Tíminn - 03.10.1975, Qupperneq 17
Föstudagur 3. október 1975
TÍMINN
17
ÍSLENZK A LANDSLIÐIÐ I
handknattleik mætir Pólverjum I
tveimur landsleikjum I Laugar-
dalshöll nú um helgina. Fyrri
leikur liöanna hefst á laugardag
kl. 15, og sá siðari á sunnudag kl.
20. Þessa mynd tók Gunnar V.
Andrésson, ljósmyndari Tlmans,
á æfingu hjá landsliðinu I vikunni,
en 16 handknattleiksmenn hafa
veriö valdir til landsliðsæfinga, —
og þeirra blða mörg erfið verk-
efni á næstunni.
Undirbúningur fyrir þessa tvo
landsleiki hófst 29. september og
stendur yfir sleitulaust til föstu-
dagskvölds, þ.e. æft er á hverjum
degi i fimm daga. Það er engum
vafa undirorpið, að pólska lands-
liðið er mjög sterkt um þessar
mundir, og hefur handknattleik
fleygt mjög fram I Póllandi á slð-
ustu árum. Engu að slður hefur
tslendingum vegnað vel I lands-
leikjum slnum við Pólverja, af
sex landsleikjum til þessa höfum
við sigrað i fjórum en Pólverjar i
tveim. Síöast léku þjóðirnar sam-
an I sumar, og þá sigruðu tslend-
ingar i Júgóslaflu i mjög
skemmtilegum og tvisýnum leik
(16-14).
FURÐULEG RÁÐSTÖFUN
UM FATT er meira rætt núna
meðal Iþróttaunnenda en þá fá-
dæma ráðstöfun Joe Gilroy,
skozka þjálfarans hjá Val, að láta
liöið leika sóknarknattspyrnu á
móti Celtic á heimavelli þeirra I /
Skotlandi, Parkhead. Enda varö '
ráðstöfun þjálfarans svo sannar-
lega liðinu að falli —og engu smá
falli! Valur fékk svo að segja þá
verstu útreiö, sem Islenzk félags-
lið hefur fengið lengi. Eftir frá-
bæra franunistöðu Islenzkra
knattspyrnumanna undanfarin
tvö ár, hélt maður satt að segja,
að það væri liðin tið að Islending-
ar töpuðu með miklum mun fyrir
erlendum knattspyrnumönnum.
7-0 tap Valsmanna I Glasgow er
einkum hryggilegt vegna þess, að
það þurfti aldrei að gerast. Tap
Valsmanna er mikili álitshnekkir
fyrir liöið og Islenzka knattspyrnu
almennt, — og það er sorglegt að
þurfa að vita til þess, að barna-
skapur skozka þjálfarans skuli
hafa komið óorði á Islenzka knatt-
spyrnumenn á islandi eiga allt
annað skilið en að verið sé að
„leika” meö þá!
Myndin var tekin I leik Vals og
Celtic á Laugardalsvelli, og sýnir
markvörð Celtic góma knöttinn
eftir sókn Vals. Hann þurfti ekki
mikið fyrir llfinu að hafa I fyrra-
kvöld — Gsal—
Eftir leikina við Pólverja
verður hlé á æfingum landsliðsins
til 16. nóv., en þá verður fyrri um-
ferð 1. deildar keppninnar I hand-
knattleik nær lokið. Dagana
17.-21. nóvember veröur landslið-
iö siöan undirbúnið fyrir leikina
við Luxemborgara, en þeir hafa
óskað eftir því að báöir leikirnir I
undankeppni ÓL fari fram hér
heima, og að sögn forráðamanna
Handknattleikssambandsins er
nú reiknaðmeð, að þeir leikir fari
fram 22. og 23. nóvember n.k.
Þ á eru likur á þvl, að landslið
Norðmanna komi hingað til lands
I lok nóvember eða byrjun
desember og leiki hér tvo leiki við
islenzka landsliðið.
1. desember hefst undirbúning-
ur fyrir heimaleikinn við Júgó-
slafa I undankeppni ólympluleik-
anna, en hann verður I Laugar-
dalshöll 18. desember. Dagana
1.-5. desember verða æfingar hjá
landsliðinu, og ráðgert er aö fara
I keppnis- og æfingaferð til
Norðurlanda og Þýzkalands dag-
ana 6.-12. des. 1 þeirri ferð er
stefnt að þvi, að Islenzku hand-
knattleiksleikmennirnir, sem
leika meö v-þýzku liöunum, komi
til móts viö liðið og taki þátt I
undirbúningnum fyrir leikinn viö
Júgóslafana. Lokaundirbúningur
fyrir þennan erfiöa leik verður
svo hér heima dagana 13.-17. des.
— en sjálfur leikurinn fer fram
þann átjánda.
Aö sögn forráðamanna HSl
hafa Júgóslafar fallizt á að leika
hér aukaleik þann 20. desember.
Islendingar lentu sem kunnugt
er i riðli með Júgóslöfum og Lux-
emborgurum I undankeppni ÓL,
og kemst efsta liðið I riðlinum I
aðalkeppnina.
Á myndinni eru eftirtaldir leik-
menn, t.f.v.: Viggó Sigurðsson,
Vikingi, Gunnar Einarsson,
Göppingen, Ólafur Einarsson,
Dionzdorf, Arni Indriöason,
Gróttu, Gunnsteinn Skúlason,
Val, Viðar Simonarson, landsliðs-
þjálfari, Ingimar Haraldsson,
Haukum, Rósmundur Jónsson,
Vlkingi, Magnús Guðmundsson,
Víkingi, Páll Björgvinsson, Vlk-
ingi, Jón Karlsson, Val, Hörður
Sigmarsson, Haukum, ólafur
Benediktsson, Val, Sigurbergur
Sigsteinsson, Fram, og Stefán
Gunnarsson, Val.
Keppnistímabil körfuknattleiksmanna
að hefjast
REYKJAVÍKURMÓTIÐ
HEFST UM HELGINA
RE YKJ AVIKURMÓTIÐ I
körfuknattleik hefst nú um helg-
ina meö leik KR — og Fram I
tþróttahúsi Kennaraháskólans,
og hefst sá leikur klukkan 17.
Strax að þeim leik loknum
keppa Valur og 1R, og siöasti
leikurinn á laugardaginn veröur
á milli Ármanns og tþróttafé-
lags stúdenta — sá leikur hefst
kl. 20.30.
Mótinu verður siöan fram
haldið á sunnudag kl. 14.30 með
leik Armanns og KR, þar næst
leika Fram og IR, og slöasti
leikurinn á sunnudaginnímeist-
araflokki karla veröur á milli 1S
og Vals.
Eins og kunnugt er hafa bæöi
Armenningar og KR-ingar feng-
iö blökkumenn frá Bandarikj-
unum I sinar raðir, og er ,,nýi”
Ármenningurinn, Jimmy Rod-
gees, þegar kominn til landsins,
en Curtiss Carter, sem mun
leika með KR-ingum, er vænt-
anlegur um helgina. Óvlst er þó,
hvort hann tekur þátt I leikjum
KR-inga um helgina, — en svo
gæti þó farið, að báöir Banda-
rlkjamennirnir lékju með liöum
sinum á sunnudag, en þá fer
leikur KR og Armanns fram.
Reykjavlkurmótiö I meistara-
flokki kvenna hefst einnig um
helgina, og verður fyrsti leikur-
inn leikinn I Iþróttahúsi Kenn-
araháskólans á milli KR og
Fram, og hefst hann klukkan 13.
Reykjavíkurmótið í handknattleik:
KR-INGAR
í ÚRSLIT
1 FYRRAKVÖLD tryggöu KR-ingar sér svo gott sem sigur I A-riðli
Reykjavlkurmótsins I handbolta, er þeir sigruðu IR-inga 23-221 æsi-
spennandi og skemmtilegum leik. Meö þessum sigri sinum hafa
KRingar hlotið sex stig — unnið alla sina leiki — og fátt getur nú
komið I veg fyrir sigur þeirra I riölinum. Að visu er sá fræðilegi
möguleiki fyrir hendi, að Armenningar sigri I riðlinum, en til þess
aö svo megi verða, þurfa þeir að taka á honum stóra sinum og
hreinlega kafsigla KR-inga I slöasta leiknum I riðlinum, en leikur
KR- og Armanns fer fram á sunnudaginn kemur.
Leikur KR og IR var mjög spennandi á aö horfa, og úrslitamarkið
var ekki skoraö fyrr en eftir aö venjulegum leiktima var lokið.
IR-ingar höföu boltann á siðustu sekúndunum, eftir að KR-ingar
höföu jafnað tveggja marka forskot þeirra — og virtist jafntefli eða
sigur ÍR ætla að verða liklegustu úrslitin. En — ónákvæmt skot Guð-
jóns Marteinssonar var auðvelt fyrir Emil Karisson i KR-markinu,
og hann var fljótur að senda boltann fram völlinn til KR-inga, sem
voru tilbúnir I hraðaupphlaup. En IR-ingarnir brutu á KR-ingnum
sem fékk boltann, og dæmt var vitakast. Svo að segja á sömu
sekúndu gall flauta timabarðarins. Or vitlnu skoraði siðan Hilmar
Björnsson, þjálfari KR-inga við mikinn fögnuð félaga sinna.
1 fyrakvöld léku einnig Armann og Leiknir, og sigruðu Armenn-
ingar með 22-17, og var það mun minni sigur en búizt hafði verið við.
Erfiðir leikir fram-
undan hjá landsliðinu
★ Tveir landsleikir við Pólverja um helgina
★ Landsleikir við Luxemborgara i ÓL í nóvember
★ Landsleikir við Norðmenn í lok nóvember
★ Landsleikur við Júgóslava í ÓL 18. desember