Tíminn - 04.10.1975, Side 15
Laugardagur 4. október 1975
TÍMINN
Gunnar Friöriksson, forseti SVFt, í frlöum hópi kvenna ur kvennadeild SVFt. A boröinu sjást senditæk-
in, sem konurnar hafa keypt og senda nú til staöa, þar sem þörfin er mest. Frá vinstri er Svaia Eggerts-
dóttir, Ingibjörg Auöbergsdóttir, Dýrfinna Kristjánsdóttir, Hulda Viktorsdóttir, formaöur kvennadeild-
ar SVFt, Sigriöur Einarsdóttir, Regina Benediktsdóttir og Gróa ólafsdóttir. Timamynd: Róbert
Hlutavelta SVFÍ á sunnudaginn:
KVENNADEILDIN GEFUR
SJÖ FJARSKIPTATÆKI
gébé Rvlk — Það hefur veriö ár-
legur viöburður i bæjarlifinu um
langt skeiö aö sækja hlutaveltur
kvennadeildar Slysavarnafélags
tsiands. A þessu ári átti kvenna-
deiidin 45 ára starfsafmæli, og
aðeins tvisvar sinnum hefur
hlutavelta faliiö úr á þessum
tima. Agóöi af hlutaveltunni
rennur hverju sinni óskiptur til
SVFÍ, en kvennadeildin er af-
kastamest I fjáröflun hjá SVFt til
styrktar björgunarsveitum, til
kaupa á tækjum, byggingar skýla
og m.fi. Hin árlega hlutavelta
verður n.k. sunnudag, og er ekki
aö efa, aö hún veröur fjölsótt sem
endranær.
Hulda Viktorsdóttir, formaður
kvennadeildarinnar, sagöi I sam-
tali viö Timann, aö geysilega
mikið af glæsilegum vinningum
yrði á hlutaveltunni á sunnu-
daginn, og vildi hún koma á fram-
færi þakklæti til þeirra mörgu,
sem gefiö hafa muni og peninga
til deildarinnar og sagöi, aö lltiö
heföi veriö hægt aö gera, ef fólk
heföi ekki tekið konunum eins vel
og raun varö á viö söfnunina.
Meöal þeirra muna, sem veröa
á hlutaveltunni, má nefna stóla,
bækur, fatnað, leikföng, teppi og
margt fleira, og allir eru munirn-
ir nýir. Miöinn kostar aöeins eitt
hundraö krónur, og engin núll eru
né happdrætti. bá veröur þarna
einnig lukkupakkasala, og kostar
miöinn þar fimmtiu krónur.
Hlutaveltan veröur i Iðnaðar-
mannahúsinu að Hallveigarstöö-
um kl. 14:00 á sunnudaginn 5. okt.
Gunnar Friöriksson, forseti
SVFÍ, sagöi aö þrir fjóröu hlutar
af tekjum kvennadeildar SVFÍ
rynnu til starfseminnar, en deild-
in I Reykjavik hefur notað þann
hluta teknanna, sem eftir var, til
kaupa á ýmsum tækjum fyrir
björgunarsveitir SVFI úti á landi.
— Nú eru áttatiu björgunar-
sveitir á landinu, sagöi Gunnar,
og þar af 54 meö fjarskiptatæki,
og er nú kappkostað aö fá tæki
fyrir hin þrjátiu. Kvennadeildin
hér hefur verið sterkasta afliö I
tekjuöflun á þesu sviði, sagöi
Gunnar, og er reynt að senda tæki
þangað, sem þörfin er mest.
Nýjustu fjarskiptatækin, sem
Kvennadeildin hefur keypt, munu
nú verða send til Vlkur I Mýrdal i
Mývatnssveit, Borgarfjörð
eystra, Meöalland, Álftaver og
Hvamm undir Eyjafjöllum, auk
þess sem Reykjavlkurdeildin fær
eina stöð.
Mlllll.ll
III
1
Hafsteinn Austmann:
Vatnslitasýning á Loftinu
Hafsteinn Austmann
opnaði um seinustu
helgi sýningu á rúm-
lega 30 vatnslitamynd-
um á Loftinu við Skóla-
vörðustig og fetar þar
troðnar slóðir, sækir
niður i skúffur fáein
æskuverk, sem hengd
eru á pallskör, nýjustu
verkin eru svo innst.
Hafsteinn Austmann er rúm-
lega fertugur að aldri og hefur
þegar getið sér gott orð sem
myndlistarmaður, en hann nam
myndlistir I Reykjavik og suður
I Paris um árabil.
Hafsteinn Austmann kann vel
aö fara með vatnsliti, beitir
þeim af tækni og þokka. Þessa
tækni með vatnslitina læröi
hann i skólum, en hefur siðan
bætt við þá þekkingu nýjum
persónulegum tæknibrögöum.
Þessi sýning sannar okkur
ásamt mörgum öðrum, að
vatnsliturinn er á uppleið,
ásamt grafik og teikningu, sem
varla sást á sýningum I eina tvo
áratugi. „Oliumálverk á vegg”
er sumsé á niðurleiö.
Hafsteinn Austmann hefur
ekki haldið margar málverka-
sýningar, en seinastsýndi hann
á Kjarvalsstöðum áöur en þeir
GEYMSLU
HÓLF
GEYMSLUHOLF I
ÞREMUR STÆRÐUM,
NÝ ÞJONUSTA VIÐ
VIDSKIPTAVINI I
NÝBYGGINGUNNI
BANKASTÆT! 7
Samvinniihankinn
HITAVEITU
teng
mgar
i Kópavogi, Garðahreppi,
Reykjavik, Seltjarnarnesi.
Hilmar J. H. Lúthersson
Sími 7-13-88.
fóru I bann. Ég sá þá sýningu
þvi miður ekki, en eina og eina
mynd hefur maður samt séð og
þær segja, að viðfangsefnin séu
svipuð í oliu og vatnslit, en þar
er meöal annars til vitnis um
sjálfstæðan stil.
Vfkjum nu ögn að myndunum.
Elztu myndirnar eru ósköp
venjuleg byr jendaverk, og
benda ekki til neinna sérstakra
hæfileika,' nema liturinn, sem
strax tekur mjög ákveðna
stefnu. Þessi mýkt á eftir að
aukast. Hafsteinn þvær sumar
af þessum myndum, þvær úr
vatni og málar aftur og fær
undarlegar, dularfullar
stemmningar upp úr krafsinu.
Stundum skiptirhann myndflot-
inum svotil I tvennt og neðri
helmingur myndarinnar virðist
dauf endurspeglun af hinum
efri.
í innsta salnum eru beztu
myndirnar, þar hefur lista-
manninum aukizt ásmeginn,
eða kraftur. Efnistökin eru
djarfari, liturinn betri.
Myndir Hafsteins Austmanns
eru flestar abstrakt. Hann hefur
ekki heyrt ný tiðindi af sam-
ferðamönnunum, sem þó er dá-
litið bagalegt. Hafsteinn ætti að
leita eftir nýjungum, þvi lengra
verður naumast farið i sömu
átt.
|
15
iBi—
Hlégarður
Kjósarsýsla —
Reykjanes-
kjördæmi.
Héraðsmót framsóknarmanna I Kjósarsýslu verður haldið
laugardaginn 4. október. Hefst það kl. 21:00.
Ólafur Jóhannesson, dómsmálaráðherra og Jón Skaftason, al-
þingismaður flytja ávörp.
Sigurveig Hjaltested og Kristinn Bergþórsson syngja lög Sigfús-
ar Halldórssonar við undirleik höfundar. Kátir félagar leika fyr
ir dansi.
Á miðnætti verður dregið um Kanarleyjaferð fyrir einn. Að-
göngumiðinn gildir sem happdrættismiði.
Allir eru hvattir til að mæta og taka með sér gesti.
Stjórnin.
Aðalfundur FUF í Hafnarfirði
verður haldinn miðvikudaginn 8. október I hinni nýju starfsað-
stöðu félagsins að Strandgötu 11, II. hæð. Dagskrá: 1. Venjuleg
aðalfundarstörf. 2. Starf félagsins á komandi vetri. Mætið stund-
vislega. Stjórnin.
FéSag framsóknarkvenna
í Reykjavík
Rabbfundur um félagsstarfið i vetur verður að Rauðarárstfg 18
næst komandi þriðjudag 6. þessa mánaðar kl. 21. Takið kaffi-
brúsann með ykkur. Stjórnin
Haustfagnaður FUF í Reykjavík
verður haldinn I Félagsheimili Fóstbræðra laugardaginn 18.
október, og hefst kl. 21. Hálfbræður skemmta. Allir velkomnir.
Alfreö Flóki segist alltaf vera
að mála sömu myndina, aftur
ogaftur.Þetta sama eru margir
fleiri að gera, ef vel er að gáð.
Þeir, sem ekki sætta sig við það,
gera tilraunir, leggja frá sér
gömul snið og fitja upp á nýjum.
Ef til vill eru nýjustu myndir
Hafsteins Austmanns spor i
þessa átt.
Þetta er hugljúf sýning, sem
menn ættu ekkiaðláta fram hjá
sér fara, ekki sizt málarar.
Sýningin mun verða opin eitt-
hvað fram eftir næstu viku.
Jónas Guðmundsson