Fréttablaðið - 24.10.2005, Síða 79
ÆVINT†RIN ERU ENN A‹ GERAST
Pathfinder fer allt á fjórhjóladrifinu, er flægilegur í öllum sjö sætunum, lipur
innanbæjar og rúmar farangur til fleiri mána›a. Pathfinder ey›ir einungis 10
dísillítrum á hundra›i› í blöndu›um akstri, flrátt fyrir heil 174 hestöfl. Hann er
öflug listasmí›, tæknilega fullkominn og au›vita› gullfallegur.
Pathfinder SE
Ver› 4.290.000,-
Lúxusjeppi á vetrardekkjum, sjálfskiptur, 7 manna, cruise control og allur pakkinn.
44.619,- á mánu›i*
174 hestöfl, sá aflmesti í sínum flokki en ey›ir a›eins 10 l á hundra›i›
SKIPT_um landslag
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opi›: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00
Hrísm‡ri 2a
800 Selfossi
482-3100
Eyrarlandi 1
530 Hvammstanga
451-2230
Sæmundargötu 3
550 Sau›árkróki
453-5141
Holtsgötu 52
260 Njar›vík
421-8808
Dalbraut 2b
300 Akranesi
431-1376
Víkurbraut 4
780 Höfn í Hornafir›i
478-1990
Bú›areyri 33
730 Rey›arfir›i
474-1453
Óseyri 5
603 Akureyri
461-2960
Sindragötu 3
400 Ísafir›i
456-4540
PATHFINDER
NISSAN
*L‡sing 30% útborgun og
eftirstö›var í 84 mánu›i.
Kaupauki
Tegund Ver›
Pathfinder XE beinskiptur 3.790.000,-
Pathfinder SE beinskiptur 4.150.000,-
Pathfinder SE sjálfskiptur 4.290.000,-
Pathfinder LE sjálfskiptur 4.790.000,-
Pathfinder LE IT 4.990.000,-
fieir sem kaupa Nissan Pathfinder fá 32" dekk, í kaupbæti.
� � LEIKIR
� 17.00 Þór tekur á móti
Víking/Fjölni í DHL-deild karla í
handbolta í íþróttahöllinni á Akureyri.
� 20.00 Haukar mæta Gróttu í DHL-
deild kvenna í handbolta á Ásvöllum.
� � LEIKIR
� 07.55 Spænski boltinn á Sýn.
� 09.35 Meistaradeild Evrópu á
Sýn.
� 11.15 Meistaradeildin með
Guðna Bergs á Sýn.
� 11.55 A1 kappaksturinn á Sýn.
� 12.20 Enski boltinn á Enska
boltanum. Leikur Newcastle og
Sunderland í beinni útsendingu.
� 14.50 Enski boltinn á Enska
boltanum. Leikur Everton og Chelsea
í beinni útsendingu.
� 15.30 Meistaradeildin í handbol-
ta á Sýn. Leikur Hauka og Gorenje
Velenje.
� 16.50 Spænski boltinn á Sýn.
� 18.50 Ítalski boltinn á Sýn.
� 20.30 US PGA Funai Classic á Sýn.
� 21.30 Helgarsportið á RÚV.
� 23.30 US Championship Tour
2005 á Sýn.
� 00.25 Spænski boltinn á Sýn.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
20 21 22 23 24 25 26
Sunnudagur
OKTÓBER
� � LEIKIR
� 19.00 ÍS og Breiðablik eigast við í
Iceland Express-deild kvenna í kör-
fubolta.
� � LEIKIR
� 15.45 Helgarsportið á RÚV.
� 15.50 Spænski boltinn á Sýn.
� 16.10 Ensku mörkin á RÚV.
� 17.30 US PGA Funai Classic á Sýn.
� 18.00 Þrumuskot á Enska
boltanum.
� 20.30 Ítölsku mörkin á Sýn.
� 21.00 Ensku mörkin á Sýn.
� 21.00 Að leikslokum á Enska
boltanum.
� 21.30 Spænsku mörkin á Sýn.
� 22.00 Olíssport á Sýn.
� 23.00 Ítalski boltinn á Sýn.
� 23.50 Ensku mörkin á RÚV.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
21 22 23 24 25 26 27
Mánudagur
OKTÓBER
Ensku úrvalsdeildarliðin Birming-ham og West Ham hafa áhuga á
sóknarmanninum John Hartson sem
leikur með Glasgow Celtic í Skotlandi.
Talið er líklegt að þau komi með tilboð í
leikmanninn í janúar þegar félagaskipta-
glugginn opnar. Þessi þrítugi leikmaður
hefur mátt bíða á varamannabekknum í
síðustu þremur leikjum Celtic þrátt fyrir
að vera markahæsti leikmaður liðsins
það sem af er leiktímabili. Gordon
Strachan, stjóri Celtic, segir Hartson vera
til sölu fyrir rétta upphæð en leikmað-
urinn var í herbúðum West Ham í tvö
tímabil áður en hann fór til Wimbledon
1999. Hann er samningsbundinn Celtic
til 2007.
Thierry Henry segist bera ábyrgð á vítaspyrnunni sérstöku sem Arsenal
misnotaði í leiknum gegn Manchester
City um helgina. Henry átti hugmyndina
að því að þessi útfærsla yrði reynd en
Robert Pires ætlaði
að renna boltanum
til hliðar og svo átti
Henry að koma
hlaupandi og skjóta
að marki. Þessi til-
raun misheppnaðist
algjörlega og segist Henry hér eftir ætla
að taka allar vítaspyrnur sjálfur og biðst
afsökunar á þessari hugmynd sinni.
Sebastien Loeb, heimsmeistari í rallakstri, sigraði með miklum
yfirburðum í Korsíkurallinu sem fram
fór um helgina. Loeb er franskur og
ekur Citroen, hann varð 1 mínútu og 42
sekúndum á undan Toni Gardemeister
frá Finnlandi sem kom í öðru sætinu.
Loeb vann allar tólf sérleiðirnar um
helgina en hann hefur þegar tryggt sér
meistaratitilinn annað árið í röð og
hefur 117 stig en Petter Solberg og Mar-
cus Grönholm eru næstir með 71 stig.
Solberg varð í þriðja sæti um helgina
en Grönholm hætti keppni eftir fjórðu
sérleið.
Indriði Sigurðsson skoraði sigurmark Genk sem vann Moeskron 1-0 í
belgísku úrvalsdeildinni í fótbolta á
laugardagskvöld. Genk er nú í 7.-8.
sæti deildarinnar með jafnmörg stig
og Lokeren sem gerði 1-1 jafntefli við
Westerlo. Arnar Þór Viðarsson og Rúnar
Kristinsson voru í byrjunarliði Lokeren
en Arnar Grétarsson sat allan tímann á
varamannabekknum.
Hinn gamalreyndi Sir Bobby Robson er nú sterklega orðaður við stöðu
knattspyrnustjóra skoska liðsins Hearts
en George Burley hætti skyndilega hjá
félaginu um helgina. Burley var aðeins
við stjórn hjá Hearts í 113 daga en
félagið hefur enn ekki tapað leik á leik-
tíðinni og er á toppi deildarinnar, Enskir
fjölmiðlar sögðu margir hverjir í gær að
Burley tæki líklega við liði Aston Villa
en þar er orðið ansi heitt undir David
O‘Leary, þá er hann einnig orðaður við
Birmingham.
ÚR SPORTINU
SKÍÐI Skíðamaðurinn Björgvin
Björgvinsson féll úr leik eftir
fyrri ferð á heimsbikarmóti í stór-
svigi sem fram fór í Sölden í Aust-
urríki í gær.
Hann varð í 56. sæti og var
5,02 sekúndum á eftir Bode Miller
sem var fyrstur eftir fyrri ferð.
Það var síðan Hermann Maier frá
Austurríki sem tryggði sér sigur-
inn í seinni ferðinni og var 7/100
úr sekúndu á undan Miller. w- egm
Björgvin Björgvinsson:
Féll úr leik
FÓTBOLTI Keppni í sænsku úrvals-
deildinni lauk í gær og þar með
varð íslenski landsliðsmaður-
inn Gunnar Heiðar Þorvaldsson
markakóngur deildarinnar með
sextán mörk. Svo sannarlega frá-
bær árangur hjá Gunnari sem
var að spila sitt fyrsta tímabil
með Halmstad.
„Það er ekki hægt annað en
að vera sáttur við þennan árang-
ur. Þetta er draumi líkast og það
er nánast fáránleg tilhugsun að
vera markakóngur á fyrsta tíma-
bilinu hérna. Ég bjóst ekki við
því að ná að smella svona fljótt
og vel inn í þetta, klúbburinn og
hinir strákarnir hafa hjálpað mér
mikið. Þegar manni líður vel þá
spilar maður vel, svo einfalt er
það,“ sagði Gunnar Heiðar.
Halmstad hafnaði í tíunda sæti
deildarinnar en Djurgarden varð
meistari. Í lokaumferðinni í gær
tapaði Halmstad 2-0 fyrir Kalmar
en þrátt fyrir það náði Gunnar að
tryggja sér markakóngstitilinn.
Frammistaða hans hefur vakið
mikla athygli og hann verið orð-
aður við lið í ensku úrvalsdeild-
inni.
„Ég á eitt ár eftir af samningi
mínum en ég veit að það er fullt
af liðum að skoða mig. Ég fékk
að vita það eftir leikinn í gær að
menn frá Birmingham voru að
horfa á mig. Mér finnst ég eigin-
lega hafa gert mitt í Svíþjóð og
finnst ég vera tilbúinn að fara að
gera eitthvað meira. Fara í betra
lið og verða betri knattspyrnu-
maður,“ sagði Gunnar Heiðar
sem einnig hefur verið orðaður
við Everton. elvar@frettabladid.is
Birmingham fylgist með markakónginum Gunnari Heiðari Þorvaldssyni:
Tilbúinn til að fara í betra lið
MÁNUDAGUR 24. október 2005 31