Tíminn - 09.01.1976, Page 7

Tíminn - 09.01.1976, Page 7
Föstudagur 9. janúar 1976. TÍMINN 7 HALLINN Á RÍKISSJÓÐI 1975: Fimm milljarðar króna ÞÖTT endanlegar niðurstöðutöl- ur A-hluta rikisreiknings fyrir ár- ið 1975 séu ekki fram komnar virðist ljóst, að mismunur greiddra gjalda og innborgaðra tekna verði um 5.000 m.kr. 1 greinargerð með frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 1976 voru heildarútgjöld rikissjóðs á árinu 1975 áætluð 51.000 m.kr. að teknu tilliti til 2.000 m.kr. lækkunar út- gjaida vegna fyrirhugaðs niður- skurðar. Hins vegar var talið, að innheimtar tekjur rikissjóðs á ár- inu næmu nálægt 50.000 m.kr. Fyrrgreind tekjuáætlun virðist munu standast þrátt fyrir að inn- heimta vörugjalds varð um 500 m.kr. minni en áætlað var. Þann- ig var á þeim tima reiknað með nokkrum greiðsluhalla. Hallinn hefur hins vegar reynzt mun meiri en sú áætiun gerði ráðfyrir. Eftirtaiin atriði valda mestu um þann halla, sem verður á rikis- sjóði á árinu 1975. Greiðslur til almannatrygginga og þá fyrst og fremst til reksturs sjúkrahúsa voru auknar um 700 m.kr. frá áætlun. Niðurgreiðslur vöruverðs og út- flutningsbætur vegna landbúnað- arafurða reyndust 250 m.kr. um- fram áætlun. Til vegamála hafa greiðslur umfram áætlun numið 250 m.kr. Megin ástæða þessara umfram- greiðslna er rýrnun á mörkuðum tekjustofnum til vegamála. Þá hefur rikissjóði á árinu 1975 verið aflað sérstakrar fyrirgreiðslu i formi láns hjá Seðlabankanum til vegamála, að fjárhæð 200 m.kr., ogmunþaðlán endurgreitt af framkvæmdafé vegagerðar- innar á árinu 1976. í lok árs 1974 námu skuldir vegagerðarinnar við rikissjóðs 329 m.kr. Ákveðið var á árinu 1975 að rikissjóður yfirtæki skuldir þessar með sér- stakri lántöku hjá Seðlabankan- um og telstsú lántaka hluti þeirr- ar aukningar, sem fram kemur á lánareikningi rikissjóðs hjá Seðlabankanum. Til landhelgisgæzlunnar hafa umframgreiðslur numið 100 m.kr. Hér er fyrst og fremst um aukinn rekstrarkostnað að ræða, svo og innborganir vegna kaupa á flugvél og kostnað við endurbætur á varðskipinu Öðni. Llkur eru á að gjöld ýmissa stofnana önnur en þau er hér að framan hafa verið tilgreind, hafi farið um 700 m.kr. fram úr áætl- un. Helztu umframgreiðslur eru vegna embætta sýslumanna og bæjarfógeta að fjárhæð 300 m.kr. Vegna gengisbreytinga nema umframgreiðslur til sendiráða Is- lands erlendis 100 m.kr. og 90 m.kr. umframgreiðslur vegna út- gjalda á sviði menntamála. Við lok árs 1974 nam skuld Raf- magnsveitna rikisins við rikissjóð 931 m .kr. A árinu 1975 var ákveðið að rikissjóður yfirtæki skuldir þessar með sérstakri lántöku hjá Seðlabankanum og telst sú lán- taka hluti þeirrar aukningar, sem fram kemur á lánareikningum rikissjóðs hjá Seðlabankanum. Á árinu 1975 hefur Rafmagnsveit- um rikisins verið veitt sérstakt lán úr rikissjóði, er nemur 130 m.kr., og mun það lán endurgreitt af framkvæmdafé á árinu 1976. Þá voru 1667 m.kr. af yfirdrátt- arskuld á aðalviðskiptareikningi rikissjóðs við Seðlabankann vegna umframgjalda ársins 1974 breytt i umsamið lán, sem fram kemur á lánareikningi rikissjóðs við bankann á árinu 1975. Vaxfa- og verðbótagreiðslur rikissjóðs námu 1.000 m.kr. hærri fjárhæð en áætlun gerði ráð fyrir. Eins og fram kom i umræðum á Alþingi var ekki talið fært að láta 1.000 m.kr. af áformuðum niður- skurði fjárveitinga 1975 koma til framkvæmda og réð þar mestu Rekstrarstjóri BÚR: Þetta kom okkur jafn mikið ó óvart og öllum almenningi SJ-Reykjavik. — Viö getum litið um þetta mál sagt, sagði Mar- teinn Jónasson, rekstrarstjóri hjá Bæjarúygerð Reykjavlkur, um ólöglegu veiðarfærin, sem fund- ust um borð i togaranum Ingólfi Arnarsyni i fyrradag. — Þetta kom okkur jafnmikið á óvart og öllum almenningi. Netin, sem notuð voru i þessar vörpur, eru frá Hampiðjunni, og strangt eftir- lit er haft með að þau standist þau mál, sem tilskiiin eru. Þau hafa þvi verið einsog þau áttu að vera, þegar þau komu þaðan, en hvað siðan kann að hafa gerzt, veit ég ekki. Þau hafa kannski hlaupið eða breytzt af völdum hita eða kulda. Það er leyfilegt að klæða vörpu með poka, sagði Marteinn ennfremur, — og það getur verið ágreiningur um, hvenær klædd varpa er lögleg og hvenær ekki. Þess má geta, að eftirlitsmaður Landhelgisgæzlunnar telur, að engum geti blandazt hugur um að varpan i Indólfi Arnarsyni hafi verið óiögleg. — Ég vil fyrst og fremst taka það fram, að hingað hefur aldrei komið skipstjóri og viljað fá net með of smáum möskvum, sagði Magnús Gústafsson, fram- kvæmdastjóri Hampiðjunnar. En málið er þannig vaxið, að sjó- mennirnir eru nú að nýta upp þau net sem þeir eiga, áður en breytt möskvastærð verður tekin upp i maí, en þá taka gildi ákvæði um að lágmarksstærð möskva verði 135 mm i stað 120 nú. Netið sem fannst i Ingólfi Arn- arsyni með of smáum möskvum er úr polyetylini og næloni, en slik nethafa nokkra tilhneigingu til að hlaupa, þ.e.a.s. nælonið. Þetta net er senniiega frá þeim tima, þegar hér var hráefnisskortur, á árun- um 1973—’74, sum netin frá þeim tima hlupu, en misjafnlega mikið. Þetta net hefur hlaupið óvenju mikið. Á sfðasta ári var farið að gufu- strengja netin betur en gert var áður, og það minnkar llkurnar á að atburðir eins og þessi geti átt sér stað. Auk þessa getur einn og einn möskvi misteygzt við áraun og orðið minni en upphaflega stærð- in var. I ólöglegu vörpunni voru möskvar, sem voru 120 mm og þar yfir, en einnig möskvar sem voru minni en 120 mm. Sennilega hefur þó meirihluti möskvanna verið af ólöglegri stærð. Engar reglur eru um hve mikill hluti möskvanna þarf aö vera undir löglegri stærð til að varpa teljist ólögleg. Landhelgisgæzlan snýst i mörgu öðru en aðverja land- helgina og hefur oft veitt mikla hjálp við að flytja sjúka. t fyrrakvöid kom landhelgisflugvélin Sýr frá Egilsstöðum með tvo sjúkl- inga austan af Seyðisfirði. Sjúklingarnir voru fluttir á snjóbil til Egilsstaða, og beið vélin á meðan á Egilsstöðum og kom um miðnætti. það markmið rikisstjórnarinnar að tryggja fulla atvinnu i landinu og byggðajafnvægi. Þá hefur rikissjóður á árinu 1975 tekiðlán hjá Seðlabankanum vegna gengistryggingar rikis- sjóðs á innstæðum i Verðjöfnun- arsjóði fiskiðnaðarins skv. lögum nr. 45/1975 og nemur fjárhæð þessarar skuldbindingar 846 m.kr. Þessi niðurstaða gjalda og tekna rikissjóðs á árinu 1975 hefur haft i för með sér, að skuldir á viðskiptareikningum A-hluta rik- issjóðs við Seðlabankann voru i árslok 1975 4.953 m.kr. og á lána- reikningum 4.951 m.kr. Heildar- skuldir rikissjóðs, A-hluta, við bankann námu þvi i árslok 1975 9.904 m.kr., en voru I upphafi árs 1975 3.866 m.kr. Skuldaaukningin skiptist þannig, að 258 m.kr. eru vegna gengismunar, 846 m.kr. vegna Verðjöfnunarsjóðs fiskiðn- aðarins og 4.934 m ,kr. vegna ann- arra viðskipta rikissjóðs við bankann. Fjármálaráðherra greindi frá þvi i ræðu sinni við 3. umræðu um fjárlagafrumvarpið, að I fjár- málaráðuneytinu væri i undir- búningi gerð timasettrar greiðsluáætlunar um greiðslu- skiptingu tekna og gjalda rikis- sjóðs innan fjárlagaársins 1976. í samræmi við reglugerð um bók- hald rlkisins frá 19. desember 1975 er m.a. kveðið á um gerð greiðsluáætlana stofnana fyrir hvem mánuð. Jafnframt skipta stofnanir áformuðum útgjöldum sinum I svonefnd bundin og óbundin gjöld eftir þvi, hvort gjöldin eru bundin af lögum eða samningum eða hvort þeim megi fresta um einhvern tiltekinn tima. Áformað er að gerð þessar- ar greiðsluáætlunar verði lokið 15. jan. n.k. Ráðuneytið hefur enn fremur gefið út reglugerð um reiknings- skil innheimtumanna rikissjóðs, er tók gildi 1. janúar 1976 og kem- ur hún I stað reglugerðar um op- inber reikningsskil frá árinu 1955. Helztu breytingar frá fyrri reglu- gerð er að styttur er nú frestur innheimtumanna um skil á yfir- litum til rikissjóðs og gert ráð fyrir breyttum reglum um skil á innheimtufé samkvæmt nánari fyrirmælum fjármálaráðuneytis- ins. Tilhögun greiðslna hjá rikisfé- hirði var breytt um s.l. áramót. öll greiðsluskjöl, er berast rikis- féhirði, verða framvegis endur- skoðuð og bókuð áður en greiðslur fara fram og jafnframt verður gerður samanburður milli raun- verulegrar stöðu reikninga rikis- stofnana og greiðsluáætlana þeirra, þegar greiðslur verða inntar af hendi. Ráðuneytið telur, að nýskipan þessi hafi i för með sér aukið hagræði og tryggi aukið aðhald og eftirlit með útgjöldum rikissjóðs. Vegna þeirra breytinga, sem hérhefur veriðgreint frá, má bú- ast við nokkrum töfum á greiðsl- um reikninga úr rikissjóði i janú- ar. Vonazt er þó til, að þær tafir verði ekki viðskiptamönnum rik- issjóðs til verulegra óþæginda. (Fréttatilkynning frá fjármálaráðuneytinu) 70 áhugamenn um virkjun Blöndu boða til almenns fundar á Blönduósi MÖ-Reykjavik. Ahugamenn um virkjun Blöndu boða Húnvetn- inga til almenns fundar I Fé- lagsheimilinu á Blönduósi laug- ardaginn 17. jan. nk. kl. 14.00. Fulltrúi frá iðnaðarráðuneytinu mun mæta á fundinum og kynna virkjunarmál Blöndu og nýjustu viðhorf I þvi efni. Alþingismenn kjördæmisins eru boðnir á fund- inn, og allir sveitarstjórnar- menn i Austur- og Vestur-Húna- vatnssýslum eru sérstaklega kvattir til að mæta á fundinum. Fundarboðendur skora á Hún- vetninga að sýna stuðning sinn við Blönduvirkjun i verki og fjölmenna á fundinn. Undir þetta fundarboð rita 70 Húnvetningar nöfn sin, en vegna ófærðar og timaskorts gafst ekki tækifæri til að nálgast fleiri undirskriftir. Hér á eftir birtastnöfn fundarboðendanna: Stefán A. Jónsson Kagaðar- hóli, Þormóður Pétursson Blönduósi, Jón ísberg Blöndu- ósi, Hilmar Kristjánsson Blönduósi, Arni S. Jóhannsson Blönduósi, Lárus Ægir Guð- mundsson Skagaströnd, Brynjólfur Sveinbergsson Hvammstanga, Kristófer Kristjánsson Köldukinn II, Jón B. Bjarnason Ási, Þórir Magn- ússon Syðri-Brekku, Gisli Páls- son Hofi, Bjarni Jónsson Haga, Reynir Steingrimsson Hvammi, Auðunn Guðjónsson Marðar- núpi, Magnús Sigurðsson Hnjúki, Ellert Pálmason Bjarnastöðum, Vigfús Magnús- son Skinnastöðum, Guðmundur Jónasson Asi, Grimur Gislason Blönduósi, Heiðar Kristjánsson Hæli, Jóhannes Torfason Torfa- læk II, Lárus Sigurðsson Tind- um, Björn Pálsson Ytri-Löngu- mýri, Haukur Pálsson Röðli, Páll Þórðarson Sauðanesi. Guðni Vigfússon Blönduósi, Sveinn Ellertsson Blönduósi, Guðb jartur Guðmundsson Blönduósi, Hallbjörn Kristjáns- son Blönduósi, Haraldur Jóns- son Pósthúsinu Blönduósi, Bjarni Pálsson Larusárhúsi Blönduósi, Eggert Guðmunds- son Blönduósi, Zophonias Zophoníasson yngri Blönduósi, Pétur Pétursson Blönduósi, Ragnar Ingi Tómasson Blöndu- ósi, Grétar Guðmundsson Blönduósi, Sigvaldi Torfason Blönduósi, Guðmundur Kr. Theodórsson Blönduósi, Krist- inn Pálsson Blönduósi, Sigriður Þ. Sigurðardóttir Blönduósi, Sigursteinn Guðmundsson Blönduósi, Valgarður Hilmars- son Fremstagili, Sigurður Þor- bjarnarson Geitaskarði, Run- ólfur Aðalbjörnsson Hvammi, Sverrir Haraldsson Æsustöðum, Pétur Guðlaugsson Brandsstöð- um, Guðmundur Eyþórsson Brúarhllð, Hannes Guðmunds- son Auðólfsstöðum, Þórður Skúlason Hvammstanga, Kari Sigurgeirsson Hvammstanga, Vilhjálmur Guðmundsson Gauksmýri, Guðmundur Karls- son Mýrum III, Þorvarður Júliusson Söndum, Ragnar Benediktsson Barkastöðum, Sigurður Lindal Lækjamóti, Aðalbjörn Benediktsson Grund- arási, Einar Jónsson Tann- staðabakka, Adolf Berndsen Skagaströnd, Jón Jónsson Skagaströnd, Sævar Bjarnason Skagaströnd, Jón S. Pálsson Skagaströnd, Gylfi Sigurðsson Skagaströnd, Bernódus Ólafs- son Skagaströnd, Sveinn Ing- ólfsson Skagaströnd, Jón Ingi Ingvarsson Skagaströnd, Björg- vin Brynjólfsson Skagaströnd, Sveinn Sveinsson Tjörn, Rafn Sigurbjörnsson Hlið, Jónas Haf- steinsson Njálsstöðum, Björn Jónsson Ytra-Hóli.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.