Fréttablaðið - 14.09.2005, Síða 17
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 17
S K O Ð U N
Það kemur fáum á óvart að grein-
ingardeildir bankanna fjölluðu
mikið um verðbólgutölur sept-
embermánaðar. Verðbólgan
mældist 1,52 prósent, en spár
banka höfðu legið á bilinu 0,8 til
0,9 prósenta hækkunar vísitöl-
unnar í mánuðinum. Greiningar-
deild KB banka velti því fyrir sér
hvort verðbólgan væri að breiða
úr sér. „Samkvæmt síðustu mæl-
ingu Hagstofunnar virðist um-
talsverður undirliggjandi verð-
bólguþrýstingur vera að brjótast
út. Fram til þessa hefur verð-
bólgan einkum verið bundin við
hækkun fasteignaverðs og olíu.
Almenn eftirspurn hefur raunar
verið í töluverðum vexti en hún
hefur samt einkum beinst að inn-
flutningi og mikil gengishækkun
krónunnar hefur síðan haldið al-
mennum verðlagshækkunum í
skefjum. Þetta virðist nú vera að
breytast. Verðhækkanirnar virð-
ast nú vera orðnar mun almenn-
ari og stafa af hækkandi kostnaði
í fyrirtækjarekstri hérlendis.
Þessa tegund verðbólgu þekkja
Íslendingar vel frá fyrri tíð þar
sem launaskrið skapast vegna
skorts á vinnuafli og fyrirtækin
velta svo hærri launareikningi
yfir í verðlagið sem kemur fram
í vísitölu neysluverðs,“ segir í
hálffimmfréttum KB banka.
Verðbólga síðustu tólf mánaða
er nú 4,8 prósent sem er 0,8 pró-
sentustigum yfir þolmörkum
Seðlabankans. Greiningardeild
Landsbankans veltir fyrir sér
tímasetningu vaxtahækkana.
„Seðlabankinn þarf því að gera
ríkisstjórninni opinberlega grein
fyrir ástæðum þess að efri þol-
mörkin voru rofin og leiðum til
úrbóta. Verðbólgan fór síðast
yfir efri þolmörkin í verðmæl-
ingunni fyrir febrúar sem birt
var þann 10. þess mánaðar. Rúm-
lega viku síðar var greinargerð
Seðlabankans til ríkisstjórnar-
innar birt og notaði Seðlabankinn
það tækifæri til þess að hækka
stýrivexti bankans um 0,5%. Því
virðist blasa við að haldi bankinn
uppteknum hætti og sendi ríkis-
stjórninni greinargerð fyrir út-
gáfu Peningamála noti hann
tækifærið og hækki stýrivexti í
leiðinni.“
Verðbólgan og vaxtahækkanirnar
INNFLUTNINGUR MEÐ DHL
EITT FYRIRTÆKI
EINN GJALDMIÐILL
EINN REIKNINGUR
EINU ÁHYGGJUEFNINU
FÆRRA
Kannaðu málið á dhl.is eða í síma 535 1100.
Innflutningshraðsendingar DHL auðvelda innflutning
Innflutningur hefur venjulega í för með sér fjölmörg símtöl, marga reikninga, fleiri en
einn gjaldmiðil og mörg höfuðverkjarköst. En ekki með innflutningshraðsendingum DHL.
Allt sem þarf er eitt símtal. Við sjáum um restina, allt frá því að sækja vöruna, þangað til
við afhendum hana viðtakanda. Auk þess færðu fullt verð uppgefið fyrirfram. Og aðeins
einn reikning í íslenskum krónum. Engu skiptir hvort þú ert að flytja inn þungan farm frá
Sjanghæ eða sýnishorn frá San Francisco, þú getur alltaf treyst á DHL.
Þeir sem halda að það sé sældar-
líf að eiga fullt af peningum sem
maður ávaxtar vel með áhættu-
sömum fjárfestingum ættu bara
að fara í fötin mín eina viku eins
og þá síðustu.
Vikan hófst eins og venjuleg
vika hjá mér þar sem ég sest við
tölvuna þegar markaðirnir opna
um tíuleytið með cappuccino úr
ítölsku espressóvélinni minni.
Þetta leit allt saman vel út. Mark-
aðurinn á fleygiferð og fram-
virku samningarnir á móti er-
lendu lánunum bara að gefa vel
af sér. Ég hugsaði með mér að
Austurríki ætti fullt erindi á
ferðalistann minn eftir að hafa
gefið mér svona mikið með
skuldabréfaútgáfunni. Vín er
víst frábær borg, háborg tónlist-
arinnar. Því að eiga mikla pen-
inga fylgir auðvitað að maður
reynir að þroska með sér góðan
smekk. Maður hefur því verið að
reyna að þroska tónilstarsmekk-
inn með því að hlusta á Mozart og
Beethoven og þessa kalla sem
voru með annan fótinn í Austur-
ríki af því að þangað fóru þeir
bestu.
Nema hvað, ríkið spilar út
Símapeningunum, Davíð hættir
og Seðlabankinn ákveður að fara
að kaupa gjaldeyri og vinna
þannig gegn uppbyggingarstarfi
Austurríkis. Svo bætist við meiri
verðbólga en búist var við og
hlutabréfin lækka. Allur hagnað-
urinn frá því vikuna á undan
farinn. Maður er eðlilega ekkert
kátur með þetta. Mér líst hins
vegar vel á að fá Davíð í bank-
ann. Ég hef talsverða vantrú á
hagfræðingum og finnst betra að
í stólnum sé maður sem er sjóað-
ur í stjórnmálum og skilur að það
er engin ástæða til að vera að
hafa áhyggjur af einhverju sem
mun hvort eð er ekki gerast fyrr
en eftir langan tíma. Mér hlýnaði
líka um hjartaræturnar þegar
Samson keypti í Landsbankanum
um leið og hann lækkaði. Þeir
gerðu þetta líka í fyrra þegar
bankinn lækkaði. Þá hikaði ég
ekki við að taka stóra stöðu í
bankanum eins og Sindri Sindra
og sé ekki eftir því. Ég bætti að-
eins við mig núna og bíð svo bara
eftir því að Austurríki haldi
áfram að styðja við þá viðleitni
mína að skapa verðmæti.
Spákaupmaðurinn á horninu
S P Á K A U P M A Ð U R I N N
Þ J Ó Ð A R B Ú S K A P U R I N N
Almenn eftirspurn hefur raunar verið í töluverðum vexti en hún hefur samt
einkum beinst að innflutningi og mikil gengishækkun krónunnar hefur síðan
haldið almennum verðlagshækkunum í skefjum. Þetta virðist nú vera að breyt-
ast. Verðhækkanirnar virðast nú vera orðnar mun almennari og stafa af hækk-
andi kostnaði í fyrirtækjarekstri hérlendis.
Ég, Davíð og Austurríki
Ég hef talsverða vantrú á hagfræðingum og finnst
betra að í stólnum sé maður sem er sjóaður í stjórn-
málum og skilur að það er engin ástæða til að vera
að hafa áhyggjur af einhverju sem mun hvort eð er
ekki gerast fyrr en eftir langan tíma.