Tíminn - 29.01.1976, Page 15
Fimmtudagur 29. janúar 1976.
TÍMINN
15
Framsóknarfélag Borgarness
Borgnesingar og nágrannar. Spilakvöldin hefjast aftur föstudag-
inn 30. janúar kl. 8,30 i Samkomuhúsinu.
Gleymið ekki að koma með botna við þessa fyrriparta:
Gæðinga i góðu standi
garpar teygja létt á skeiði.
Ástarþrá úr augum brennur
öl um kverkar liðugt rennur.
Allir velkomnir. — Nefndin.
Kanarí-
eyjar
Þeirsem áhuga hafa á ferðum til
Kanaríeyja (Teneriffe) í febrú-
ar, gefst kostur á ferð hjá okkur
19. febrúar (24 dagar).
Góðar íbúðir, góð hótel. Sérstak-
ur afsláttur fyrir flokksbundið
framsóknarfólk.
örfá sæti laus. Þeir, sem eiga pantaða miða, en hafa ekki
staðfest pöntun sina með innborgun eru beðnir um að gera það
strax, að öðrum kosti eiga þeir á hættu að missa af ferðinni. Haf-
ið samband við skrifstofuna að Rauðarárstig 18, simi 24480.
Skrifstofan er opin frá kl. 9-6 virka daga nema laugardaga frá 9-
12.
Jindrich Rohan
stjórnar
ó næstu
Sinfóníutónleikum
Siðara misseri þessa starfsárs
hljómsveitarinnar hefst með
tónleikum i Háskólabiói næst-
komandi fimmtudag 29. janúar,
enstjórnandi á þeim tónleikumer
tékkneski hljómsveitarstjórinn
JINDRICH ROHAN, sem er is-
lenzkum tónleikagestum að góðu
kunnur siðan hann var aðal-
hljómsveitarstjóri hljómsveitar-
' innar á árunum 1961-’62, og
stjómaði einnig tónleikum á ár-
inu 1972. Einleikari er landi hans,
PETER TOPERCZER frá Brati-
slava, margfaldur verðlaunahafi,
og einn af fremstu ungu
pianóleikurum i Tékkóslóvakiu.
Alls eru tónleikarnir átta á
misserinu, og á næstu tveim
tónleikum verða islenzkir einleik-
arar, þau Halldór Haraldsson
pianóleikari, þ. 26. febrúar, og
Guðný Guðmundsdóttir fiðluleik-
ari, þ. 11. marz. Þ. 8. april verður
flutt Requiem eftir Verdi ásamt
söngsveitinni Filharmoniu og
einsöngvurunum Fröydis Klaus-
berger, Ruth Magnússon,
Magnúsi Jónssyni og Guðmundi
Jónssyni og á lokatónleikunum þ.
13. mai fá islenzkir tónlistar-
unnendur að heyra rússneska
pianósnillinginn Emil Gilels leika
Pianókonsert nr. 3 eftir
Beethoven.
Námskeið fyrir
foreldra
þroskaheftra
barna
Sunnudaginn 1. febrúar mun
hefjastþriggja mánaða námskeið
fyrir foreldra þroskaheftra
barna. Þá mun dr. Ingrid Lilje-
roth, sálfræðingur frá Sviþjóð
halda fyrsta fyrirlestur náms-
keiðsins. Aðrir fyrirlesarar verða
m.a. læknarnir Sævar Halldórs-
son og Sverrir Bjarnason, sem
munu ræða um orsakir þroska-
heftis og um geðheilsu, Magnús
Kristinsson lektor, sem talar um
atferlismótun, Anna Þórarins-
dóttir sjúkraþjálfari, sem ræðir
um sjúkraþjálfun barna, Gréta
Bachmann forstöðukona, sem
talar um daglega umönnun,
Þorsteinn Sigurðsson sérkennslu-
fulltrúi, Magnús Magnússon
.skólastjóri, Jóhann Guðmunds-
son læknir, Margrét Margeirs-
dóttir félagsráðgjafi, sem einnig
mun stýra umræðum á eftir öllum
fyrirlestrunum.
Kennslustaður verður Bjarkar-
ás, Stjörnugróf 9, og kennslutimi
verður miðvikudagskvöld kl.
20.30-22. Þátttökugjald verður
1800 krónur.
Innritun fer fram i - Lauga-
lækjarskóla fimmtud. 29. og
föstud. 30. jan. klukkan 20-22.
Aðganga að einstökum fyrirlestr-
um kr. 200.
Akureyringar-Eyfiröingar
sunnanlands
Eyf irðingafélagið heldur sitt árlega þorrablót að Hótel Borg
n.k. laugardag og hefst með borðhaldi kl. 19.00.
Gómsætur þorramatur á borðum.
Dagskrá:
Minni þorra — örlygur Sigurðsson listmálari.
Gisli Rúnar og Baldur f lytja nýjan gamanþátt.
Dansaðtil kl. 02.00
Aðgöngumiðar seldir á Hótel Borg f immtudag og föstudag
á milli kl. 17.00 og 19.00.
Fjölmenniðog takið með ykkur gesti.
Hermann Jónasson
Kveðja frá Sambandi
ungra framsóknarmanna
Það eru ekki Framsóknar-
menn einir, sem í dag sjá á
bak ástsælum og gifturikum
foringja. Islenzka þjóðin
minnist eins glæsilegasta leið-
toga sins á þessari öld. Her-
mann Jónasson var i senn
djarfhuga og kraftmikill
flokksforingi og framsýnn og
ötull þjóðarleiðtogi um langt
skeið. Ungur valdist hann til
mikilla metorða á miklum
erfiðleikatimum, og á efri ár-
um gathann litið yfir árangur
verkanna i því velmegunar-
þjóðfélagi, sem hann átti þátt i
að móta á íslandi.
t Hermanni Jónassyni sam-
einuðust ýmsir þeir kostir,
sem afburðaforingjann mega
prýða. Samherjunum var
hann félagi og samverkamað-
ur, viðsýnn og umburðarlynd-
ur. Forysta hans var ekki fólg-
in i þvi að láta kenna aflsmun-
ar, heldur I hinu að beina
kröftunum að háleitu sam-
eiginlegu marki. En þegar á
móti blés, tók hann rösklega
við og skipaði fylkingum sin-
um einarður undir merkin. t
hópi islenzkra þjóðmálafor-
ingja var Hermann Jónasson
kjarkmaðurinn og karlmenn-
ið.
Hermann Jónasson leiddi
Framsóknarflokkinn á mesta
umbrotaskeiði tslandssögunn-
ar, siðan Sturlungaöld leið.
Hann tók traustri hendi um
stjórnvölinn, þegar brotsjóir
heimskreppunnar riðu yfir
þjóðina og erlend ofbeldisöll
leituðu fangstaðar á Iandinu.
Og það fannst á, að það var
ekki veifiskati, sem stýrði
ferðinni. Þegar heims-
styrjöldin skall á, var það lán
islendinga að eiga Hermann
•lónasson i forystuliðinu, og
honum tókst að fylkja sundur-
Þykkum stjórnmálaöflum
landsins saman, þegar mest á
reið. Verk lians i upphafi
ófriðarins og hernámsins
verða ekki metin.
Það er lifsregla Framsókn-
arflokksins að samfylkja þjóð-
inni, þegar mest liggur við, en
bera merki félagshyggjunnar
fram til sigurs i ævarandi
framsókn islendinga. Her-
mann Jónasson og samverka-
menn hans áttu rikastan þátt i
að móta þessa lifsreglu og
störfuðu i anda hennar. Sem
leiðtogi stjórnarandstöðu var
Hermann sóknharður og til-
lögugóður i senn. Völdin voru
lionum ekki markmið, heldur
tæki til að efla framsókn
þjóðarinnar. Á örlagastund
átti hann val þeirra kosta að
sveigja af markaðri braut og
halda valdastóli eða fylgja
hiklaust sannfæringu sinni og
flokksmanna sinna, þótt sam-
starfsmenn hlypust undan.
Hann tók ótrauður seinni kost-
inn, á sama hátt og hann hafði
sameinað sundraða krafta
þjóðarinnar, þegar sameigin-
legur voði hafði steðjað að
henni —áður. Þetta hefur i
senn verið lán Framsóknar-
manna og þjóðarinnar allrar,
að þeir liafa fram á þennan
dag átt hugrakka leiðtoga,
sem hafa þorað að leggja á
brattann, þegar mikið lá við
og vindurinn var I fangið. Og
einsog forðum hafa Birkibein-
arnir fylgt Sverri fast eftir.
Hermann Jónasson var
ungur afburðamaður á sviði
Iþrótta, og alla ævi var honum
umhugað um málefni og hag
æskunnar i landinu. Þegar
hann ávarpaði stofnþing Sam-
bands ungra framsóknar-
manna að Laugarvatni, lagði
hann á það áherzlu, að fylk-
ingarbrjóstið yrði ævinlega
skipað þeim ungu. Vegar-
nestið, sem hann gaf S.U.F.
við upphaf f ferðar, var það að
stefna beint áfram, en ekki i
krókum til hvorrar handar. Og
þetta er og hefur verið stefna
flokksins. Framsóknarvegur-
inn liggur ekki i hlykkjum
fram og aftur eins og refil-
stigir öfgaaflanna. Hann
fylgir landslagi, en liggur
fram.
Um leið og Samband ungra
fra msóknarmanna minnist
Hermanns Jónassonar með
virðingu og þökk, vill þaö
votta fjölskyldu hans samúð
sina. Og það þakkar honum
það veganesti, sem hann gaf
samtökum framfarasinnaðrar
æsku i vöggugjöf. Megi
minning hans verða ævinleg
hvatning.
í r.**" IHl ; Frlili lir I
Skógræktarmaðurinn: Hermann Jónasson i trjálundi slnum að
Kletti i Reykholtsdal.
Kveðja frá
Skógræktarfélagi Islands
Stjórn Skógræktarfélags is-
lands vill með örfáum fátæk-
legum orðum þakka störf Her-
manns Jónassonar fyrrver-
andi forsætisráðherra i þágu
skógræktarmála á islandi.
Hermann var varaformaður
Skógræktarfélags islands frá
1946-1968 og var alla tið félag-
inu mikið traust og hald.
Áhugi hans á skógrækt var
óbilandi. Frá þvi snemma á
starfsferli hans.stundaði hann
umfangsmikla skógrækt, fyrst
i Fossvogi og siðan á eignar-
jörðsinni Kletti i Borgarfirði.
Þrátt fyrir mikinn eril, fjöl-
mörg og umfangsmikil störf á
vettvangi landsmála gaf Her-
mann Jónasson sér ávallt
tima til að finna þessu hugðar-
efni sinu bæði á sviði félags-
mála og með fögru fordæmi i
eigin skógrækt. Skógræktarfé-
lag íslands og öll skógrækt i
landinu á honum mikið að
þakka.
f.h. Skógræktarfélags íslands,
JónasJónssou
Ilákon Bjarnason
Snorri Sigurösson