Tíminn - 13.01.1976, Blaðsíða 1
TNGIR"
Blönduós — Sigluf jörður
Búðardalur — Reykhólar
Flateyri — Bíldudalur
Gjögur — Hólmavík
Hvammstangi — Stykkis-
hólmui—Rif Súgandáfj.
Sjúkra- og leiguflug um
allt land
|Símar:
2-60-60 &
2-60-66
Hefðu skipir í sko llið saman
hefði annað fari< $ á botninn
Gsal-Reykjavik — Ég hef oft séö
grófar aðfarir hjá brezku her-
skipunum, en þetta er þaö algróf-
asta sem ég hef orðið vitni að,
sagði Helgi Hallvarðsson, skip-
herra á Þór í viðtali við Tlmann
i gær, en á sunnudag gerði her-
skipið Bacchante 27 ásiglingartil-
raunir á Þór með dyggilegri að-
stoð eftirlitsskipsins Statesman,
sem viðfrægt er úr siðasta
þorskastriði.
— Þessar ásiglingartilraunir
eru þær hættulegustu sem við höf-
um lent i, sagði Helgi. — Það var
mjög þungt i sjóinn og skipstjóri
herskipsins hreinlega réði ekkert
við skipið. Það get ég fullyrt, að ef
skipin hefðu skollið saman, hefði
annað hvort þeirra farið á botn-
inn.
Brezka herskipið gerði þessar
ásiglingartilraunir um 43 milur út
af Gerpi á sunnudag, að sögn
Helga, og kvaðst hann þá hafa
verið á leið að togarahópi sem
hefði verið nokkru sunnar.
— Stýrið var allan timann á
fullu, ýmist hart i bakborða til að
forðast árekstur eða á stjórn-
borða til að komast i stefnu.
Areynslan á stýrið var þvi mjög
mikil, og það hefði ekki þurft að
spyrja að leikslokum, ef stýrið
hefði gefið sig, sagði Helgi.
— Þrisvar sinnum varð ég að
snúa skipinu i 360 gráður, eða
heilan hring, til að forðast árekst-
ur, sagði Helgi, og bætti við, að
brezku fréttamennirnir um borð i
varðskipinu hefðu verið farnir að
fölna við þessar aðfarir. „Þeir
héldu að þetta væri það siðasta”,
sagði Helgi.
Herskipið reyndi að sögn Helga
ýmist að sigla beint á varðskipið
sjálft, eða haga siglingu sinni
þannig, að óumflýjanlega lenti
varðskipið á Statesman. Þegar
þessi aðferð þeirra gaf ekki sem
bezta raun, reyndi skipstjóri her-
skipsins, aðsögn Helga, að hrekja
varðskipið i átt til tveggja ann-
arra herskipa, sem voru ekki
langt undan.
Eftir rúmlega klukkutima til-
raunir til ásiglinga gáfust brezku
„verndarskipin” upp og hættu að-
förinni.
Þór hélt aftur á miðin eftir sjó-
prófi’' . gærkvöldi.
Sjóprófum á Seyðisfirði lauk i
gærkvöldi, og tjáði Erlendur
ÓLAFUR JÓHANNESSON, DÓMSAAÁLARÁÐHERRA:
Allt bendir til að
stjórnmálasambandi
verði nú slitið
OÓ-Reykjavik. Landhelgisnefnd
var kölluð saman til fundar I gær.
Þar var skýrt frá hvernig deilu-
mál við Breta stæðu, og hvaða að-
ferð yrði höfð við frekari aðgerð-
ir. Ólafur Jóhannesson, dóms-
málaráðherra, sagði i gærkvöldi i
viðtali við Timann, að beðið yrði
eftir sjóprófunum, vegna
ákeyrslunnar á Þór, og er niður-
stöður þeirra liggja fyrir verður
tekin ákvörðun um stjórnmálaslit
við Breta.
Sjópróf fóru fram á Seyðisfirði i
gær, en verið getur að einhver
staðfesting þurfi að fara fram i
dag, þriðjudag, i Reykjavik.
Verða þá lagðar fram myndir,
sem skipherra á landhelgisgæzlu-
flugvélinni Sú tók af atburðum,
svo og myndir blaðamanna, sem
voru um borð i Þór.
Aður en til kemur að formlega
verði gengið frá stjórnmálaslit-
um yrði það i öllu falli borið undir
utanrikisnefnd alþingis, sagði
dómsmálaráðherra. Þegar svip-
að stóð á, eða i landhelgisdeilunni
1973 og slitum var hótað, voru
dómkvaddir þrir sérfróðir
menn til að fara yfir sjóprófið til
frekara öryggis. En ekki er enn
ráðið, hvort sami háttur verður
hafður á nú. Eftir upplýsingunum
eins og þær liggja fyrir núna,
bendir allt til þess, að stjórn-
málaslit verði — nema eitthvað
nýtt gerist, til að mynda að frei-
gáturnar fari út úr islenzkri fisk-
veiðilögsögu.
Á fundi landhelgisnefndar var
engin ákvörðun tekin, en almenn-
ar umræður voru um þessi mál.
Ekki kvaðst Ólafur Jóhannesson
geta gefið upp neina dagsetningu
um, hvenær stjórnmálasambandi
við Breta yrði slitið, en það verð-
ur mjög bráðlega ef engin breyt-
ing verður á.
Björnsson, bæjarfógeti, Tim- in islenzku með ásiglingu, Eftir
anum, að þau hefðu staðfest þvi, sem fram hefði komið i
það álit, að Bretar væru visvit- sjóprófunum hefði sök herskips-
andi að reyna að laska varðskip- ins
Brezka herskipiö Bacchante á Austfjarðamiðum um helgina.
Njósnaþyrla kemur til skipsins. Timamynd: örn Rúnarsson.
OÓ—Reykjavik. — Pétur Thorsteinsson, ráðuneytisstjóri utan-
rikisráðuneytisins, fór utan s.l. sunnudag og mun heimsækja
höfuðborgir allra Atlantshafsbandalagsrikja á meginlandi
Evrópu og ræða við ráðamenn um deilu íslendinga og Breta.
Hann fór fyrst tii Oslóar og þaðan til Kaupmannahafnar. Þar
náði Timinn taii af honum I gærkvöldi, og sagðist hann hafa hlot-
ið afbragðsviðtökur hjá þeim mönnum, sem hann hafði þá haft
tal af.
Á sunnudag ræddi Pétur við Frydenlund, utanrikisráðherra
Noregs, varnarmálaráðherra landsins ogembættismenn. Erindi
ráðuneytisstjórans er fyrst og fremst að útskýra hvað er að ske i
landhelgismálum Islendinga. Sagði hann, að ekki væri við að bú-
astneinum ákveðnum aðgerðum af hálfu þeirra aðila, sem hann
ræðir við, málið er ekki á þvi stigi, en bæði i Noregi og Dan-
mörku, þar sem hann ræddi við K.B. Andersen, utanrikisráð-
herra, svo og landvarnarráðherrann og fleiri, kvaðst hann hafa
orðið var við mikla vinsemd i okkar garð og vilja til að gera það
sem hægt er, okkur til stuðnings.
1 Noregi tók Agnar Kl. Jónsson, ambassador, þátt i fundunum
og Sigurður Bjarnason, ambassador, i Danmörku.
I dag fer Pétur til Bonn og hittir þar að máli Gencher, utan-
rikisráðherra, og Visneski, aðstoðarutanrikisráðherra. Þar mun
Arni Tryggvason.ambassador, taka þátt i fundum. Frá Þýzka-
landi fer ráðuneytisstjórinn til Italiu, Grikklands og Tryklands.
Ekki er endanlega búið að ákveða við hverja Pétur ræðir I þeim
löndum.
Reiknað er með, að ferðin taki um 20daga.
Luns kemur
miðvikudag
OÓ-Reykjavik. Jospeh Luns,
framkvæmdastjóri Atlantshafs-
bandalagsins, kemur til Reykja-
vikur siðari hluta miðvikudags
n.k. og dvelur hér fram á föstu-
dag. Eins og kunnugt er, óskaði
rikisstjórnin eftir þvi, að fram-
kvæmdastjórinn kæmi hingað til
lands, til viðræðna vegna ofbeldis
brezkra herskipa i islenzkri fisk-
veiðilögsögu.
Luns mun ræða við rikis-
stjórnina um deiluna og verða
sjónarmið íslendinga útskýrð
fyrir honum og munu verða
gerðar kröfur um að brezku her-
skipin verði kvödd burt, sagði
Ólafur Johannesson dómsmála-
ráðherra i gær. Ekki vildi
ráðherrann svara neinu um,
hvort rikisstjórnin muni setja
Nato einhverja kosti, verði ekki
orðið við óskum hennar um að
brezku herskipin verði kvödd ]
burt, en sagði, að gert væri ráð
fyrir, að aftur yrði kallaður
saman fundur i fastaráði Nato,
eftir að Pétur Thorsteinsson
hefur farið um og rætt við rikis-
stjórnir annarra rikja banda-
lagsins og Luns hefur rætt við
rikisstjórnina hér.
Auk rikisstjórnarinnar mun
Luns ræða við stjórnarand-
stöðuna, ef óskað er eftir slikum
viðræðum.
300 ferkílómetr-
ar á hreyfingu
Kísiliðjan á svæðinu og
sprunga í stefnu á stöðv-
arhúsið við Kröflu -o