Tíminn - 09.01.1976, Page 17
Föstudagur 9. janúar 1976.
TÍMINN
17
Umsjón: Sigmundur Ó. Steinarsson
Skapstóri Skotinn.
IAN UHE hóf knattspyrnuferil
sinn hjá Dundee, og var hann
fljótlega talinn einn sterkasti
miðvörður Bretlandseyja. Arse-
nal kom fljótlega auga á þennan
snjalla og skapmikla Skota
— og keypti hann árið 1963
fyrir 62 þús. pund. Ure var þá
fastur leikmaður i skozka lands-
liðinu — en þá meiddist hann og
átti við þrálát meiðsl að striða.
Þetta eru ekki einu meiðslin, sem
Ure hefur hlotið á litrikum knatt-
spyrnuferli sinum — hann hefur
tvivegis kjálkabrotnað á leikvelli.
Ian Urehefur ávallt verið skap-
stór — og það kom honum i koll
1967, þegar hann lék með Arsenal
gegn Manchester United. Þar
hitti hann fyrir annan skapstóran
Skota — knattspyrnukappann
Penis I.aw. Þeir slógust á leik-
vellinum og var báðum visað út
af. Fyrir hegðun sina fengu þeir
Ure og Law þyngsta knattspyrnu-
dóm, sem kveðinn hefur verið upp
i Englandi — þeir voru báðir
dæmdir i 6 vikna leikbann. Enda
var þetta ekki i fyrsta skipti sem
þeim var visað af leikvelli — það
hafði komið fyrir hvað eftir
annað. Ure missti 6 deildarleiki
fyrir Arsenal, þegar hann tók út
bannið, en Law missti 7 deildar-
— verður hann þjálfari FH-liðsins?
★ FH-ingar í stöðugu sambandi við hann
FH-ingar eru nú i stöðugu sambandi við hinn fræga knatt-
spyrnukappa frá Skotlandi — IAN URE — sem hefur leil$-
ið með Dundee, Arsenal, Manchester United og 11 sinnum
klæðztskozku landsliðspeysunni. Ure hefur mikinn áhuga
á að koma til íslands og þjálfa FH-liðið næsta keppnis-
timabil. — Hann hefur gefið FH-ingum mjog jákvæð svör
og segist koma til þeirra svo framarlega sem hann fái
ekki mjög gott starf á Bretlandseyjum. Það er ekki að
efa, að þessi skapstóri Skoti mun hafa góð áhrif á FH-liðið
— hann hefur bæði reynslu og skap til að þjappa hinum
ungu leikmönnum saman og auka baráttuþrek þeirra.
Leikmenn FH-liðsins biða nú spenntir eftir þvi að Ure
komi til þeirra.
ALEX WILLOUGHBY, — ásamt eiginkonu sinni, að Hótel Sögu i gær-
dag. (Timamynd Róbert)
Willoughby
á íslandi
kom til að ræða málin við KR-inaa
SKOTINN Alex Willoughby, sem hefur leikið með
skozku liðunum Glasgow Rangers og Aberdeen,
hefur dvalizt hér á landi undanfarna daga og rætt
við KR-inga — en KR-ingar hafa boðið honum að
koma og þjálfa 1. deildarlið þeirra i knattspyrnu
næsta keppnistimabil.
— Við höfum verið á stöðugum fundum með Willoughby, þar sem
hefur verið rætt um samningsdrög, sagði Bjarni Felixson, formaður
knattspyrnudeildar KR. Bjarni sagði, að Willoughby væri ekki búinn að
skrifa undir samning við KR-inga. — Eingöngu hefur verið rætt um
ýmis mál, sagði Bjarni. Willoughby hélt til Skotlands i morgun — þar
sem hann mun hugsa nánar um þann samning, sem KR-ingar hafa boð-
ið honum. — SOS
Norðmaðurinn Humberset
stjórnar blaklandsliðinu
— sem tekur þátt í forkeppni Olympíuleikanna á Ítalíu
NORÐMAÐURINN Gcir Hum-
berset hefur undirbúið blak-
landsliðið. sem tekur þátt I for-
keppni ölympiulcikanna á ítal-
iu. af fullurn krafti að undan-
förnu. Landsliðiö heldur til
ttalfu á þriðjudaginn, þar sem
liöið leikur i riðli meö ttaliu,
Venezuela, Grikklandi og Indó-
neslu — og verður það I fyrsta
skipti sem tsland leikur lands-
leiki gegn S-Ameríku-ríkinu
Venezuela og Asiu-rikinu Indó-
neslu.
Landsliðið verður skipað 8
leikmönnum — sem eru:
Halldór Jónsson, tS, fyrirliöi
Guömundur E. Pálsson, Þrótti
Valdimar Jónsson, Þrótti
Tómas Jónsson, UMFJ.
Páll ólafsson, Vikingi
óskar Ilallgrimsson, Vikingi
Gunnar Arnason, Þrótti
og Leifur Harðarson.
Þjálfari og liðsstjóri verður
Geir Humberset frá Noregi.
Eftir forkeppnina á ttaliu
heldur landsliðið til Englands,
þar sem það mun leika tvo
landsleiki gegn Englendingum.
Lokaundirbúningur landsliðsins
verðurum helgina, en þá leikur
það tvo leiki gegn Reykjavikur-
úrvali I Iþróttahúsi Kennarahá-
skólans — á morgun kl. 2 og á
sunnudaginn kl. 5. — SOS
leiki fyrir Manchester United og 2
leiki i Evrópukeppninni, þegar
hann tók út sitt bann.
Tveimur árum siðar — 1969 —
léku þeir Ure og Law saman hjá
Manchester United, en Arsenal
hafði selt Ure til United fyrir 90.
þús. pund. Ure lauk sinum knatt-
spyrnuferli i Manchester — eftir
það sneri hann aftur heim til
Skotlands, þar sem hann gerðist
þjálfari, og siðan framkvæmda-
stjóri hjá East Stirling.
Fyrir stuttu sagði hann lausu
starfi sinu hjá East Stirling. —
SOS
Punktar
•RAGNAR
BYRJAR AAEÐ
FH-LIÐIÐ
HAFNARFJöRÐUR. — Gamla
kempan Ragn-
ar Jónsson mun
stjórna æfing-
um hjá knatt-
spyrnumönnum
1. deildar liðs
FH, þar til að
erlendur þjálf-
ari — Ian Ure?
— tekur við lið-
mu — væntanlega i lok febrúar.
Ragnar stjórnar fyrstu æfingunni
hjá FH-liðinu á morgun, á
Kaplakrikavellinum kl. 1.