Tíminn - 04.10.1975, Síða 16
Laugardagur 4. oktöber 1975
JV-; SÍMI 12234
• IVilf m. HERRA
IIearðurinn
i AIDALSTRflETI a
L"J
fyrirgóóan mtU
$ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Beirut:
Nýja vopnahléð
virt að mestu
Reuter/NTB/Beirut. Lifið i Beir-
ut, höfuðborg Libanons, tók á sig
eðlilegan blæ i gær, eftir að nýja
vopnahléð — hið fimmta á tveim-
ur vikum —gekk i gildi um klukk-
an tiu i gærmorgun.
Tveimur timum eftir að vopna-
hléð gekk i gildi, var allt með
kyrrum kjörum i borgarhverfun-
um Al-Rummaneh og Shiyah, en
þar hafa hörðustu átökin milli
hinna striðandi aðila farið fram.
Hins vegar heyrðust einstaka
skothvellir i suðurhluta borgar-
innar, Naraa
Rashid Karami, forsætisráð-
herra Libanons, hélt i gær fund
meö þjóðlega friðarráðinu, sem
komið var á laggirnar eftir að
vopnahléð gekk i gildi i siðustu
viku, og sagði forsætisráðherr-
ann, aðástand mála i Beirut hefðj,
batnað til muna eftir að öryggi#t
sveitirnar tóku sér stöðu á götym
úti.
Umferð var með eðlilegum
hætti framan af degi, en stóðvað-
istsvo algjörlega, þegar liða tók á
daginn, þvi að flestir munu telja
tryggara að hafast við heima
fyrir eftir að skygga fer. tbúar
íöfuöbor 'arinnar eru ávartsynir á
'að hið uýja vopnahjé verði virt
lengi, þvi að reynslaé hefur sýjnt,
að vopnahlé siðustu'tveggja vikna
hafa ekki reynzt hildgóð.
Beirut-útvarpiðákýrði frá þvi i
gær, að 27 manns hefði verið
sleppt úr haldi, eftir að þeim hafði
verið haldið sem gislum i rúma
viku. Rúmlegg 1300 manns hafa
veriðdrepnir siðustu sex mánuði i
óeirðum þeim, er geisað hafa i
Libanon og Tripóli, sem er næst-
stærsta borg landsins.
Camilld Chanbun, innanrikis-
ráöherra,sagði i gær,að öryggis-
sveitimar myndu nú reyna að
stilla til friðar fyrir fullt og allt.
Hann lagði til, að allir þeir, sem
gerzt hefðu sekir um mannrán,
morð og annan skaða, yrðu leit-
aðir uppi og dregnir fyrir dóm.
Karami forsætisráðherra sagði
i gær, að ákveðnir stjórnmála-
menn væru liklegir til þess að
skapa óeinungu og óánægju með-
al hinna striðandi aþila. Hins veg-
-ar kvað hann þjóðina þarfnast al-
gjörrar samstöðu, einkum um
forsetaembættið. Ýmsir áhrifa-
miklir stjórnmálaleiðtogar, t.d.
Saeb Salam, fyrrum forsætisráð-
herra, hafa látið i ljós þá skoðun,
aö Franjieh, forseti Libanon, eigi
að láta af embætti.
A/Vikil spenna á Spáni:
SKOTBARDAGAR
f MADRID í GÆR
Reuter/Ntb. Spánska stjórnin
gaf yfirlýsingu i gær, að
hún myndi beita öllum ráð-
um til þess að vinna bug á þeirri
ofbeldis- og ógnaröldu, sem nú
riður yfir landið. Auk þess sagði i
yfirlýsingu stjórnarinnar, að hún
myndi krefjast bóta, vegna
skemmda þeirra, er unnar hafa
verið á sendiráðum landsins er-
lendis.
Tók spænska rikisstjórnin
ákvörðun þessa á fundi i gær, en
það mun vera annar fundur
stjórnarinnar á fimm dögum.
Franco, þjóðarleiðtogi Spánar,
var i forsæti á fundinum. Hefur
Franco sakað vinstrisinnaða fri-
múrara um að bera ábyrgð á
árásum þeim, er Spánarstjórn
hefurorðið fyrir á erlendum vett-
vangi.
Andrúmsloftið á Spáni var i gær
þrungið mikilli spennu. t Madrid
kom til skotbardaga milli lögregl-
unnarog þriggja ungmenna, sem
munu vera frá Baskaborginni San
Sebastian. t Cordoba komu um
100 þúsund manns saman til þess
að votta Franco hollustu sina og
til þess að mótmæla erlendri i-
hlutun um innanrikismál Spánar.
Eðlilegt járnbrautasamband er
nú komið á milli Frakklands og
Spánar eftir að hafa legið niðri í
um 24 klukkustundir.
Lögreglan skaut viðvörur.ar-
skotum upp í loftið, er sex menn
brutu rúður i skrifstofu sviss-
neska flugfélagsins Swissair og
belgiska flugfélagsins Sabena i
miðborg Madrid i gær.
Portúgal — Sovétríkin:
A-Þjóðverjar slita stjórn-
málasambandi við Spán
Reuter/Austur-Berlin. Hin
opinbera fréttastofa i Austur-
Þýzkalandi, ADN, skýrði frá þvi
i gær, að austur-þýzka stjórnin
hefði slitið stjórnmálasambandi
sinuvið Spánarstjórn. Kemurá-
kvörðun þessi i kjölfar kröft-
ugra mótmæla mótmæla aust-
ur-þýzku stjórnarinnar gegn af-
tökum skæruliðanna fimm, sem
teknir voru af lifi á Spáni fyrir
viku. Austur-þýzka stjórnin
kallaðiheim sendiherra sinn frá
Spáni fyrir nokkrum dögum.
1 fyrstu fréttum ADN af á-
kvörðun þessari, sagði ekki,
hverjar ástæður væru fyrir á-
kvörðun austur-þýzku stjórnar-
innar, heldur sagði einungis, að
stjómin hefði ákveðið að rjúfa
stjómmálasamband við Spán-
arstjóm. Ræðismaður Austur-
Þjóðverja I Madrid var beðinn
að koma tilkynningu um þessa
ákvörðun til spænskra yfir-
valda.
Onnur lönd, sem kallað hafa
sendimenn sfna heim frá Spáni
vegna aftöku skæruliðanna
fimm, eru: Bretland, Austur-
riki, Finnland, Sviþjóð, Noregur
og Danmörk.
Irska ríkisstjórnin neitar að
semja við mannræningjana
— hafin er umfangsmikil leit að þeim
Reuter/ntb./Dublin. Hollenzka
iðnjöfrinum dr. Herrema, sem er
forstjóri stálverksmiðju á tr-
landi, var rænt i gær af hópi
manna, sem hótar að taka hann
af lifi, innan tveggja sólarhringa
verði þrir meðlimir trska lýð-
veldishersins, sem nú sitja ifang-
elsi, ekki látnir lausir.
IRA hefur neitað að bera
ábyrgð á ráninu á forstjóranum.
trska stjórnin neitar með öllu að
ganga að kröfum ræningjanna
um að láta mennina þrjá lausa úr
fangelsi.
Dr.Herrema var rænt, er hann
var á leið til vinnu i biTsinum i
gærmorgun. Þremur timum eftir
að ránið átti sér stað, hringdi
kona.ein til holtenzka sendiráðs-
ins I Dublin, og sagði hún að
Herrema yrði tekinn af lifi, ef
mennimir þrir, sem fyrr er getið,
yrðu ekki látnir lausir úr fangels-
inu.Tveirhinna þriggja eru hátt-
settir I trska lýðveldishemum,
þeir KveinMallonog Jim Hyland.
Einnig vilja ræningjarnir, að
milljónamæringsdóttirin Rose
Dugdale, sem þátt tók i einu
mesta listaverkaráni, sem um
getur, i fyrra verði látin laus.
trska rikisstjórnin ákvað á
fundi sinum, sem fyrr segir, að
verða ekki við kröfum ræningj-
anna, og einnig var samþykkt að
hefja umfangsmikla leit að þeim,
þótt þeir hafi krafizt þess, að svo
verði ekki gert. Talsmaður frsku
Vopnasölubanni á
Tyrkland aflétt
Reuter/Ntb/Washington.
öldungadeild Bandarikjaþings
samþykkti i gær að nema úr gildi
vopnasölubannið til Tyrklands.
Hefur frumvarpið nú verið sent til
Fords forseta, sem þarf að undir-
rita það, áður en það öðlast laga-
gildi.
Öldungadeildin tók ákvörðun
þessa mjög fljótt eftir að fulltrúa-
deild þingsins samþykkti seint i
fyrrakvöld að láta Tyrkjum i té
vopn fyrir um 185 milljónir doll-
ara, auk annarrar hernaðarað-
stoðar. Tyrkir höfðu greitt þessa
upphæð, þegar öldungadeildin
samþykkti vopnasölubannið á
landið 5. febrúar sl. vegna átak-
anna á Kýpur, sem þá voru i há-
marki.
t viðbótarákvæði, sem fulltrúa-
deildin samþykkti með heimild-
inni til að aflétta vopnasölubann-
1 inu að hluta, sagði, að Ford for-
seti skyldi beita sér fyrir viðræð-
um við Tyrki um betra eftirlit
með ópiumrækt i landinu. John
Bradman, öldungadeildarþing-
maður frá Indiana, sem greiddi
atkvæði gegn þvi að vopnasölu-
banninu yrði aflétt, sagði, að til-
lagan heföi veriðsamþykkt vegna
þrýstings frá stjórn Fords for-
seta.
Margir öldungadeildarþing-
menn eru áhyggjufullir yfir þvi,
að Bandarikjastjórn og Nato hafi
misst margar mikilvægar her-
stöðvar og hernaðaraðstöðu i
Tyrklandi vegna vopnasölu-
bannsins.
Blaðafulltrúi Hvita hússins,
Ron Nessen, sagði I gær, að sam-
þykkt tillögunnar um að aflétta
vopnasölubanninu á Tyrkland
hafi úrslitaþýðingu fyrir varnir
og öryggi Bandarikjanna.
AUKIN SAMVINNA LANDANNA í MILLI
— árangur heimsóknar Francisco da Costa Gomes
Reutcr/Ntb Moskvu. Leiðtogar
Sovétrikjanna og Portúgals
skýrðu frá þvi I gær i sameigin-
legri yfirlýsingu, sem gefin var i
lok heimsóknar Portúgalsforseta
til Sovétrikjanna, að þeir hygðust
koma á föstum árlegum viðræð-
um milli fulltrúa landanna beggja
til þess að fjalla um sameiginleg
hagsmunamál og alþjóðleg
vandamál. Auk þess á það að
vera hlutverk þessara viðræðu-
nefndar að auka samvinnu Sovét-
rikjanna og Portúgals á sviði
efnahags- og stjórnmála.
t sameiginlegri yfirlýsingu.
sem gefin var út i lok heim-
sóknarinnar, segir enn fremur, að
Podgorny, forseti Sovétrikjanna,
hafi þegið boð um að koma i opin-
bera heimsókn til Portúgals, en
ekki sagði i fréttum frá Moskvu i
gær, hvenær af þeirri heimsókn
yröi.
Forsetar landanna undirrituðu
sáttmála um aukið samstarf rikj-
anna tveggja á sviði lista, visinda
og tækni, að þvi' er segir i hinni
sameiginlegu yfirlýsingu.
Eins og fyrr segir, ætla löndin
tvö að koma á árlegum viðræðum
um sameiginleghagsmunamál og
vandamál á sviði alþjóðastjórn-
mála. Munu viðræður þessar fara
fram eftir diplómatiskum leiðum,
en auk þess er markmiðið að
koma á föstumviðræðunefndum,
aö þvi er segir i yfirlýsingunni,
sem gefin var, er da Costa Gomes
hélt til Leningrad, en þar endar
hin opinbera heimsókn hans til
Sovétrikjanna. t yfirlýsingunni
segir, að aukin verði samvinna á
sviði stjórnmálá, efnahagsmála,
visinda, tækni og lista. Bæði rikin
lýsi yfir fögnuði yfir árangri
þeim, er náðist á öryggismála-
ráöstefnu Evrópu, sem haldin var
i Helsinki i Finnlandi i' sumar.
Segir i yfirlýsingunni, að árangur
ráöstefnunnar sé merkur áfangi i
þá átt að skapa bætta sambúð
milli rikja, er byggja á ólikum
þjóðfélagskerfum.
1 yfirlýsingunni segirenn frem-
ur, að draga þurfi úr hernaðar-
spennu, jafnframt þvi að dregið
er úr spennu á sviði stjórnmála i
Evrópu. Þá segir loks, að Portú-
galir styðji áfrom Sovétmanna
um bann við kjarnorkuvopnum og
öðrum gereyðingarvopnum.
stjómarinnar sagði i gær, að ef
gengið yrði að kröfum
mannræningjanna, stofnaði það
lifi annarra i' hættu og græfj und-
an friði og öryggi i landinu.
Hlaupið
að réna
gébé-Rvfk — Hlaupið I Súlu var
mjög I rénum I gær og virðist þvi
ekki ætla aö veröa neitt úr þvi.
Enn er ekki fullkannað hvort
hlaupið er úr Grænalóni. Filipus
Hannesson á Núpsstööum sagði i
gærkvöldi, aö það væri aö fjara
núna og að það væri aðeins um
metersborð á vatninu núna. —
Þetta var ekki meira en þegar
vatnavextir eru i ánni, sagði
hann.
— Það eru jakar um alla aura,
en enginn þeirra er stór, sagði
Filipus. Það eru nú um rúm tvö ár
siðan að siöasta hlaup var I Súlu.
Fellibylur stefnir
í átt til íslands
Reuter/St. John’s, Nýfundna-
landi. Fellibylurinn Gladys, sem
fór hjá Nýfundnalandi i gær, jók
mjög hraða sinn og stefndi út á
Norður-Atlantshaf i átt til ts-
lands.
Veðurstofan á St. John’s sagði,
að fellibylurinn geisaði með 73
km hraða á klukkustund, en hefði
farið framhjá Nýfundnalandi
með 110 km hraða á klukkustund.
Jarðskjálfta
kippur í Chile
Reuter/Santiago. Allsnarpur
jarðskjálftakippur fannst i
gær i borginni Valparaiso i
Chile, og mældist hann fjög-
ur stig á Merkalli-kvarða,
sem telur alls tólf jarö-
skjálftastig. Mikill titringur
fór um strandsvæðið um-
hverfis borgina.
Jarðskjálftakippur þessi
fannst einnig I Santiago og
Mendoza, sem er borg i
Argentinu, hinum megin
Andesfjallanna. Þaðan bár-
ust engar fréttir um
skemmdir af völdum jarð-
skjálftans.
.Nánari fréttir af jarð-
skjálftakipp þessum var ekki
að hafa i gær.