Tíminn - 15.10.1975, Qupperneq 1

Tíminn - 15.10.1975, Qupperneq 1
Stjórnlokar Olíudælur Olíudrif Landvélarhf PRIMUS HREYFILHITARAR I VÖRUBÍLA OG VINNUVÉLAR HFHÖRÐUR OUNNARSSON SKÚLATÚNI 6 - SÍMI (91)19460 ÓLAFUR JÓHANNESSON, FORAAAÐUR FRAMSÓKNARFLOKKSINS: Útfærslan í 200 mílur er gerð af mikilll nauðsyn A.Þ. Reykjavlk. 1 tilefni út- færslu fiskveiðilögsögunnar i 200 milur sneri Timinn sér til Ólafs Jóhannessonar, formanns Framsóknarflokksins, og spurði hann, hvað honum væri efst i huga á þessum timamótum. — Ég fagna útfærslunni, eins og öll þjóðin gerir. Þessi ráð- stöfun er gerð I trausti á og I samræmi við frumvarp það, sem liggur fyrir hafréttarráð- stefnunni um þetta efni, og þó að það sé ekki orðið að alþjóða- samningi, vænti ég þess, að flestar þjóðir skilji nauðsyn okkar og viðurkenni hin nýju fiskveiðimörk. Litlar likur á samning- um fyrir 13. nóvember. — Eru likur til þess, að samn- ingar takist við þær þjóðir, sem óskað hafa eftir viðræðum um undanþágur til fiskveiða innan hinnar nýju fiskveiðilögsögu? — Þvi hefur verið lýst yfir af rikisstjórninni, að við séum reiðubúnir til viðræðna við þess- ar þjóðir, og ákveðið hefur verið að viðræður viö Breta og Belgiumenn hefjist innan skamms. Þær viðræður munu væntanlega einnig snúast um hugsanlegar veiöiheimildir inn- an 50milnanna. Ég hef áður lát- ið i ljós þá skoðun, að litlar likur séu til þess, að samningar takist fyrir 13. nóvember, þegar sam- komulagið við Breta rennur út. Hins vegar munu þessi mál skýrast betur, er viðræðurnar hefjast. Meginmarkmiðið að minnka aflamagn út- lendinga — Nú hafa verið skiptar skoð- anir um það, hvort semja beri við útlendinga. Hvað ber helzt að hafa I huga, ef til samninga kemur? — Meginmarkmið okkar með útfærslunni er að friða fiski- stofnana og minnka aflamagn þeirra erlendu togara, sem sækja miðin hér við land, auk þess að stefna að nýtingu fiski- miðanna fyrir tslendinga sjálfa. Þess vegna veröur að meta það, hvort við teljum að við getum dregið meira úr aflamagni er- lendu togaranna með þvi að fara einhverja samkomulags- leið til bráðabirgða eða með á- tökum og ófriði, sem liklega má — META VERÐUR HVORT VIÐ NÁUM MEIRI FRIÐUN MEÐ SAMNINGUM EÐA NÝJU ÞORSKASTRÍÐI búast við, takist samningar ekki. Landhelgisgæzlan tals- vert öflugri en þegar fært var út i 50 mílur — Ef til átaka kemur á mið- unum, hvernig er islenzka land- helgisgæzlan i stakk búin til aö verja fiskveiðilögsöguna? — Landhelgisgæzlan mun verja landhelgina eftir sinni beztu getu. Hún er talsvert öfl- ugri nú, heldur en þegar fært var út i 50 milurnar 1972. En sjálfsagt getur raunin orðið sú, aö það þurfi að efla hana meira, ef viðunandi lausn fæst ekki með friðsamlegum hætti. Vita- skuld þarf landhelgisgæzlan á- vallt að vera öflug, hvernig sem á stendur, til þess að geta varið þetta stóra hafsvæði og halda þar uppi lögum og reglu. Stórt skref stigið — Með útfærslunni i 50 milur var stigið stórt skref. Er þessi útfærsla jafn þýðingarmikil? — Sérhver áfangi, sem náðst hefur i landhelgismálinu, hefur markað timamót. Með útfærsl- unni i 200 milur er stórt skref stigið, og það er gert af mikilli nauösyn. Fiskistofnarnir eru i hættu vegna ofveiða, ef hagnýt- ingu þeirra er ekki gætt skyn- samlega. 1 þessu sambandi verður manni hugsað til þess. hvernig nú myndi umhorfs á Is- landsmiöum, ef ekki hefði verið fært út i 50 milurnar 1972. Ég vil að lokum óska islenzku þjóðinni til hamingju meö hina nýju landhelgi. Lokuðu veginum og fengu svo 30 veghefilstjóra © V- Þjóðverjar vii *ða ekki 200 j mí ilurnar —*Bak Niðurgreiðslur _ ..xTlT lækka nautakjötið um 38-40% — en kim dakjöt hækkar m—> O á móti um 5%

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.