Fréttablaðið - 14.09.2005, Síða 18

Fréttablaðið - 14.09.2005, Síða 18
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 MARKAÐURINN18 H É Ð A N O G Þ A Ð A N Eimskip opnaði í nóvember skrifstofu í Qingdao í Kína. Fyrir þeirri skrifstofu fer James Liu, sem stýrir þar örum vexti í kæli- flutningum, einkum með sjávarfang. Liu hélt til Bandaríkjanna eftir nám í endurskoðun til að læra ensku og sjá sig um í heiminum. Þegar hann sneri aftur heim var hann ekki laus við útþrá og ævintýralöngun. „Ég hélt til Hollands. Mig langaði að setja á fót fyrirtæki á sviði flutninga. Ég fluttist inn á lítið hótel þar sem var kínverskur veitinga- staður og byrjaði að reyna að koma mér í sambönd til að fá atvinnuleyfi og geta stigið fyrstu skrefin við stofnun fyrirtækis.“ ÞEKKTI ENGAN James Liu var heppinn og komst í samband við fólk sem var með laust pláss í skrifstofu- húsnæði. Hann hafði sjálfur sambönd í Kína og smátt og smátt tókst honum að koma sér upp hópi viðskiptamanna. „Það var mjög erfitt að koma sér af stað. Ég þekkti engan og enginn þekkti mig. Þegar ég hringdi og vildi fá samband sögðu flestir að þeir hefðu ekki tíma til að tala við mig.“ Að lokum tókst honum að ná áheyrn með því að kíkja í heim- sókn og kynna sig. „Ég var ódýr í rekstri, þurfti bara skrifborð, tölvu og síma, en af- raksturinn var ekki mikill til að byrja með.“ Hann segir fyrstu tvö árin hafa verið býsna erfið. „Mér tókst þó að lokum að kynnast nokkrum, þar á meðal Eimskipi. Eftir tvö ár voru viðskiptin farin að ganga ágætlega. Þá vildi samstarfsmaður minn í Kína draga sig út úr rekstrinum. Á sama tíma vildi flutn- ingafyrirtækið Blue Water kaupa fyrirtækið af mér. Það varð úr þótt ég vildi ekki selja í fyrstu.“ LEIDDIST RÓLEGHEITIN James Liu hóf störf hjá Blue Water á skrif- stofu þess í Rotterdam. Hann hafði þá kynnst konu sinni, sem einnig er kín- versk, þar sem þau unnu í sama húsi. Þau unnu sam- an hjá Blue Water. „Fljót- lega kom upp vandamál með tengiliði í Kína og það varð úr að við fórum fyrir tveimur árum aftur til Kína. Við- skiptin jukust hratt. Ég hafði lagt mjög hart að mér við uppbygginguna og vildi vinna hjá framsæknu félagi. Blue Water er gott fyrir- tæki, en þar eru menn rólegir í tíðinni. Ég vil miklu frekar vinna hjá fyrirtæki eins og Eim- skip þar sem hlutirnir gerast hratt og menn sækja fram.“ Til stóð að James Liu og Blue Water gerðu með sér samning til lengri tíma. „Það gekk hægt fyrir sig og dróst stöðugt að gengið yrði frá samningi. Ég hafði alltaf verið duglegur að sækja sýningar og átti töluverð samskipti við Eimskipsmenn. Þeir buðu mér samning og voru tilbúnir að ganga strax frá honum. Ég kunni að meta þann anda sem er í fyrirtækinu og hann hentar mér vel svo ég sló til og við opnuðum skrifstofuna í fyrra. Ég vil vinna hjá fyrirtæki sem er með skýra mynd af því hvernig það vill vera eftir nokkur ár. Ég fékk skýr skilaboð um að Eimskipsmenn vildu vera númer eitt og væru tilbúnir að setja pen- inga og mannskap í að ná því markmiði.“ LANGUR DAGUR James Liu byrjaði einn með konu sinni að vinna fyrir Eimskip. Nú starfa fjórtán manns á skrif- stofunni og til stendur til fjölga þeim í tuttugu. Hann verður sposkur þegar ég spyr hann um vöxtinn í starfseminni. „Viðskiptin ganga vel og mikil aukning hjá okkur. Mun meiri en við reiknuðum með,“ segir hann og brosir. Áherslan er á kælivörur frá Kína og sjávarafurðir eru fyrirferðar- miklar. Vinnudagurinn er langur og James Liu og kona hans eignuðust dóttur fyrr á ár- inu. „Ég hef ekki mikinn tíma til að vera með henni. Það er helst á morgnana. Vinnudagurinn er langur og álagið oft mest seinnipart- inn. Þá eru menn að mæta á skrifstofur í Evrópu og senda mér tölvupóst. Ef þarf að svara frekar er ég oft langt fram á kvöld. Vinnu- tíminn er því frá því á morgnana og til ellefu á kvöldin.“ Skrifstofan er líka opin á laugardögum. „Við reynum að hætta snemma á laugardögum. Það vinna margar konur hjá mér og þær vilja komast í búðir,“ segir hann og brosir. JÁ ÞÝÐIR NEI James Liu segist mjög bjartsýnn á viðskipt- in í Kína. „Eimskip er í sókn og ég get sífellt boðið viðskiptavinum mínum meiri og fjöl- breyttari þjónustu. Með kaupunum á Daalimpex get ég boðið frysti- og kæli- geymslu í Evrópu í meiri mæli en áður, auk kæli- og frystiflutinga.“ Kínverska hagkerf- ið vex hratt og James Liu segir mikla mögu- leika felast í því að komast í sambönd við innflytjendur sem vilji flytja beint frá Kína. „Ég er með sambönd við framleiðendur vítt og breitt um Kína. Hagvöxtur er mikill í Kína, en við megum ekki byggja viðskiptin ein- göngu á því. Við verðum að hugsa um að viðskiptin gangi vel, líka þegar vöxtur- inn er minni.“ Fram undan er mikil vinna við uppbyggingu starfseminnar í Kína. James Liu segir styrk sinn liggja í því að hafa búið á Vestur- löndum. Hann þekki því menningu og hugsunarhátt Evrópubúa og geti miðlað til þeirra hvernig Kínverjar nálgist sín viðskipti og við- fangsefni. En hver er mun- urinn á menningu Kínverja og Vesturlandabúa og hvað reynist erfiðast? „Þú hefur kannski heyrt þetta áður, en eitt höfuðvandamálið er að við segjum alltaf já við öllu. Líka þegar við meinum nei,“ segir hann og hlær. „Ég sem Kínverji veit hvenær menn meina nei með jáinu sínu, en það getur skapað vandamál þegar vestrænir kaupsýslumenn halda að eitthvað sé að gerast af því að einhver sagði já þegar hann meinti nei.“ Hádegisverður fyrir tvo á Vox Hádegisverðarhlaðborð Drykkir Bjór og pilsner Kaffi Alls 6.160 krónur ▲ H Á D E G I S V E R Ð U R I N N Með James Liu, framkvæmdastjóra skrifstofu Eimskips í Kína Auraveldið Það er skammt stórra högga á milli hjá Aurasálinni. Í síðustu viku tilkynnti hún um stofnun nýs viðskiptabanka. Eins og glöggir lesendur muna eftir mun Aurabankinn lána peninga án vaxta og mun starfsemin algjör- lega byggja á trausti. Aðeins verða innheimt smávægileg þjón- ustugjöld til að standa straum af viðskiptunum. Vinur Aurasálarinnar hefur bent henni á að þessi framúrstefnu- lega hugmyndafræði kunni að eiga erindi á fleiri vígstöðvum enda er stórgróðabrask víðar landlægt en í bankaheiminum. Fréttir um að götustrákarnir í Baugi Group hafi grætt tíu millj- arða á fyrstu mánuðum ársins hafa komið viðvörunarbjöllum Aurasálarinnar til að hringja. Aurasálin ætlar því að stofna Aurasjoppuna í kjölfar Aura- bankans. Aurasjoppan verður rekin með þeirri grundvallarhug- myndafræði að hver og einn geti þar fengið þær vörur sem hann þarf en leggi inn í staðinn þá pen- inga sem hann getur. Aurasálin getur ekki sætt sig við að hér á landi þurfi sumir að svelta á meðan örfáir höfðingjar græði. Viðskiptavinir Aurasjoppunnar geta fengið allar helstu nauð- synjavörur og þurfa aðeins að leggja fram tryggingu um greiðslu í gegnum Aurabankann. Þeir þurfa sem sagt ekkert að borga fyrir vöruna – aðeins að eiga inneign gegn verðmætunum í Aurabankanum. Kerfið er skot- helt og ólíkt því sem gerist hjá Baugsveldinu mun ágóðinn skila sér beint í vasa viðskiptavinar- ins. Vissulega verður verðlagið eitt- hvað hærra en í öðrum búðum enda má búast við því að tölu- verðir dráttarvextir safnist upp hjá Aurasjoppunni fyrst um sinn á meðan beðið er eftir því að við- skiptavinirnir borgi fyrir vörur sínar. En viðskiptavinirnir geta huggað sig við það að þeim verð- ur ekki mismunað á grundvelli efnahags. Þannig sér Aurasálin fyrir sér að á fyrsta árinu muni þjónustugjöldin nema svona sjö prósentum af heildarveltu samstæðunnar. Ef veltan er tíu milljarðar þýðir þetta að gróði Aurasálarinnar er ekki nema um sjö hundruð millj- ónir. Þetta er vitaskuld töluvert meira en verkamaður græðir á ári en algjörir smámunir miðað við Björgólfa, Jón Ásgeir, Bakka- bræður – svo ekki sé talað um bé- vítans Engeyjarættina. Aurasálin mun ekki láta staðar numið við bankageirann og smá- söluverslun. Auraútgerðin, Aura- flug, Auraskip, Aurasjónvarp, Aurablaðið og Auraálver eru við- skiptahugmyndir sem eru langt á veg komnar. Innan skamms munu menn hlæja að Baugsveld- inu – Auraveldið verður miklu stærra. Og til þess að fjármagna þetta allt hyggst Aurasálin gefa út nýja mynt – Aura – sem hún mun prenta sjálf í sínum eigin Aura-Seðlabanka. A U R A S Á L I N James Liu Starf: Stjórnandi skrifstofu Eimskips í Kína Fæðingardagur 7. desember 1971 Maki: Elsie Zheng Börn: Tina Liu f. 2005 JAMES LIU Stjórnandi skrifstofu Eimskips í Kína segir viðskiptin ganga vel. Hann geti sífellt boðið viðskiptavinum sínum fjölbreyttari þjónustu. Hann segir mikil tækifæri fyrir þá innflytjendur í Evrópu sem vilji eiga milliliðalaus viðskipti við Kína. Ég vil vinna hjá fyrirtæki sem er með skýra mynd af því hvernig það vill vera eftir nokkur ár. Ég fékk skýr skilaboð um að Eimskipsmenn vildu vera númer eitt og væru tilbúnir að setja peninga og mannskap í að ná því markmiði. Vildi framsækið fyrirtæki James Liu fór til Hollands með tvær hendur tómar. Þegar hann sneri þaðan til Kína var hann starfs- maður flutningafyrirtækis sem hafði keypt hans eigið fyrirtæki. Honum fannst vanta kraft og áræðni í gamla fyrirtækið og tók því fegins hendi þegar Eimskip falaðist eftir kröftum hans og viðskiptasam- böndum. Hafliði Helgason hitti hann yfir hádegisverði og ræddi um Kína og viðskiptin. Fr ét ta bl að ið /H ei ða

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.