Tíminn - 13.01.1976, Blaðsíða 14
14
TÍMINN
Þriftjudagur 13. janúar 1976.
Óvelkominn qestur
ásamt því að það var hún, sem hafði fest bílinn. Bljá-
bónaður bíllinn og skínandi krómið hlaut að vera þakið
leðju og leir, og það var hrein furða, að hún hafði ekki
velt honum eða ekið út af veginum. Hef ði hana grunað að
Neil vissi ekki að þau voru á bílnum, hefði hún verið á
hóteli í bænum um nóttina, eða reynt að fara gangandi
heim, frekar en að gera eitthvað, sem henni fannst hún
ekki hafa leyfi til.
Hann kinkaði kolli í áttina til Dicks og sagði: — Frændi
minn hlýtur að haf a verið í þessu ástandi, þegar þið fór-
uð úr bænum, svo ég geri ráð f yrir, að þú haf ir ekið bíln-
um hingað?
— Já. Mér þykir það leitt, Neil. Ég vissi ekki....trúðu
mér, ég hefði ekki farið með, ef ég hefði vitað það....!
Rödd hennar brast og tárin komu fram í augu hennar.
Hann mildaðist svolítið á svipinn. — Ég er ekki að
kenna þér um neitt, Jane. .. Komdu, við skulum koma
okkur héðan. Það er næstum hætt að rigna.
Hann opnaði bíldyrnar og steig út. Aftur kom köld
vindhviða inn í bílinn. — Blakkur stendur tjóðraður
hérna uppi á ásnum. Við þurf um að ganga svolítinn spöl.
Geturðu komið svolitið nær dyrunum?
Jane stakk fótunum niður í óhagkvæma, hælaháa
skóna, sem henni fannst þröngir núna og ók sér yf ir að
dyrunum. Hún var stirð og velti fyrir sér, hvernig hún
ætti að komast út, án þess að detta.
Síður en hún gerði sér grein fyrir ætlan hans, hafði
Neil lyft henni upp og skellt aftur hurðinni. Síðan lagði
hann af stað upp brekkuna, hægt og rólega með hana i
fanginu.
Þótt Blakkur væri ekki nema nokkurra minútna gang
burtu, fannst Jane þessi erf iða ganga upp til hans enda-
laus. Neil rann oft til í leðjunni og vindurinn reif og elt í
þau eins og hann vildi slíta þau sundur. Jane hélt dauða-
haldi í öxl hans og vonaði að hann dytti ekki. Þegar þau
loks komust á fastari jörð, andaði hann þungt og óreglu-
lega og hún rann úr fangi hans, þakklát fyrir að þau
höfðu náð til hestsins án óhappa.
Hún hækkaði róminn og reyndi að yfirgnæfa vindinn:
— Hvað með Dick? Er allt í lagi með hann í bílnum?
— Já, hann getur verið þar þangað til í fyrramálið?
kallaði Neil, meðan hann losaði hestinn og leiddi hann
eftir stígnum.
Jane sneri sér upp í vindinn til að hár hennar f yki ekki
framan í hana og hrökk við, þegar Neil tók með báðum
höndum fast um mitti hennar og lyfti henni upp í hnakk-
inn. Meðeinni sveif lu var hann á bak fyrir aftan hana og
hesturinn tók þegar við sér. Hann kleif léttilega upp
brattan stíginn með þunga byrði sína.
Jane fann til öryggiskenndar með Neil fyrir aftan sig
og það fór einhver hríslingur um hana. Þetta kvöld með
Dick hafði beinzt inn á óvæntar brautir. Ef Neil hefði
ekki verið svona reiður, hefði þetta getað orðið bezta
ævintýri. Að minnsta kosti fannst henni það núna, þegar
það versta var liðið hjá. Eins og það væri það, hugsaði
hún æst og gat varla hugsað skýrt. Við hvert skref, sem
hesturinn tók, fannst henni Neil grípa fastar um mitti
hennar.
Henni f annst næstum leitt, þegar þau komu loks upp á
hæð, þaðan sem þau sáu niður í viðan, regnblautan dal-
inn, þar sem hún greindi tindrandi Ijós og vissi að bú-
garðurinn var. Litlu seinna sveiflaði Neil sér niður úr
hnakknum og lyfti henni á eftir. Hann tjóðraði Blakk og
leit niður í andlit hennar. Það var fölt og þreytulegt í
skini lampans yfir dyrunum. Augun voru stór og gljá-
andi og undir jáeim dökkir skuggar.
Hann steig eitt skref til hennar. — Ekki sérlega
skemmtileg endalok á kvöldinu fyrir þig, er það? sagði
hann svolítið hæðnislega.
Hún hafði þegar snúizt á hæli til að fara inn, en hikaði
og sneri sér aftur að honum. Hún varð undrandi, þegar
hún sá svipinn í augum hans og stóð eins og negld í
sporunum. Þögnin var þrúgandi. Jane hélt niðri í sér
andanum og fann að hjartað barðist í brjósti hennar.
Það var einhver glampi í augum Neils, þegar hann
greip um hana og dró hana hægt að sér. Hún starði á
hann eins og dáleidd og tók ekki ef tir því að harðir f ingur
hans næstum gróf ust inn í axlir henni en svo gat hún ekki
hugsað meira, því hann þrýsti vörum sínum að hennar.
Kössinn var harður og ákafur, án nokkurrar blíðu.
Handleggir hans voru eins og stálgjarðir og hún gat ekki
hreyft sig, þó hún hefði viljað og reynt.
Nær jafn fIjótt og hann hafði gripið um hana, sleppti
hann henni aftur, svo hún var nærri dottin á qrindverkið
á veröndinni. Hún skalf frá hvirf li til ilja og andaði í gus-
um.
— Ég hlýt að vera vitlaus! tautaði Neil og renndi hönd-
inni gegnum hárið. Hann horfði á hana.— Ef Dick hefði
■
m
IkilflllllfI
■fil
ÞRIÐJUDAGUR
13. janúar
7.00 Morgunútvarp.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.25 Hvernig tekur fólk þvi að
missa sjón? Gisli Helgason
sér um þáttinn.
15.00 M iðdegistónleikar:
tslensk tónlist a. „Rabbi”
söngleikur eftir Þorkel
Sigurbjörnsson. Guðmund-
ur Guðbrandsson, EUsabet
Waage, Elisabét Erlings-
dóttir, Inga Lára Baldvins-
dóttir og nemendur og kenn-
arar i Barnamúsikskóla
Reykjavikur flytja, höfund-
ur stjórnar. Kynnir og
leikstjóri: Pétur Einarsson.
b. ,Brotaspil” eftir Jón
Nordal. Sinfóniuhljómsveit
íslands leikur, Jindrich
Rohan stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurregnir).
Tónleikar.
16.40 Litli barnatiminn.
Finnborg Scheving sér um
timann.
17.00 Lagið mitt. Berglind
Bjarnadóttir sér um óska-
lagaþátt fyrir börn yngri en
tólf ára.
17.30 Framburðarkennsla i
spænsku og þýsku.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Starf og hlutverk for-
eidrafélaga vangefinna á
Norðurlöndum Margrét
Margeirsdóttir félagsráð-
gjafi flytur erindi.
20.00 Lög unga fólksins. Ragn-
heiður Drifa Steinþórsdóttir
kynnir.
21.00 Frá ýmsum hliðum.
Guðmundur Árni Stefáns-
son sér um þátt fyrir ung-
linga.
21.30 Norski blásarakvintett-
inn leikur.
21.50 Kristfræði Nýja teste-
mentisins. Dr. Jakob Jóns-
son flytur sjötta erindi sitt:
Guðssonur.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „1 verum” sjálfsævi-
saga Theódórs Friðriksson-
ar. Gils Guðmundsson les
siðara bindi (4).
22.40 Harmonikulög Fred
Hector og félagar leika.
23.00 Á hljóðbergi.Major
Barbara”, leikrit i þrem
þáttum eftir George
Bernhard Shaw. Með
aðalhiutverk fara: Maggie
Smith, Robert Morley, Celia
Johnson, Warren Mitchell
og Cary Bond. Leikstjóri:
Howard Sackler. Fyrri
hluti.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
|
IBBBBI
■
Þriðjudagur 13. janúar
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.35 Skólamál Þessi þáttur
fjallar um nýjungar i stærð-
fræðikennslu i grunnskóla.
Sýnd eru atriði úr kennslu-
stund i 1., 2. og 3. bekk og
rætt við Hörð Lárusson,
deildarstjóra, en hann var
ráðunautur við gerð þáttar-
ins. Umsjónarmaður Helgi
Jónasson, fræðslustjóri.
Upptöku stjórnaði Sigurður
Sverrir Pálsson.
21.15 Benóni og Rósa Fram-
haldsleikrit i sex þáttum,
byggt á skáldsögum eftir
Knut Hamsun. 4. þáttur.
Þýðandi Dóra Hafsteins-
dóttir.
22.10 Utan úr heimi Umræðu-
þáttur um erlend málefni.
Hvers virði eru Sameinuðu
þjóðirnar? Stjórnandi
Gunnar G. Schram.
22.40 Dagskrárlok