Tíminn - 31.01.1976, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Laugurdagur 31. janúar 1976,
Getinn í refsivist
Kjaftamyllurnar í smábænum
Runvorn i Cheshire i Englandi
höfðu heldur betur feitan bita
milli tannanna þegar vinkona
þeirra Maureen Jackson fót að
þykkna undir belti og voru flest-
ir karlmenn þorpsins tilnefndir
sem væntanlegir feður barns-
ins, nema eiginmaður Maureen,
sem var löglega afsakaður.
Victor Jackson sat nefnilega i
fangelsi, og þurfti ekki marg-
brotinn útreikning til að komast
að þvi, að hann gæti ekki verið
valdur að þungun eiginkonu
sinnar.
Svo fæddi Maureen barnið, og
Victor varð himinlifandi yfir
framkvæmdasemi eiginkonunn-
ar. Skýringin á getnaðinum er
ósköp einföld. Victor sat i tizku-
fangelsi og var ekki innilokaður
allan sólarhringinn. Hann vann
á daginn, ásamt öðrum föngum,
við landbúnaðarstörf i nágrenni
fangelsisbyggingarinnar. A
daginn heimsótti frúin mann
sinn einu sinni eða tvisvar i
viku, og upplýstu þau, að á bú-
garðinum væri heyhlaða, einkar
hagkvæm til ástarfunda.
Á myndinni eru hinir ham-
ingjusömu foreldrar með marg-
umrætt afkvæmi sitt.
Timamyndir: Gunnar
NOKKRAR danskar nektar-
dansmeyjar hafa gist Island
siðustu vikurnar, og s.l. mánu-
dag kom hingað danska nektar-
dansmærin (eða fatafellan)
•bBibi Kristina. Mærin kom fyrst
fram s.l. þriðjudagskvöld i
veitingahúsinu Sesar við Ar-
múla, og þá voru þessar myndir
teknar af henni. Bibi Kristina
mun dveljast hér i nokkrar
vikur og skemmta landanum
með dansi og nekt.
Dönsk og ber
DENNI
DÆMALAUSI
,,Þú ertboðinn til min, Denni. Ég
er búin að læra að baka smákök-
ur.” „öðruvisi? ” ,,Ég notaði
lauksalt f staðinn fyrir vanillu-
dropa.”