Tíminn - 15.10.1975, Blaðsíða 4
Berthold Daneke
4
TÍMINN
Miðvikudagur 15. október 1975.
AMSTERDAM,
STOLT
HOLLENDINGA,
ER 700 ÁRA
Ríkasta og fegursta borg
Niðurlanda hélt upp á
$ 700 ára afmæli sitt
— Þrumur og eldingar
gengu yfir bylgjurnar.
Ljóseldaflaugar lýsa
upp sviðið. í höfninni I
Amsterdam „berjast”
300 seglskip. Bardaginn
er leikinn skotið er með
púðurskotum og þeir,
sem eru dauðir I lokin,
eru það bara af of mikilli
drykkju.
Hundruð þúsunda voru við-
staddir þessa miðnæturhátið sem
var liður i 700 ára afmælishátið
Amsterdam. Meðal áhorfenda
voru prinsinn og prinsessan,
Claus og Beatrix með bömum
sinum, Willem Alexander 8 ára,
Johan Frisco 7 ára og Constantijn
5 ára.
En ekki aðeins fólkið við
höfnina, á götunum og við skipa-
skurðina héldu afmælið hátiðlegt.
Alls staðar i landinu var litið um
þessar mundir með stolti til
„Feneyja Norðursins”. 700 ár
hafa mótað þessa borg, sem gæti
verið sambland af Kaupanna-
höfn,Paris ogLondon. Þráttfyrir
mikla iðnvæðingu hefur Amster-
dam sérkennilegra andrúmsloft
og lifsviðhorf heldur en aðrar
borgir á Niðurlöndum.
Borgin við ána Amstel, var
fyrstbyggðá stólpum. A miðöld-
um reis hún fádæma hátt sem
verzlunar og siglingaveldi. í dag
eru það alþjóðaoliufélög,
demantaslipanaverkstæði og
vérðbréfakauphöllin, sem láta
peningana streyma i milljarða
tali inn i landið.
En Hollendingar eru ekki
eingöngu stoltir af fjármálaviti
sinu. Þeir eru montnir af sinum
myndarlegu hUsum, af hinum
6000 minjahUsum, sem gera gjör-
valla borgina að safni. Þeir eru
stoltir af Rembrandt, en i Rikis-
safninu er hægt að dást að 2300
málverkum, koparstungum og
teikningum eftir hann.
Þeir eru lika — ennþá —
hreyknir af Ajax, sem varð
tvisvar sigurvegari i Evrópu-
bikarkeppninni, og ef Johan
Cruyff kemur loks aftur heim frá
Barcelona, þá eru Amsterdam-
bUar vissir um að þeir sigra i
þriðja sinn.
Kvikmyndadrottning í tvo daga
A 53. tökudegi myndarinnar ,,Le
Gitan”, uppgötvaði Alain Delon,
sem er leikari, leikstjóri og
framleiðandi i senn, hina
■ sautján ára Nini Lafleur meðal
sigaunastatistanna.
íHann réöi hana um leið og hann
sagði upp atvinnuleikkonu sem
þó var á samning. t tvo daga
var þessi hirðingjastUlka
kvikmyndadis Delons. HUn er
dökk á brUn og brá með skásett
augu og hefur göngulag
rándýrsins. Eftir myndatökuna
flug Delon aftur til Parisar og
Nini féll aftur i gleymsku. HUn
fór áfram með ættbálki sinum
suður á bóginn, til Nizza, þar
sem ættstofn hennar hefur að-
setur sitt. Sem endurminningu
hefur hUn stóra litmynd af
Delon, með áletraðri kveðju frá
honum.
DENNI
S DÆMALAUSI
,,t sumar var það golf, og nU er
það keiluspil. Hann verður alltaf
að vera að gera eitthvað til að
vera vitlaus yfir allt árið.”