allar væri ég löngu búinn með alla aura. Þetta
er bara eins og með áfengið, þú verður alkóhólisti
ef þú þekkir ekki þín takmörk.“
Húsgagnaverslunin Epal
Skeifunni sex
Stofnuð: 1975
Eigandi: Eyjólfur Pálsson innanhúsarkitekt
Starfsmenn: sextán
Selur nytjahluti, ekki skrautmuni
Húsgagnaverslunin Epal var stofnuð á haustdögum 1975 og er því þrjátíu ára
um þessar mundir. Eigandi Epal er Eyjólfur Pálsson innanhúsarkitekt. Eyjólfur
tjáði Jóni Skaftasyni að stefna verslunarinnar hefði verið sú sama frá upphafi:
að selja hönnun og gæði, nytjahluti en ekki skrautmuni.