Fréttablaðið - 14.09.2005, Page 9
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 9
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
Vísindamenn hafa komist að þeirri niðurstöðu að
Tsjernóbýl-slysið svokallaða muni kosta um fjögur
þúsund mannslíf þegar upp verður staðið.
Tsjernóbýl-slysið varð vegna sprengingar í
kjarnakljúfi Tsjernóbýl-kjarnorkuversins í Úkra-
ínu. Áður hafði verið talið að rekja mætti hundrað
þúsund dauðsföll, í fortíð og framtíð, til slyssins.
Rannsóknin var á vegum Chernobyl Forum-
stofnunarinnar sem er samvinnuverkefni Alþjóða-
kjarnorkumálastofnunarinnar, Alþjóða heilbrigðis-
stofnunarinnar, Sameinuðu þjóðanna og ríkis-
stjórna Rússlands, Úkraínu og Hvíta-Rússlands.
Í skýrslu stofnunarinnar segir að um 600 þúsund
manns hafi orðið fyrir geislun í kjölfar sprenging-
arinnar og að fjögur þúsund manns hafi greinst
með krabbamein sem rekja megi beint til áhrifa
geislunarinnar. Í skýrslunni segir: „Áhrif
Tsjernóbyl-slyssins hafa verið stórlega ofmetin.
Mörg dauðsföll á svæðinu kringum Tsjernóbyl hafa
verið rakin beint til slyssins en urðu líklega flest af
náttúrulegum orsökum.“ - jsk
Minni skaði af Tsjernóbýl
Í nýrri skýrslu er áætlað að fjögur þúsund dauðsföll megi rekja beint til
Tsjernóbýl-slyssins. Er það talsvert lægri tala en búist var við.
RÚSTIR KJARNAKLJÚFS TSJERNÓBÝL-VERSINS Vísindamenn
telja að færri dauðsföll megi rekja til slyssins en áður hafi verið talið.
Fjögur þúsund manns hafa greinst með krabbamein sem rekja má
beint til geislunar frá Tsjernóbýl.
Harry Potter-bækurnar má nú nálgast á
stafrænu formi gegnum iTunes-forritið frá
Apple. Hingað til hefur einungis verið hægt
að heyra Harry Potter lesinn upp af geisla-
diskum.
J.K. Rowling, höfundur Harry Potter-
bókanna, segist með þessu útspili vera að
koma í veg fyrir að sjóræningjaútgáfur
gangi kaupum og sölum á netinu: „Það
hefur verið mikil eftirspurn eftir Harry
Potter á stafrænu formi. Ég hef látið geisla-
diskana nægja til þessa en nú hefur orðið
breyting á. Mér finnst aðdáendur Harrys
eiga rétt á að heyra ósvikna stafræna út-
gáfu af bókunum.“
Stafræn útgáfa Harry Potter-bókanna er gefin út af breska út-
gáfurisanum Random House Audio og aðeins er hægt að kaupa þær
gegnum iTunes. Hver bók kostar rúmar tvö þúsund krónur en allt
safnið má nálgast á um sextán þúsund. Sex bækur hafa komið út um
galdrastrákinn Harry Potter og hafa þær selst í rúmlega tvö
hundruð milljónum eintaka um allan heim. - jsk
Stafrænn galdrastrákur
Harry Potter-bækurnar hafa verið gefnar út á
stafrænu formi. J.K. Rowling segist vera að
koma í veg fyrir sjóræningjaútgáfu.
FRAMTÍÐIN ER STAFRÆN
Harry Potter-bækurnar má nú
nálgast á stafrænu formi í gegn-
um iTunes-forritið frá Apple.
Uppboðsvefurinn eBay hefur fest
kaup á netsímafyrirtækinu Skype.
Talið er að Skype muni kosta eBay um
130 milljarða króna.
Hugbúnaður Skype gerir notendum
kleift að hringja ókeypis milli tölva
hvar sem er í veröldinni. Auk þess er
hægt að hringja úr tölvu í síma fyrir
mun lægra verð en hefðbundin fjar-
skiptafyrirtæki bjóða upp á.
Stóru netfyrirtækin; Microsoft, Yahoo og Google auk eBay, hafa
undanfarið rennt hýru auga til netsímamarkaðarins og hafa flest í
hyggju að setja sínar eigin útgáfur á laggirnar. - jsk
eBay kaupir Skype
SPJALLAÐ MEÐ SKYPE eBay hefur
fest kaup á netsímafyrirtækinu Skype.
„Faðir internetsins“ til Google
Google hefur ráðið til sín einn upphafsmanna internetsins. Fyrirtækið
hefur undanfarið sankað að sér þungavigtarfólki.
Netrisinn Google hefur ráðið Vint
Cerf, sem oft er nefndur faðir
internetsins, til að hafa yfirum-
sjón með netmálum
hjá fyrirtækinu.
Google hefur undan-
farið sankað að sér
þungavigtarfólki úr
bransanum, og þykir
það benda til þess að
mikið standi til hjá fyrirtækinu.
Cerf starfaði áður hjá fjar-
skiptafyrirtækinu IMC og er
sannkölluð goðsögn í
netheimum. Cerf vann
ásamt hópi manna að
þróun internetsins og
er talinn upphafs-
maður fyrirrennara
netsins, Arpanet.
Cerf mun vinna að stefnu-
mótun hjá Google og mun verða
titlaður yfirmaður netmála:
„Google er frumkvöðull á sviði
internetsins og ég er gríðarlega
ánægður með að fá tækifæri til
að starfa hjá slíku fyrirtæki. Ég
tel að mörg afrek séu óunnin á
þessu sviði,“ sagði Cerf, ánægður
með nýja starfið. - jsk
Í desember kynnir Og Vodafone
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
94
07
09
/2
00
5
Vodafone World tryggir einfalda og skýra GSM verðskrá í útlöndum
í krafti öflugs samstarfs Vodafone fyrirtækja um allan heim.
Þjónustan hentar þeim sem nota GSM í útlöndum.
Vodafone World eru hluti af MobileOffice, heildstæðu þjónustuframboði Og Vodafone fyrir
viðskiptalífið sem gerir fólki mögulegt að miðla upplýsingum óháð stað og stund . Hraði, öryggi og
einfaldleiki eru einkunnarorð okkar í þeim lausnum sem við bjóðum fyrirtækjum.
» Öllum heiminum er skipt upp í fá
verðsvæði
» Færir GSM áskrifendum Og Vodafone
góða yfirsýn yfir kostnað vegna
símtala sinna í útlöndum
» Ef þú ert á kerfi Vodafone í
útlöndum nýtur þú enn frekari
ávinnings af Vodafone World.
Vodafone
World
Mobile Office
FRÁ OG VODAFONE
Nánari upplýsingar veitir Fyrirtækjaþjónusta Og Vodafone, Síðumúla 28, í síma 599 9500. Einnig er hægt að senda tölvupóst á 5999500@ogvodafone.is