Tíminn - 15.10.1975, Blaðsíða 7

Tíminn - 15.10.1975, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 15. október 1975. TÍMINN 7 Hluti af starfsmönnum tölvuverksmiöjunnar vift tækin. Odýr og fullkomin tölvukerfi kynnt hér d landi BH-Reykjavik. — Ein af aðal- kröfum nútimaþjóðfelags er krafau um skjóta og örugga upplýsingasöfnun og gagna- vinnslu. Þeir, sem ákvörðun taka, stjórnir liinna ým.su fyrirtækja og stofnana, þurfa á ákveönum upplýsingum að lialda, og er mikið i húfi, að þær upplýsingar berist sem fyrst og séu sem gleggstar til að auðvelda þeim að taka réttar ákvarðanir. Skýrslu- gerðir færast i vöxt, t.d. i sam- bandi við framleiðslueftirlit, aröscmisútrcikninga, fjármála- stjórn og hvers konar hag- ræðingarstarfsemi. Sjúkrahús halda skýrslu um sjúklinga, þar sem skráðer sjúkrasaga hvers og eins, lifeyrissjóðir um félags- menn sina, fasteignamatið um allar húseignir á íslandi, skatt- heimtan um skattgreiðendur og svo mætti lengi telja. Á FÖSTUDAGINN verður sam- bandsþing Norræna félagsins haldið í Reykjavik. Sambands- þingið er haldið annað hvert ár og sitja það fulltrúar hinna ýmsu fé- lagsdeilda. Að þessu sinni eiga rúmlega 90 fulltrúar frá 29 félags- deildum rétt til þingsetu. Auk venjulegra aðalfundar- starfa verður rætt um skipulags- mál félagsins og deilda þess, einnig um félagsstarfið almennt. 1 tilefni þingsins efnir Norræna félagið til kvöldvöku i Norræna húsinu kl. 8.30 að kvöldi þing- dagsins. Þar verður m.a. lesið úr tveimur norrænum ritverkum, sem eru í þýðingu styrktri af nor- rænu þýðingarmiðstöðinni, en það er ljóðabókin „Létta laufblað BH-Reykjavik — Isaac C. Kidd, jr., aðmiráll, vfirmaður flota Atlantshafsbandalagsrikjanna, hefur verið hér i stuttri heimsókn undanfarna daga, en liann tók við stiiðu sinni sem yfirmaöur NATO- flotans i mailok sl. Er þetta i fyrsta skipti, sem aðmirállinn kemur liingað til lands eftir að liann fékk þessa stöðu, og er is- land annað landið, sem hann hcimsækir i þessari för sinni til rikja Atlantshafsbandalagsins. A þessum sviðum hefur tölvan þegar sannað ágæti sitt og auðveldað alla gagnasöfnun og úrvinnslu. Má fullyrða, að ef tölvur væru ekki fyrir hendi, þá væru þessi verkefni óvinnandi. Nú eru framleiddar tölvur, sem henta vel einstöku fyrirtækjum og stofnunum, og fást þær á viðráðanlegu verði. Jafnframt má tengja þær stærri tölvusam- stæðum. Einn aðalframleiðandi slikra talva i heiminum i dag er DIGITAL EQUIPMENT COR- PORATION (DEC), DEC hefur undanfarið fengið fyrirspurnir frá ýmsum aðilum á íslandi vegna hugsanlegra kaupa á tölv- um frá þeim. DEC hóf þvi að leita fyrir sér um fyrirtæki, sen gæti tekið að sér umboð á íslandi og veitt kaupendum þá fjölþættu þjónustu, sem af seljendum slikra tækja er krafizt. Niður- staðan varð sú, að ákveðið hefur og vængir fugls” eftir finnsk- sænska skáldið Gunnar Björling, sem er einn af brautryðjendum nútima Ijóðalistar i Finnlandi, og bókin „Undursamlega lif” eftir færeyska skáldið Jörgen Frants Jakobsen. Bókin er úrval bréfa útgefin af William Heinesen. Jörgen Frants er bezt þekktur fyrir skáldsögu sina Barbara. Þá kemur einnig fram álenzki óperusöngvarinn Walton Grön- roos, sem ráðinn er til að syngja i Carmen i Þjóðleikhúsinu og ann- ar verðlaunahafinn i norrænni pianókeppni hér á landi 1973 Lára Rafnsdóttir leikur á pianó. Allir félagar Norræna félagsins eru velkomnir á kvöldvökuna meðan húsrúm leyfir. í för sinni hingað hefur Kidd aðmiráll hitt ýmsa ráðamenn, ræddi m.a. við Geir Hallgrims- son. forsætisráðherra og Einar Ágústsson utanrikisráðherra, en utanrikisráðherra heimsótti aðmirálinn i októberbyrjun i aðalstöðvar hins siðarnefnda i Norfolk i Virginiu-fylki. A blaðamannafundi undirstrik- aði aðmirállinn mikilvægi Islands i varnarkeðju Atlantshafsbanda- lagsrikjanna. verið, að KRISTJAN Ó. SKAG- FJÖRÐ H/F taki að sér umboð fyrir DIGITAL EQUIPMENT CORPORATION á Islandi. KRISTJAN 0. SKAGFJORÐ H/F var stofnað árið 1912 og rekið sem einkafyrirtæki fram til ársins 1952, en þá var það gert að hlutafélagi. Fyrirtækið hefur vaxið hratt og I dag eru starfs- menn þess um 80 og er meirihluti fyrirtækisins i eigu um það bil helmings starfsfólksins. Fram til ársins 1970 voru i fyrirtækinu 3 söludeildir: a) matvara, b) veiðarfæri, c) byggingarvörur. En árið 1970 var ákveðið áð fara út á nýja braut og var stofnuð tæknideild við fyrirtækið. Aðal- markmið þeirrar deildar var i upphafi, að selja og gefa þjónustu á hvers konar tækjum til skipa, en starfsemi deildarinnar hefur þróazt og sem dæmi um fjölbreytnina má nefna, að hún selur ýmiss konar skipatæki, tæki fyrir rannsóknastofur og sjúkra- hús, tölvur og reiknivélar, alls konar vökvaknúin tæki, svo sem skurðgröfur, lyftara og krana. Vel menntaðir tæknimenn veita fullkomna þjónustu á hverju sviði. Þess má geta, að nú eru starfsmenn frá KOS i þjálfun hjá DEC erlendis. KOS mun veita sömu þjónustu og DEC veitir sin- um viðskiptavinum erlendis, þ.e. fullkomna viðgerðarþjónustu, kerfisuppsetningu og forritun. DEC var stofnað árið 1957 i Maynard, Massa. U.S.A. Fyrir- tækið hefur vaxið mjög hratt, sér- staklega á siðustu árum, t.d. framleiddi DEC á árinu 1974 yfir 12.000 tölvuraf gerðunum PDP-8, PDP-11 og DEC system 10. Þá voru starfsmenn fyrirtækisins 17.600 og velta 421,8 millj. $. Nú i dag eru yfir 40.000 tölvur frá DEC i notkun um heim allan. DEC hefur langa reynslu i gerð kerfisforrita og býður kaupend- um góða þjónustu á þvi sviði. Þeir hafa notað yfir 3000 mannár i gerð kerfisforrita sinna. Notendur DEC tölva hafa stofnað með sér samtök, sem nefnast DÉCUSog er markmið þeirra að skiptast á upplýsingum um forrit og notkunarmöguleika véla sinna. Þetta eru fjölmennustu og af- kastamestu samtök af þessari gerð i heiminum i dag. Félags- menn eru-yfir 20.000. Þær tölvur, sem verða á boðstólum hér á landi til að byrja með, verða PDP-8 og PDP-11. PDP-8hefur fyrst og fremst verið notuð sem sýritalva og á siðustu árum hefur DEC komið fram með mjög ódýr og fullkomin tölvukerfi, þar sem PDP-8 er uppistaða kerfisins. Þessi tölvukerfi eru t.d. Classic, sem er mjög hentug fyrir skóla, CMS-1, sem hentar vel verkfræðistofum, DEC-310, bókhaldskerfi fyrir banka, meðalstór fyrirtæki, bóhaldsstofur, sveitafélög o. fl. Kerfið samanstendur af: Sjónvarpsskermi, diskettum, diskum, PDP-8 (64K) og miklu úrvali af útskrifatartækjum, og eru flest þessara tækja felld inn i stórt skrifborð. Forritunarmál eru t.d. Basik, Fortran 4 og Cobol. 90 fulltrúar á sambandsþingi Norræna félagsins — kvöldvaka í Norræna húsinu YFIRMAÐUR FLOTA ATLANTSHAFSBANDA- LAGSRÍKJA í HEIMSÓKN Kuldaúlpurnar með loðkantinum vS l'p Allar herrastærðir á aðeins kr. 6.750 — Stærðir: S, M, L og XL — Litir: Bldtt og grænt ^Fataverzlun fjölskyldunnar (^Austurstræti GALLA- buxu skyrtu 1 Levis Ný sending Verð frá kr. 3.600 POSTSENDUM 8port&al S 7 Itt'MM TORG] Auglýsicf i Ttmanum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.