Tíminn - 10.09.1975, Page 4
4
TÍMINN
Miðvikudagur 10. september 1975.
Fótboltalið kvenna í Bonn
það bezta
Hin tuttugu.og tveggja ára gamla
Beverley Ranger frá Jamalka
var stjarnan I Bonn SC-kvenna-
fótboltaliðinu. Hún er tennis-
kennari þessi kaffibrúna fót-
boltakona, og hún átti hvað
stærstan hlut I sigri kvennaliðs-
ins frá Bonn, en Bonn-stúlkurn-
ar fóru með sigur af hólmi i
Þýzkalandskeppninni I kvenna-
fótbolta 1975. Beverley er köll-
uð Pelé kvenna'fótboltans, og
með leik hennar fylgdust 100
þúsund áhorfendur I sjónvarpi.
Hún gerði þá eitt stórkostleg-
asta mark, sem hægt er aö
hugsa sér, að þvi er fagmenn
segja, og mark Berverley var
útnefnt „mark mánaðarins”.
Nú velta stúlkurnar i Bonn þvi
fyrir sér, hvort ekki sé rétt að
halda áfram, og reyna að keppa
að stærra marki en þvi að verða
Þýzkalandsmeistarar. Hver
veit nema þær verði heims-
meistarar áður en langt Hður.
Fordómarnir hverfa eins og
dögg fyrir sólu
Þegar litið er á þessa mynd sér
maður hóp glaðlegra barna.
Það mætti segja, að þarna væri
smásamkoma Sameinuðu þjóð-
anna. Börnin eru nefnilega af
sex mismunandi þjóðernum og
eru meðal þeirra 35 barna, sem
tekið var á móti i Haus am
Löwentor, en það er alþjóðlegt
barnaheimili I Stuttgart I
Þýzkalandi. Þarna eru börn er-
lendra manna, sem vinna i
Þýzkalandi, en auk þess er allt-
af dálitið af þýzkum börnum
innan um, en séð er til þess, að
þau verði ætið I minnihluta.
Tveir þriðju hlutar þeirra, sem
á þessu barnaheimili eru, skilja
ekki þýzku, þegar þeir koma, en
yfirmaður heimilisins, Gisela
Theer segir, að eftir átta vikur
sé fullvist, að þau séu búin að
læra nóg til þess að gera sig
skiljanleg og skilja aðra. Gisela
lætur börnin fara I leiki, sem
þau geta notað sitt eigið mál I.
Þarna eru sagðar sögur frá
ýmsum löndum, og allt gert til
þess að börnin blandist sem
allra bezt, og gleymi þvi, að þau
eru ekki af sama þjóðerni. Auk
þess sem börnin bindast
, vináttuböndum, má geta þess,
að stofnuð hafa verið samtök
foreldra þeirra barna, sem
sækja þ'etta barnaheimili, og er
markmið samtaka þeirra einnig
að ryðja úr vegi öllum fordóm-
um, sem kunna að vera fyrir
hendi hjá hinum fullorðnu.
★
Isbjarnarþrí-
burar í Kharkov
Birna I dýragarðinum I Khar-
kov hefur nú fætt pf sér þrjá
húna, en þetta er annað skiptið,
sem hún eignast þribura. A
þeim tiu árum, sem birnan hef-
ur verið I Kharkov, hefur hún
alls fætt 14 húna sem nú eru I
öðrum dýragörðum I Sovét-
rikjunum, að einum undanskild-
um, en hann er i Hollandi. Hinir
ungu þriburar eru við góða
heilsu og starfsmenn dýra-
garðsins eru stoltir af þessum
fósturbörnum sinum, ekki slzt
fyrir þá sök að það er mjög
sjaldgæft, að isbirnir auki kyn
sitt I dýragörðum.
— Ég sagöi kerlingumii, að ég ætti
að vinna yfirvinnu, og heldurðu
ekki að hún hafi trúaö mér.
DENNI
DÆMALÁUSI
Þeim mun öllum lika vel við þig,
svo þú skalt láta þig geltið og há-
vaðann engu skipta.