Tíminn - 04.10.1975, Qupperneq 11
Laugardagur 4. október 1975
TtMINN
11
íUmsjón: Sigmundur ó. Steinarssonz
DYNAMO KIEV...
kom upp úr hattinum, sem mótherji ÍA í 2. umferð Evrópu
keppni meistaraiiða, þegar dregið var í gær
★ Akurnesingar hafa hug ó að leika fyrri leikinn hér heima
— jafnvel uppi á Skaga
— Mér lízt engan veginn á mótherjana. Við
hefum viljað fá allt annað lið en þetta, sagði
Jón Alfreðsson, fyrirliði Akraness-liðsins í
gær. — Að visu er þetta mjög sterkt lið, sem
sést kannski bezt á þvf, að þeir eiga mjög
marga leikmenn I sov. landsliðinu, en þetta
liðvarekki ofariega á óskalistanum hjá okkur.
Mér finnst við ættum að spila annan leikinn
hér, fyrst við lentum á móti þessu liði.
Ég er ekki ánægður. Þetta var raunar eina
liðið, sem ég vildi alls ekki lenda á móti, sagði
Jón.
— Þetta er alls ekki uppáhaldsiiðið okkar,
sagði Karl Þórðarson, er við höfðum samband
við hann í gær. Hins vegar er þetta frægt lið og
áreiðanlega með sterkustu félagsliðum i
heimi. En — Dynamo Kiev er það lið sem
maður sízt óskaði sér, engu að siður. Við höf-
um verið mjög óheppnir með að lenda alltaf á
móti liðum.sem er fjærst okkur. Þetta eru ein-
hver álög á liðinu! Það yrði gaman að leika
annan leikinn hc'r heima, sagði Karl.
— Það vantar ekki'að þetta sér sterkt lið
sagði Har-aldur Sturlaugsson, er fþróttasíðan
ræddi við hann í gærdag. Það er vitað, áð
Dýnamo Kiev er uppistaðan i sovézka lands-
liðinu, svo það má með nokkrum sanni segja
að þetta verði leikir Akraness og Rússlands!
Lið frá 400 manna bæ og mörghundruð
milljdna þjóð. Við höfðum óskað eftir öðru liði,
en hins vegar er Dynamo Kiev jafn sterkt lið
og þau sterkustu sem maður þekkir til. — Er
nokkuð annað en að leika heimaleikinn hér á
Skaganum? Það yrði gaman, en það hefur þó
ekkert verið um það rætt ennþá, sagði
Hara ldur.
ísland -
Pólland
í dag
kl. 15
— síðari leikur-
inn ó morgun
kl. 20
i DAG klukkan 15 hefst fyrri
landsleikur islendinga og
Pólverja i handknattleik, og á
morgun kl. 20 hefst siðari leikur
þjóðanna. Viðar Simonarson,
þjálfari og einvaldur islenzka
landsliðsins hefur valið liðið
sem veröur skipaö eftirtöidum
leikmönnum i leiknum á
morgun:
Markveröir eru Ólafur Bene-
diktsson, Val og Rósmundur
Jónsson, Vikingi. Aðrir leik-
menn eru, Páll Björgvinsson,
Vikingi, sem jafnframt er fyrir-
liði liðsins, Magnús Guðmunds-
son, Vikingi, Stefán Gunnars-
son, Val, Jón Karlsson, Val,
Gunnsteinn Skúlason, Val,
Sigurbergur Sigsteinsson,
Fram, Björgvin Björgvinsson,
Fram, Hörður Sigmarsson,
Haukum, Gunnar Einarsson,
Göppingen, ólafur Einarsson,
Donzdorf.
Þeir leikmenn sem settirvoru
út úr 16 manna hópnum, eru
Ingimar Haraldsson, Haukum,
Arni Indriðason, Gróttu, Viggó
Sigurðsson, Vikingi og Marteinn
Arnason, Þrótti.
Svo kann að fara að Viðar
geri einhverjar breytingar á
landsliðinu fyrir leikinn á
sunnudagskvöld, en það mun
eðlilega fara eftir þvi, hver
árangur liðsins verður i fyrri
leiknum.
Pólska landsliðið kom til
landsins i gær frá Kanada, þar
sem liðið hefur tekið þátt I fimm
landa keppni. Dómarar i
leikjunum við Pólverja eru
danskir, Palle Thomson og Paul
Wolk, en þeir hafa ekki dæmt
hér fyrri.
Sigurbergur Sigsteinsson er
sá leikmaður islenzka lands-
liðsins, sem flesta landsleiki
hefur að baki, 73 að tölu og á
hæla honum kemur félagi hans
úr Fram, Björgvin Björgvins-
son með 70 landsleiki.
Páll Björgvinsson er nú i
fyrsta skipti fyrirliði islenzka
landsliðsins.
íbúðarhapp-
drætti HSÍ
52749
Handhafi happdrættismiða með
þessu númeri i ibúðarhappdrætti
HSÍ hef ur enn ekki gefið sig fra m.
Stjórn HSI vill þvi itreka enn einu
sinni, að menn leiti betur, að
miðunum sinum — og kiki á,
hvort númer miðans sé ekki
52749. — Það skyldi þó aldrei
vera, að miðinn væri í gömlu
skitugu vinnubuxunum???
AKURNESINGAR voru
óheppnir, þegar dregið var i
Evrópukeppninni um hádegi i
gær. Þeir lentu á móti hinu geysi-
sterka sovézka liði, Dynamo Kiev
eða sovézka landsliðinu, eins og
það er nefnt, þvi i liðinu eru
hvorki meira né minna en niu
landsliðsmenn. Sovétmenn hafa
nefnilega þann háttinn á, að
landsliðið er styrkt félagslið — og
Dynamo Kiev var valið sem
kjarni landsliðsins. Já, Akur-
nesingar voru óheppnir, þvi
sovézka liðið var ekki einu sinn á
óskalistanum hjá þeim. Þeir
vildu helzt fá Bayern Múnchen og
Þjóðverjarnir vildu lika lenda á
móti Islendingunum, ef marka
má orð Gerd Múllers i gær, eftir
að þýzka liðið hafði lent á móti
Malmö i Sviþjóð. — ef frá er
skilið islenzka liðið, þá eru
Sviarnir auðveldustu
mótherjarnir, sagði Muller.
Dynamo Kiev á rétt á heima-
leiknum fyrst, þar sem þeir urðu
Evrópubikarhafar i fyrra. Hins
vegar sagði Gunnar Sigurðsson,
formaður Knattspyrnuráðs Akra-j
ness i gær, að þeir hefðu hug á þvii
að fá þvi breytt og leika fyrril
leikinn hér heima um miðjan
október, og þá annað hvort á
Skaganum eða Melavellinum —
Þetta lið var siðast á listanum hjá’
okkur, sagði Gunnar, en við lend-
um bara á móti Þjóðverjunum
eða Englendingunum i 3ju um-
ferðinni! Það þýðir ekkert annað
en að vinna þá hér i snjónum og
frostinu, sagði hann.
— Það verður gaman að fá þá
hingað og við treystum á það, að
við fáum sama stuðning landans
og á móti Kýpurbúunum, sagði
Gunnar Sigurðsson.
— Nei, ekki er hægt að segja, að við séum
heppnirmeð mótherjana.sagði Árni Sveinsson
i gær, þegar við töluðum við hann. — Ég tel að
DynamoKievséeitt af sterkustu liöunum, sem
eftir eru I keppninni það verður eflaust gaman
að leika við þá.'Við fáum hins vegar aldrei að
leika á móti þeim liðum, sem v-ð óskum helzt
eftir.Það yrðiskemmtilegt.ef við gætum leikið
við þá hér heima, en sigurlíkur okkar eru þó
tæpast miklar, sagði Arni.
Matthias Hailgrimsson, hinn sókndjarfi framherji Akranessliðsins,
sem sést hér i baráttu upp við mark Sovétmanna i landsleik íslands og
Sovétrikjanna i sumar.
Norðurlandameistaramótið
í badminton verður haldið
á íslandi á naesta ári
Landsleikur í badminton við Færeyinga í lok október ★ Norður-
landameistaramótið verður haldið í Sviþjóð í nóvember
IL
BADMINTONIÞRÖTTIN er ung
keppnisgrein hér á landi, og
landsleikir i badminton hafa til
þessa verið teljandi á fingrum
annarrar handar. Megináherzla
hefur verið lögð á að taka þátt i
Norðurlandameistaramótinu og
hafa tslendingar þar verið meðal
þátttakenda á öllum undanförn-
um árum, — en með slælegum
árangri að visu. 1 lok næsta
mánaðar leika íslendingar sinn
fyrsta landsleik i badminton við
frændur vora i Færeyjum og
verður landsleikurinn háður hér á
landi, í Laugardalshöll. — Fyrir
stuttu voru valdir 16 leikmenn til
landsliðsæfinga, en siðan verða
valdir 7 úr hópnum i hið endan-
lega lándslið. Landsliðsæfingarn-
er eru ennfremur undirbúningur
fy rir Norðurlandameistaramótið,
sem fram fer í Stokkhólmi 15. og
16. nóvember n.k., en islendingar
munu sjá um Norðurlandamótið
að ári, sem haldið verður i
Laugardalshöll.
íþróttasiðan ræddi við Karl
Maack formann Badmintonsam-
bands íslands, og sagði hann að
Islendingar hefðu leikið við Finna
ílandsleik fyrir tveimur árum og'
áður hafði verið leikið við
Norðmenn.
Badminton er mjög vaxandi —
bæði sem almenningsiþrótt og
keppnisiþrótt. Okkur telst til, að
nú stundi rúmlega 3000 manns
badminton og þátttakendum
fjölgar ört, sagði Karl.
— Nú hefur aðstöðuleysi háð
iþróttinni nokkuð hér á landi.
Teljið þið ekki, að hið nýja og
glæsilega hús TBR muni verða
badmintoniþróttinni mikil lyfti-
stöng, þegar húsið kemst i gagn-
ið?
— Jú. Það er alveg rétt, að að-
stöðuleysi hefur háð badminton-
iþróttinni og það er enginn vafi á
þvi, að með tilkomu hins nýja
húss á vegur iþróttarinnar eftir
að vaxa mjög. Hugmyndin er að
húsið verði tekið i notkun að ein-
hverju leyti i vetur og það er
gleðilegt fyrir okkur badminton-
unnendur, að stjórn TBR hefur
ákveðið að badminton verði ein-
göngu stundað i þessu nýja húsi. I
þessu sambandi má nefna, að
badminton er mjög þróuð iþrótt i
Danmörku, og þeir hafa þá
reynslu, að hvar sem góð aðstaða
hefur skapast til badmintoniðk-
ana, hefur gifurleg aukning þátt-
takenda fylgt i kjölfarið.
— Jú, það er rétt að sem
keppnisiþrótt hefur badminton
ekki verið mjög sterk fram að
þessu. Við höfum lagt áherzlu á
að taka þátt i Norðurlanda-
meistaramótinu, og nú hefur ver-
iðákveðið, að það verði haldið hér
á landi á næsta ári, — og þá gefst
Islendingum vonandi tækifæri til
að sjá ýmsa snillinga frá Norður-
löndunum, en nefna má, að til
dæmis Danir standa mjög
framarlega i badminton.
Badmintonsambandið hefur
ákveðið að efna til hópferðar á
Norðurlandameistaramótið, sem
fram fer i Sviþjóð 15. og 16.
nóvember n.k. en meðal þátttak-
enda á mótinu verður heims-
meistarinn Sven Pri.
— Hvernig hafa Islendingarnir
staðið sig á Norðurlanda-
meistaramótum?
— Við höfum óneitanlega staðið
okkur illa, þvi miður. Nokkrum
sinnum hefur þó Islenzku þátt-
takendunum tekizt að sigra i
undankeppni, en umtalsverðir
sigrar á þessu sviði eru þvi miður
engir. Þegar við kepptum við
Finna, gerðum við okkur vonir
um, að það yrði jöfn keppni, en
það fór á annan veg. Hins vegar
höldum við þvi fram, að við
stöndum nokkuð jafnfætis Finn-
um, en það var eitthvað sérstakt
ólányfir liðinu þegar landskeppn-
in fór fram.
Ekki er búið að ákveða ieikja-
fjölda við Færeyinga. en gert er
ráð fyrir að leiknir verði 7 einliða-
leikir og þrir tviliðaleikir. Svar
frá færeyska badmintonsam-
bandinu um þessa tilhögun hefur
þó ekki enn borizt, að sögn Karls.
Landsliðsþjálfarar eru Garðar
Aifonsson og Rafn Viggósson.
Þeir, sem hafa áhuga á að taka
þátt í ferð BSÍ á Norðurlanda-
meistaramótið eru beðnir um að
hafa samband við stjórn BSl sem
fyrstog eigi siðar en 15. okt, n.k.