Fréttablaðið - 24.10.2005, Side 41
21MÁNUDAGUR 24. október 2005
Sveinbjörg B. Sveinbjörnsdóttir,
Löggiltur fasteignasali og hdl.
GSM 867 2928
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sölufulltrúi
GSM 899 5949
Hamraborg 20A • 200 Kópavogur • www.husalind.is
Sími 554 4000 • Fax 554 4018 • husalind@husalind.is
Rósa Pétursdóttir,
viðskiptafræðingur og sölumaður
GSM 698 7067
W W W . H U S A L I N D . I S
HRAUNTUNGA - RAÐHÚS - BÍLSKÚR NÝTT
Vel staðsett 2ja hæða 214,3 fm endaraðhús þar af er 27,2 fm bílskúr með fallegu útsýni í Suður-
hlíðum Kópavogs. Vel hannað Sigvaldahús. Eigninni hefur verið vel við haldið. Úr stofu er útgengt
út á ca. 60 fm svalir í suður. Fjögur svefnherbergi og tvo baðherbergi eru í húsinu. Rafmagn end-
urnýjað og yfirfarið. Að hluta til nýir ofnar í húsinu. Verð 39,9 millj.
NÝTT
ÆGISÍÐA - SÉRHÆÐ - BÍLSKÚR
Stórglæsileg eign á eftirsóttum stað með einstöku útsýni. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð og
hönnuð af Rut Káradóttur innanhúsarkitekt. Eldhúsið er opið við borðstofu, eldhústæki frá Gag-
genau. Tvö rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni. Útgengt er út á svalir úr hjónaherbergi og frá
svölum er hægt að ganga út í garðinn. Tvö baðherbergi eru í íbúðinni. Á íbúðinni eru lime stone
flísar og olíuborið reykt eikarparket. Sjaldséð eign á fasteignamarkaðinum. Verð 45 millj.
TRÖLLABORGIR - RAÐHÚS -BÍLSKÚR
Bjart og snyrtilegt 167,2 fm endaraðhús þar af er 25,9 fm innb. bílskúr á góðum og rólegum stað
í Grafarvogi. Fallegt sjávar- og fjallaútsýni. Garður og svalir snúa í austur-suður. Í húsinu eru 3
svefnherbergi og tvö baðherbergi. Eldhús er með hvítri L-innréttingu. Olíuborið gegnheilt stafa-
parket. Stutt í alla þjónustu, verslanir og skóla. Tilboð óskast í eignina
SKÁLAGERÐI - 2JA HERBERGJA
Mjög falleg og algerlega endurnýjuð 2ja her-
bergja 59,6 fm íbúð í litlu fjölbýli á góðum
stað miðsvæðis í Reykjavík. Monte Carlo eik
með kvist er á allri íbúðinni nema á baðher-
bergi, en þar er náttúrusteinn á gólfi, mosa-
íkflísar á veggjum og upphengt klósett. Mik-
ið er lagt í lýsingu, dimmerar á öllum ljósum.
Ný innrétting og SMEG eldunartæki í eldhúsi.
Verð 16,4 millj.
HVASSALEITI-ÚTGENGT Í GARÐ
Falleg og björt 2ja herbergja 77,7 fm íbúð í kjall-
ara/jarðhæð miðsvæðis í Reykjavík. Útgengt er
út í garð frá stofu. Rúmgóð stofa og herbergi
með góðu skápaplássi, parket á gólfi. Baðher-
bergi með baðkari og sturtuaðstöðu, flísalagt.
Sér þvottahús er inn í íbúðinni, einnig er þvotta-
hús í sameign. Nýtt gler í gluggum bílastæða-
megin í íbúð. Verð 16,9 millj.
NÝTT
HLÍÐARVEGUR - BÍLSKÚR
Mikið endurnýjuð 3ja herbergja 87,7 útsýnis-
íbúð á 2. hæð (efstu) þar af 21,8 fm bílskúr í
Suðurhlíðum Kópavogs. ath. ca. 8 fm geym-
sla er ekki inn í fermetrafjölda íbúðar. Ljóst
parket og innréttingar í íbúðinni. Mikið útsýni
yfir Fífuhvamminn. Stórar suðursvalir. Íbúðin
getur verið laus fljótlega. Fallegur suðurgarð-
ur. Verð 20,7 millj.
KAPLASKJÓLSVEGUR-LYFTUHÚS
Hlýleg og rúmgóð 116,7 fm endaíbúð sem er
skráð 4ra herbergja en í dag er hún 2ja her-
bergja á 4.hæð. Hjónaherbergi með góðu
skápaplássi. Rúmgott baðherbergi með
baðkari og sturtu, flísalagt í hólf og gólf. Upp-
runalegt eldhús. Þvottahús inn af íbúðinni.
Einstakt útsýni er úr íbúðinni. Stutt er síðan
að húsið var tekið í gegn að utan. Stutt í alla
þjónustu, skóla og íþróttir. Verð 26,7BERGÞÓRUGATA -2JA HERB.
Björt og snyrtileg 2ja herb. íbúð í kjallara, íbúð-
in er á jarðhæð bakatil. Eldhús er flísalagt með
nýrri hvítri innréttingu, ískápur fylgir. Flísar í for-
stofu og á baðherbergi. Stofan er björt með
parketi. Nýlega skipt um frárennslislagnir,
vatnslagnir og dren. Íbúð og sameign er nýlega
máluð. Laus strax Verð 14.9 millj.
REYNIHVAMMUR - EINBÝLISHÚS
Vel staðsett og fallegt einbýlishús á 2 hæð-
um, aukaíbúð á neðri hæð ásamt tveimur bíl-
skúrum, samtals 220 fm. Pallur og stórar
suður svalir. Fallega ræktaður garður. Mögu-
leiki á stækkun hússins yfir bílskúr. Íbúð á
jarðhæð er með sérinngangi. Ásett verð kr.
44,0 millj.
SÖRLASKJÓL - SÉRINNGANGUR
70,1 fm mikið endurnýjuð íbúð á jarðhæð í
vesturbænum. Forstofa með flot/lökkuðu
gólfi. Mjög rúmgott svefnherbergi og stór
stofa. Parket á gólfum. Eldhúsið er mjög stórt
og með miklu og góðu skápaplássi, skápar
ná alveg upp í loft. Eign nálægt Háskóla Ís-
lands og með útivistarparadís við þröskuld-
inn. Verð kr. 16,9 millj.
SANDAVAÐ - 4RA HERBERGJA
Vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á þriðju
hæð. Fermetrar 106,7 en þar af er 9,1 fm
geymsla í þessu nýja lyftuhúsi ásamt stæði í
bílskýli. Íbúðin afhendist fullfrágengin án gól-
fefna og flísalagnar á baðherbergi. Í þessari
íbúð hefur verið steypt í plötuna fyrir haló-
genlýsingu. Gott og vel skipulagt hverfi sem
er í hraðri uppbyggingu og með góðu útsýni
yfir Árbæinn og Heiðmörk. Tilboð óskast.
KÁRSNESBRAUT - ÚTSÝNI
Falleg 3ja herbergja 73,9 fm íbúð á 2. hæð í
litlu fjölbýli. Mjög björt og velmeðfarin íbúð.
Ljóst parket á allri íbúðinni. Á baðherbergi eru
fallegar ljósar flísar á gólfi og veggjum, yfir-
byggðar svalir sem eru með gólfhita og park-
eti á gólfi, þvottahús og geymsla inn af eld-
húsi. Tilboð óskast í eignina.
FRAMNESVEGUR-RISÍBÚÐ
Einstaklega falleg og björt mikið endurnýjuð
37,4 fm risíbúð á góðum stað í Reykjavík. Eld-
hús er opið við stofu. Risloft er yfir eldhúsi. Bað-
herbergi flísalagt með náttúrustein, innfelld
blöndunartæki. Falleg lýsing er í íbúðinni. Eign
sem vert er að skoða. Tilboð óskast í eignina.
NÝLENDUGATA - VIÐ NORÐURSTÍG
Falleg og björt 89,7 fm sérhæð á tveimur
hæðum í hjarta Reykjavíkur. Sérinngangur er
inn í íbúðina. Rúmgóð stofa. Slípaðar gólffjal-
ir eru á öllum gólfum. Eignin er laus strax.
Ásett verð 21,5 millj.
SANDAVAÐ - ENDAÍBÚÐ
123,8 fm glæsileg 4- 5 herb. endaíbúð í fallegu
lyftuhúsi. Gluggar í þrjár áttir. Eignin skiptist í
forstofu, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi,
vinnuherbergi, baðherbergi, þvottahús, bíla-
stæði í lokaðri bílageymslu, sérgeymslu, rúm-
góðar svalir og sameign. Fallegar eikarinnrétt-
ingar frá Brúnás, tenglar fyrir síma og sjónvarp í
öllum herbergjum. Gólfefni fylgja ekki með.
Ásett verð kr. 28,7 millj.
MÁVAHLÍÐ-RISÍBÚÐ
Falleg og björt 3ja herbergja risíbúð. Kvist-
gluggar og velux þakgluggar eru í íbúðinni.
Parket á öllum gólfum nema á baðherbergi
en þar eru flísar. Rúmgott baðherbergi með
baðkari og sturtuaðstöðu, gluggi. Þak og
þakrennur endurnýjaðar. Stutt í skóla; MH,
Versló, Kennó, HR og alla þjónustu. Verð:
11,5 millj.
NÝBYGGING
NÝBYGGING
NÝTT
LAUS STRAX
20-21 23.10.2005 13:39 Page 3