Tíminn - 06.02.1976, Side 1
Leiguf lug—Neyðarf luq
HVERT SEM ER
HVENÆR SEM ER
FLUGSTÖÐIN HF
Simar 27122-11422
ÆNGIRf
Aætlunarstaöir:
Blönduós — Sigluf jöröur
Búðardalur — Reykhólar
Flateyri — Bíldudalur
Gjögur — Hólmavík
Hvammstanai — Stykkis:
hólmur —Rif Súgandafj.
Sjúkra- og leiguflug um
allt land
Símar:
2-60-60 &
2-60-66
t3
Einar Ágústsson utanríkisráðherra:
„Slíta ber stjórnmdlasambandi"
— Tvær brezkar freigátur komnar inn fyrir 200 mílna mörkin
Gsal-OÓ-Reykjavik. Brezka
rikisstjórnin ákvaö i gærkvöldi að
senda freigátur inn I Islenzka
fiskveiðilögsögu tii verndar
brezku veiðiþjófunum, eftir að
varðskip hafði i gærdag klippt á
togvira brezks togara. Ákvörðun
þessi er i samræmi við yfirlýs-
ingu Caliaghans utanrikisráðh.
Breta fyrir nokkru. —t>að er min
persónulega skoðun, að slita beri
stjórnmálasambandi nú, sagði
Einar Ágústsson, utanrikisráð-
herra i samtaii við Timann I gær-
kvöldi.
Einar sagði, að málið yrði rætt i
ríkisstjórninni i dag, og mun
ákvörðun um stjórnmálaslit
væntanlega verða tekin á þeim
fundi. — Rikisstjórnin hefur lýst
þvi yfir, að hún muni ekki liða
herskipaihlutun, og ég hygg, að
hún muni halda sig við þá yfirlýs-
ingu, sagði ráðherra. Einar
„Hörmuleg
fljótfærni"
Gsal-Reykjavik — Þessi á-
kvörðun er hörmuleg og fljót-
færnisleg og raunar óskiljan-
leg, sagði Geir Hallgrimsson,
forsætisráðherra, er Timinn
hafði tal af honum i gærkvöldi,
eftir að ljóst var, aö herskip
Breta voru á leið inn i land-
heigina. — Aðgerðir varö-
skipsins Baldurs áttu sér stað
á friöunarsvæði, sagði forsæt-
isráðherra, og Bretum hafði
verið gert aðvart um það.
Bretar létu i veðri vaka, að
þeir hefðu skilning á friðunar-
og verndunarsjónarmiðum.
Þeir láta nú slitna upp úr öll-
um samkomulagsumleitunum
með þvi að virða friöunarráð-
stafanir að vettugi. Hótanir
þeirra hafa að visu beinzt i þá
átt, að við þvi mætti búast, að
herskipavernd yrði tekin upp
aftur. Við mótmælum slikri
endurtekinni valdbeitingu
harðlega. Jafnframt skuium
við halda jafnvægi okkar, rasa
ekki um ráð fram, og gæta
þess að sá vinnur sigur að lok-
um, sem meiri stillingu og þol-
gæöi sýnir, sagði Geir Hall-
grímsson.
Agústsson kvaðst gera ráð fyrir
þvi, að stjórnmálaslitin yrðu til-
kynnt með einhverjum fyrirvara,
svo að Bretar gætu kallað freigát-
ur sinar út úr islenzkri landhelgi.
Einar tók þó fram,.að þetta væri
ágizkun sin.
— Ég tel, að við getum ekki
setzt að samningaborði með
Bretum, meðan herskip eru innan
landhelginnar, sagði utanrikis-
ráðherra að lokum.
Varðskipið Baldur klippti i gær-
dag á báða togvira brezka togar-
ans, Loch Eriboll H-323, og gerð-
ist atburðurinn kl. 15.15 um 22
sjómilur norður af Langanesi.
Brezki togarinn var þá að veiðum
á friðuðu svæði, ásamt fjórum
öðrum brezkum veiðiþjófum. Að
sögn Landhelgisgæzlunnar er
brezku skipstjórunum fullkunn-
ugt um friðunarsvæði fyrir
Austurlandi. Höskuldur Skarp-
héðinsson, skipherra á Baldri til-
kynnti brezku togurunum marg-
oft i gærdag, að hætta veiðum,
jafnframt þvi sem hann kvað þá
vera að veiðum á friðuðu svæði. I
skeyti sem Landhelgisgæzlunni
barst i gær frá Höskuldi, kemur
fram, að hann heyrði á tal skip-
stjóra brezka togarans, Real
Madrid, og yfirmannsins á eftir-
litsskipinu Lloydsman. Skipstjór-
inn spurði, hvort togararnir ættu
að taka tillit til friðuðu svæðanna
og svaraði yfirmaðurinn á
Lloydsman þvi neitandi.
— Þessi tilkynning frá Lloyds-
man er mjög gróf og ögrandi við
fiskverndunarsjónarmið Islend-
inga, sagði Jón Magnússon, tals-
maður Landhelgisgæzlunnar, i
samtali viö Timann.
Eftir klippinguna i gær heyrði
Höskuldurskipherra ennfremur á
tal skipstjórans á Loch Eriboll,
þar sem hann var að ræða við
yfirmanninn á Lloydsman.
Höskuldur sagði i skeyti sinu til
stjórnstöðvar Landhelgisgæzl-
unnar, að togaraskipstjórinn
hefði játað að hafa fengið itrekað-
ar viðvaranir frá varðskipinu og
sérstaklega varðandi friðuðu
svæðin.
Nokkru eftir klippinguna heyrði
Höskuldur ennfremur i talstöð, að
Lloydsman tilkynnti brezku tog-
urunum að færa veiðisvæðið
suður fyrir 66 gráðu, þ.e. suður
fyrir friðaða svæðið.
Leiðtogar brezkra togarasjó-
manna og togaraeigenda heimt-
uðu i gær, að Callaghan utanrikis-
ráöherra stæði við þau orð sin, að
brezkarfreigátur yrðu sendar inn
fyrir 200milna mörkin til verndar
brezku togurunum, ef klippt yrði
á togvir brezks togara.
Nokkru áður en brezku freigát-
urnar Juno og Diomede lögðu af
stað inn i islenzka landhelgi,
sagði talsmaður brezka
utanrikisráðuneytisins, aö beðiö
væri eftir staðfestingu á þvi, að
islenzkt varðskip hefði klippt á
vira brezks togara — og að málið
yrði athugað vel og vandlega. Þá
biðu freigáturnar tvær við 200
milna mörkin, tilbúnar að fara
inn fyrir, þegar er skipun bærist.
Varnarmálaráöuneytið brezka
tilkynnti svo um kl. 20, að freigát-
urnar væru lagðar af stað inn
fyrir.
Fréttastofa Reuters sagði i
gærkvöldi, að brezkir embættis-
menn væri reiðubúnir að fara til
Reykjavikur til viðræðna um
skammtimalausn deilunnar, og
biðu eftir svari frá Islandi um
hvar og hvenær viðræðurnar gætu
farið fram.
Nimrod-njósnaþota mun fljúga
yfir veiðisvæðum brezku togar-
anna i dag, samkvæmt brezkum
fréttum. Þá mun þriðja freigátan
vera á leið á miðin.
Kostnaður við hitaveitu
Akureyrar 2,5 milljarðar
........> O
FULLTRÚAR Vinnumálasambands samvinnufélaganna ASÍ og
VSt sátu I gær fund með rikisstjórninni. Þar voru ræddir þeir 15
punktar, sem samtökin hafa orðiö sammála um að beina til rikis-
stjórnarinnar. Gert er ráð fyrir öðrum fundi fljótlega. Áð loknum
þessum fundi hélt sáttasemjari rikisins fund með fulltrúum ASt og
VSÍ aö Hótel Loftleiðum.
Þessa mynd af fundinum með rikisstjórninni tók Róbert I gær.
Ráðherrarnir eru Ólafur Jóhannesson dómsmálaráðherra, Geir
Hallgri msson forsætisráöherra og Gunnar Thoroddsen félagsmála-
ráöherra. Auk þeirra og fulltrúa aðila vinnumarkaðarins, sátu
fundinn sáttasem jari rikisins og forstöðumaður Þjóðhagsstofnunar.
Lokauppgjör Sigurbjarnar í Klúbbnum og
Húsbyggingarsjóðs Framsóknarfélaganna
> o
Tíminn birtir reikninqg Framsóknarflokksins
------► o • o