Tíminn - 13.01.1976, Blaðsíða 15

Tíminn - 13.01.1976, Blaðsíða 15
Þri&judagur 13. janúar 1976. TÍMINN 15 2. DEILD Manch. Utd.25 15 5 5 40-23 35 Leeds Utd. 24 15 4 5 44-22 34 Liverpool 25 12 10 3 40-23 34 Derby 25 13 6 6 39-33 32 QPR 25 10 10 5 32-20 30 WestHam 24 12 5 7 36-31 29 Middlesbro 25 10 8 7 26-21 28 Manch. City25 9 9 7 38-24 27 Ipswich 25 8 11 6 30-26 27 Stoke 25 10 7 8 31-30 27 Everton 25 9 9 7 41-46 27 Newcastle 25 10 5 10 45-33 25 Aston Villa 25 8 8 9 31-34 24 Coventry 25 8 8 9 27-34 24 Tottenham 25 6 11 8 35-41 23 Leicester 25 5 13 7 27-36 23 Norwich 25 8 6 11 36-40 22 Arsenal 25 7 7 11 29-31 21 Birmingh. 25 7 4 14 35-49 18 Wolves 25 5 6 14 25-38 16 Burnley 25 4 7 14 24-40 14 Sheff.Utd. 25 1 5 19 18-54 7 1. DEILD Sunderl. 25 15 4 6 39-21 34 Bolton 24 13 7 4 41-24 33 BristolC. 25 12 8 5 42-23 32 Notts Co 25 12 6 7 35-22 30 Southampt. 25 13 2 8 43-29 28 WBA 25 9 10 6 24-24 28 Oldham 25 11 6 8 37-37^28 Luton 24 11 5 8 34-25 27 1 Rristol R. 25 8 11 6 26-23 27 Fulham 24 9 7 8 30-26 25 Blackpool 25 9 7 9 24-28 25 Plymouth 25 9 6 10 32-32 24 Nott. For. 25 8 7 10 27-24 23 Orient 24 7 9 8 21-23 23 Chelsea 25 8 7 10 29-34 23 Carlisle 25 8 6 10 22-30 23 Hull 25 9 4 12 27-32 22 Charlton 24 8 5 11 29-41 21 Blackburn 24 5 10 9 22-28 20 Oxford 25 5 7 13 24-33 17 York 25 5 5 15 19-43 15 Portsm. 25 4 6 15 16-36 14 HALLDÓR BRAGASON... var aöaiógnvaldur Haukavarnarinnai Hér sést hann brjótast I gegn og skora eitt af 7 mörkum sinum fyri Þrótt. (Timamynd Gunnar). Ármenningar fá góðan liðsstyrk — Þorkell Steinar hefur verið ráðinn þjálfari frjálsíþróttamanna félagsins Frjálsíþróttamenn Ar- manns hafa fengið góðan lliðsstyrk. Þorkell Steinar Ellertsson hefur verið ráöinn þjálfari frjáls- iþróttamanna Ármanns ásamt Stefáni Jóhanns- syni. Ármenningar binda miklar vonir við Þorkel Steinar,sem hefur áður þjálfað hjá félaginu með góðum árangri. Þorkell Steinar var einn af keppnismönnum félagsins i frjálsum Iþróttum fyrir 15-20 ár- um. Siðan gerðist hann þjálfari hjá Ármenningum i nokkur miss- eri með góöum árangri. Stefán fór siðan til náms i iþróttafræðum til Sviþjóðar — i iþróttakennara- skóla. Gerðist eftir það skóla- stjóri Eiðaskóla, en ér nú fluttur aftur til Reykjavikur og hefur tekið upp þráðinn á ný hjá Ar- menningum. — SOS Umsjón: Sigmundur Ó.íSteinarsson varði vítaköst — rétt fyrir leikslok og Konróð tryggði Þrótti óvænt jafntefli 20:20 gegn Haukum tveimur sekúndum fyrir leikslok KRISTJAN Sigmundsson og KONRAÐ Jónsson voru hetjur Þróttar, sem tókst með geysilegri baráttu að tryggja sér jafntefli (20:20) gegn Haukum á siðustu stundu i 1. deildarkeppninni i handknattleik, þegar Haukar og Þróttur mættust i Firðinum. Kristján Sigmundsson sýndi mjög góða markvörzlu, þegar Þróttar- ar unnu upp 6 marka forskot Hauka. Konráð Jónsson skoraði jöfnunarmark Þróttar með lúmsku langskoti þegar aðeins 2 sekúndur voru til leiksloka. Haukar tóku þá Bjarna Jónsson og Friðrik Friðriksson úr umferð i leiknum — þeir voru settir i stranga gæzlu og eltir hvert sem þeir fóru. Um tima virtist þetta bragö ætla að duga Haukum — en baráttuglaðir Þróttarar, með Halldór Bragason sem aðalmann i sóknarleiknum, létu þetta ekki á sig fá. Þegar þeir Björn Vil- hjálmsson og Konráð Jónsson fóru loks i gang undir lok leiksins — voru varnarmenn Hauka alveg ráðvilltir, og gerðu þeir þá slæm mistök i vörninni. Þróttarar svör- uðu meö þvi að leika „flata vörn”, sem heppnaðist vel i byrj- un — en þá varði Marteinn Arna- son mjög vel i marki Þróttar. Haukar fundu þó fljótlega veikan hlekk i varnarvegg Þróttara — og skoruðu hvað eftir annað og kom- ust yfir 12:8 fyrir leikshlé. Haukar byrjuðu siöan mjög vel i slðari hálfleik, þegar staðan var 16:10 fyrir þá, virtust úrslit leiksins ráðin. En Þróttarar gáf- ust ekki upp — þeir breyttu þá varnarleiknum hjá sér og fóru að leika — 5-1 vörn — með miðherja framarlega. Þetta truflaði sóknarleik Hauka. Ekki veikti það Þróttarvörnina, að ungur og efnilegur markvörður, Kristján Sigmundsson, var settur i markið — og varði hann oft stórkostlega, langskot og linuskot. Þróttarar fóru i gang og náðu að minnka muninn i 16:13 og siðan 17:15 og 18:16. Haukar svöruðu með marki frá Ingimar Haraldssyni— 19:16. Þróttarar gáfust ekki upp — þeir börðust hetjulega. Kristján Sigmundsson sýndi frábæra markvörzlu — varði tvö vitaköst, frá Eiiasi Jónassyniog Herði Sig- marssyni, með stuttu millibili. Haildór Bragason skoraöi 19:17 og Konráð Jónsson minnkaði muninn i 19:18. Mikill darraöar- dans var stiginn á fjölum Hafnar- fjarðarhússins i lokin — og náöi hann hámarki, þegar Bjarni Jónsson jafnaði 19:19 með lang- skoti þegar 30 sek. voru til leiks- loka. Haukar bruna fram — og þegar 14 sek. eru til leiksloka, skorar Stefán Jónsson (20:19) fyrir Hauka og sigur þeirra virð- ist i höfn. En svo var ekki — þvi að Konráð Jónsson tryggði Þrótturum jafntefli (20:20), þeg- ar hann skoraði með langskoti, þegar aðeins voru eftir 2 sek. af leiktimanum. Kristján Sigmundsson var hetja Þróttara. — Hann varði snilldarlega undir lokin og átti stærstan þátt i þvi að Þróttarar náðu jafntefli. Halldór Bragason var virkastur i sóknarleik Þróttar-liðsins — en undir lokin sýndu þeir Björn Viihjálmsson og Konráð Jónsson,góðan leik. Eins og fyrri daginn, lék Bjarni Jóns- son aðalhlutverkið i vörninni hjá Þrótturum. — Hann stjórnaði þar baráttuglöðum leikmönnum. Þá varði Marteinn Arnason vel I byrjun. Elias Jónasson var bezti leik- maður Hauka — þegar hann fékk að leika lausum hala. En þegar Þróttarar fóru að leika með mið- herjann framarlega i vörninni, varð Elias gerður óvirkur. Hörð- ur Sigmarsson lék aöeins með Haukum i byrjun leiksins — þá meiddist hann á fæti og gat litið sem ekkert leikið með eftir það. Mörkin i leiknum skoruðu: Þróttur: — Halldór 7 (1 víti), Trausti 3, Konráð 3, Bjarni 2, Sveinlaugur 2, Björn 2 og Friðrik, eitt (viti). Haukar: — Elias 8 (2 viti), Sigurgeir 2, Arnór 2, Ingi- mar 2, Guðmundur 2, Stefán 2 og Ólafur 2 (1 viti). —SOS STAÐAN Valur 7 5 1 1 135:103 11 FH 8 5 0 3 174:156 10 Haukar 9 4 2 3 168:156 9 Fram 8 3 1 3 126:125 8 Vikingur 8 4 0 4 165:166 8 Þróttur 9 3 2 4 167:177 8 Ármann 8 2 1 5 131:170 5 Grótta 7 2 0 5 121:134 4 Markahæstu menn: Friðrik Friðrikss, Þrótti 55/12 Páll Björgvinss, Vikingi 52/18 HörðurSigmarss, Haukum 47/16 Þórarinn Ragnarsson, FH 40/19 GeirHallsteinsson, FH 38/5 Pálmi Fálmason, Fram 38/7 Viöar Slmonarson FH 38/8 Björn Péturss, Gróttu 37/15 Elias Jónsson, Haukum 35/4 ViggóSigurðss, Vikingi 33/8 Stefán Halldórss, Vikingi 28/4 Jón Karlsson, Val 28/7 Valsmenn Reykja- víkurmeistarar — sigruðu Fram (8:7) i innanhússknattspyrnu Valsmenn tryggðu sér Reykjavikurmeistaratitilinn i innanhúss- knattspyrnu i Laugardalshöllinni á sunnudaginn, þegar þeir sigruðu Framara 8:7 i úrslitaleik. Leikurinn var nokkuð sögulegur, þvl að Framliðið náöi strax yfirhöndinni i leiknum, og skoraði fimm (5:0 fyrstu mörk leiksins og þeir höfðu yfir (5:1) I hálfleik, og 6:2 fljót- lega I siöari hálfleik. Framarar féllu siöan á sjálfs slns bragði. — Þeir ætluðu sér að tefja leikinn, og reyndu að haida knettinum sem lengst, heldur en að sækja að marki Valsmanna. Valsmenn börðust og náðu aö brjóta niður varnirFramíiðsins —jöfnuðu 6:6 og komust siðan yfir 8:6, en Framarar áttu siðasta orð leiksins — 8:7, en það var of seint fyrir þá.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.