Tíminn - 09.01.1976, Page 4
4
TÍMINN
Föstudagur 9. janúar 1976.
Enn einn
milljónamær-
ingurinn -
Nú er von á enn einum milljóna-
mæringnum úti i hinum stóra
heimi, að þvi er sagan segir. t
þetta sinn eru það Christina
Onassis og Alexander Andread-
is, sem eiga von á barni. Christ-
ina hefur sagt, að aðeins barn
geti bjargað hjónabandi þeirra
Alexanders, og barnið sé sér
allt. — Ég er grisk, og það er
mér mjög þýðingarmikið að
eignast barn og verða móðir.
Annars finnst nú sumum, sem
frekar mætti búast við fjölgun
hjá Alexander en Christinu ef
dæma má af meðfylgjandi
mynd.
c>
sálugu. Hér birtum við mynd af
henni og eiginmanni hennar nr.
2, Joe DeMaggio, hinum fræga
baseball-leikara, — sem
reyndar hefur fyrir mörgum
árum hætt að taka þátt i
keppnisleikjum. Hann var alltaf
góður vinur Marilyn i gegnum
þykkt og þunnt, þó að hjónaband
þeirra færi út um þúfur Nýlega
komst bandariskur blaðamaður
að þvi, að á gröf Marilyn
Monroes eru alltaf ný blóm, og
setti sér það mark að komast að
þvi, hver það væri, sem stæði á
bak við það. Hann komst að þvi,
aðJoe DiMaggio kemur með —
eða sendir — blóm þrisvar i viku
á gröf fyrrverandi eiginkonu
sinnar.
*
Lengi lifir ígöml-
um glæðum
Langt er siðan lesendur
Spegils Timans hafa augum
litið mynd af Marilyn Monroe
o
í lok þessa árs mun verða
tekin i notku i 720 megawatta
orkustöð i Wilihelmshafen i
Dýzkalandi. Byggingin sjálf er
nú þegar oröin mjög áberandi i
Wilhelmshafen, sem er hafnar-
borg við Noröursjóinn, og þar
eru mikil hafnarmannvirki og
oliuhöfn. Þýzkaland er rikt að
kolanámum, og þegar olian
hækkaði svo gifurlega, vaknaði
áhuginn á að nota betur eigin
orkugjafa og þá var hafizt
handa um þessar framkvæmd-
ir. Gufutúrbinan er i 100 metra
löngu húsi, og er hún rekin með
kolum, eins og áður segir. Engu
að siður er hægt að reka
vélarnar meðoliu,ef svo kynni
að fara að það væri hentugra
siðar meira. Strompurinn er 275
metra hár.
Hún tekur
við af Liz
Þrir mánuðir eru liðnir frá þvi
Liz Taylor yfirgaf vin sinn
Henry Wynberg og sneri aftur
til mannsins sins, Richards
Burton. Henry sökkti sér niður i
vinnuna eftir að Liz hætti að
sinna honum, en svo fór þó að
lokum, að hann sá sér ekki fært
að halda áfram að ráfa um einn
og einmana, milli þess sem
hann var i vinnunni. Nú er hann
sem sagt búinn að eignast nýja
vinkonu og hún er leikkonan
Olivia Hussey, sem menn ættu
að þekkja úr kvikmyndinni
Romeo og Júliu. Hér sjáið þið
þau skötuhjúin koma út af veit-
ingastað.
Stærsta kola-
orkustöð í
Evrópu
Hvort mér leiðist. Nei, ég sit
bara heima með gamla fólkinu.
DENNI
DÆMALAUSI
„OPNAÐU WILSON.” „Þú
gleymdir að lienda húfunni minni
út Íika.”