Tíminn - 06.02.1976, Blaðsíða 2
2
TÍMINN
Föstudagur ti. febrúar 1976.
Kristinn Snæland sveitarstjóri á Flateyri:
VERÐA AFSKIPTI RÍKISVALDSINS
TIL ÞESS AÐ GERA ÍÞRÓTTA-
HÚSIÐ SJÖ SINNUM DÝRARA EN
HEIMAMENN SJÁLFIR VILJA?
— hönnunarkostnaðurinn einn svipaður og tveggja ára
ráðstöfunartekjur sveitarfélagsins
Gsal—Reykjavik — Mér virðist
að litlu sveitarfélagi, eins og
okkar hérna á Flateyri, sé ýtt út
I miklu dýrari framkvæmdir en
ástæða er til. Þegar við ákváð-
um 1973 að byggja hér Iþrótta-
hús, gerðum við okkur Ijóst, að
við yrðum að byggja ódýrt, og i
samræmi við þá skoðun leituð-
um við fyrst til húsameistara,
sem jafnframt er bygginga-
verkfræðingur — og féllst hann
á að taka að sér verkið. Vegna
afskipta rikisvaldsins er okkur
hins vegar ýtt út I það, að
byggja fullkomið, vandað, og
um leið fokdýrt hús, sem áætlað
er að kosti 105 millj. kr. i dag
sagði Kristinn Snæland sveitar-
stjóri á Flateyri i viðtali við
Timann. 1973 var áætlað að
þetta fullkomna iþróttahús
kostaði 80 millj. kr. og það ár
voru brúttótekjur Fiateyrar-
hrepps kr. 9 millj. og þar af 4
milljónir af fjárhagsáætlun til
verklegra framkvæmda, sem er
óvenju há tala. Ef við reiknum
dæmið þannig, að sveitarfélagið
greiði helming byggingar-
kostnaðar á móti riki, tæki húsið
10 ár i byggingu, miðað við það,
aö allt fé hreppsins til verklegra
framkvæmda rynni beint i
byggingu hússins. Reiknum við
dæmið hins vegar þannig, að
eöliiegt væri að nota 10% af ráð-
stöfunarfé hreppsins til bygg-
ingu fþróttahúss, myndi það
taka okkur hundrað ár að
byggja húsið! Svo virðist sem
rikisvaldið oti okkur á þennan
hátt i byggingu á húsi, án tillits
til fjárhagsgetu hreppsins.
1973 hófu menn á Flateyri aö
ræða mikilvægi þess að koma
upp iþróttahúsi og sundlaug á
staðnum og i beinu framhaldi af
þeim umræðum var ákveðið að
leita eftir þvi við húsasmið
nokkurn, sem jafnframt er
byggingatæknifræðingur, að
taka að sér þetta verk, sagði
Kristinn ennfremur. Tók hann
vel i þessa bón. Næsta skrefið,
sem Flateyringar stigu I þessu
máli, var að ræða við Iþrótta-
fulltrúa rikisins, en forsenda
þess, að hægt sé að fá framlag
frá riki, þarf samþykki hans að
liggja fyrir.
tþróttafulltrúinn taldi aðferð
þá, er Flateyringar höfðu
Jón Steinar Gunnlaugsson hdl. í Vísi:
Dómsmálaráðherra
gegndi skyldu sinni
HHJ-Rvik — Visir hefur að
undanförnu birt hverja greinina
á fætur annarri, þar sem Ólafur
Jóhannesson dómsmálaráð-
herraerborinnþungum sökum.
Meðal annars hefur þvi verið
haldið fram, að sú ákvörðun
ráðherra að aflétta lokun veit-
ingahússins Klúbbsins á
sinum tima hafi verið óeðlileg
ogafannarlegum rótum runnin.
Þessum rógskrifum blaðsins
hefur þegar verið hnekkt, enda
gerði dómsmálaráðherra ekki
annað en að fylgja lögum um
þetta cfni.
Tveir löglærðir menn, þeir
Finnur Torfi Stefánsson og Jón
Steinar Gunnlaugsson, sjá um
þátt i Visi, er nefnist „Mála-
lok”, og er þar fjallað um ýmis
lögfræðileg efni.
Jón Steinar skrifar á fimmtu-
daginn einn slikan þátt undir
fyrirsögninni „Dómsmálaráð-
herra var rétt og skylt að aflétta
lokun Klúbbsins”.
Greinarhöfundur kemst m.a.
svo að orði.
„Skv. þeim atriðum, sem hér
hafa verið rakin er það skoðun
min, að dómsmálaráðherra hafi
bæði verið rétt og skylt að taka
þá afstöðu til lokunar lögreglu-
stjóra á rekstri vinveitinga-
hússins, sem hann gerði. Rikis-
saksóknara var i lófa lagið að
krefjast dómsúrskurðar um lok-
un staðarins, ef hann hefði talið
það nauðsynlegt til að sakar-
gögn spilltust ekki. Ekkert ligg-
ur raunar opinberlega fyrir um,
að slik krafa hefði verið ráð-
herranum á móti skapi, þó að
slfkt skipti ekki máli, þar sem
dómsmálaráðherra getur ekki
lögum samkvæmt tekið fram
fyrir hendur ákæruvalds eða
dómsvalds. A hinn bóginn hefði
ekki á þessu stigi veriö unnt að
krefjast lokunar staðarins á
þeim grundvelli, að
„óviðeigandi” væri að staðurinn
væri opinn. Komi til málshöfð-
unar út af máli þessu getur
rikissaksóknari gert kröfu um
sviptingu veitingaleyfis, ef hann
telur rannsókn styðja slika
kröfu. Enda fengi athugun á þvi,
hversu „viðeigandi” áfram-
haldandi rekstur væri þá rétta
meöferð fyrir dómi, þar sem
sjónarmið ákærða um það
atriði, sem önnur kæmust einnig
að.”
Forráðamenn Visis, sem ekki
hafa linnt látum undanfarna
daga, og m.a.s. gengið svo langt
aö hafa i hótunum við dóms-
málaráðherra og rikisstjórnina
alla, hefðu þvi betur leitað til
hinna löglærðu greinahöfunda
blaðsins, áður en þeir lögðu til
atlögu við dómsmálaráðherra.
Dómsmálaráðherra
var rétt oq skylt
að aflétta lokun
Klúbbsins
ÞETTA er fyrirsögnin á grein aflétta lokun Klúbbsins, þver-
Jóns Stcinars Gunnlaugssonar i öfugt við það sem áður hefur
Visi, þar sem hann sýnir fram á vcrið fram haldið.
að dómsmálaráðherra bar að
Sjó-
menn
bíða
svara
Bll-Reykjavik. — Engir samn-
ingafundir hafa ennþá verið
haldnir i samningamálum sjó-
manna og útvegsmanna. Sl. mið-
vikudag var haldinn fundur i
sjóðanefndinni svokölluðu, og
rikisstjórnin hefur enn til með-
ferðar þau mál, sem sjómenn
hafa lagt hvað mesta áherzlu á,
en við höfum ekki enn fengið við-
hlitandi svör, sagði Jón Sigurðs-
son, formaður Sjómannasam-
bandsins, i viðtali við Timann i
gær.
Jón sagði, aö á fundi I Sjó-
mannasambandinu, sem haldinn
yrði i dag, myndi ákveðið, hvert
yrði næsta skrefið I málinu, en
eins og kunnugt er, hefst boðað
verkfall sjómanna 14. febrúar
nk., verði ekki samiö fyrir þann
tima. Sjómannasambandið hefur
fengið staðfestingu á verkfalls
heimild frá velflestum aðildarfé-
laga.
Loðnu-
bræðsla
hafin á
Stöðvarfirði
BK Stöðvarfirði — A miðvikudag
hófst hræösla loðnu i sildarverk-
smiðjunni Saxa á Fáskrúðsfirði,
en þar er búið að taka á móti 1250
tonnum af loðnu. Bátar biðu eftir
löndun hér i gær, fimmtudag, og
var búizt við að þeir væru með
um 000 tonn.
Skuttogarinn Hvalbakur hefur
veitt fremur litið frá áramótum,
en togarann eiga Stööfirðingar i
samfélagi með Breiðdælingum . t
janúarmánuði var verulegt at-
vinnuleysi á Stöðvarfirði, en með
batnandi tið hefur fremur rætzt
úr þvi.
Nú er unnið við þak á nýbygg-
ingu frystihússins, svo og við
byggingar Pósts og sima og Sam-
vinnubankans, en bæði þau siðar-
nefndu voru gerð fokheld s.l.
sumar.
ákveðið, ekki þá réttu, og taldi
nauðsynlegt, að fá arkitekta og
verkfræðinga til þess að hanna
slikt mannvirki. Flateyringar
höfðu þá samband við húsa-
meistara rikisins og óskuðu eft-
ir þvi, að hann teiknaöi húsið, en
hann neitaði og bar við önnum á
teiknistofu sinni. Otveguðu
Flateyringar þvi sjálfir arkitekt
til verksins.
1 nóvember 1973 lá fyrir áætl-
un frá byggingarfulltrúa rikis-
ins um byggingu hússins og var
þá miðað við að kostnaður við 1.
áfanga yrði 15,6 millj. kr. í
sama mánuði kom arkitektinn
með hugmyndir að tillögum að
verkinu i heild og voru þær
skoðaðar af Flateyringum, sem
fannst húsið heldur stórt og ósk-
uðu eftir breytingum þar að lút-
andi. 1 marzmánuði 1974 lágu
svo fyrir nýjar teikningar, og
voru þær samþykktar af
hreppsnefnd.
— Um svipað leyti hefði hér
verið teiknað frystihús, stórt
mannvirki — og kostnaður
' við þá teikningu var um 300
þús. kr. og voru það þær hug-
myndir sem menn höfðu um
kostnað við slikt verk, sagði
Kristinn. — Siöar á árinu 1974
fáum við áætlun arkitektsins
um kostnað við hönnun á húsinu
öllu, og hljóðaði sú áætlun upp á
rúmar 7 millj. kr. og var miðað
við byggingarvisitölu 1250 stig.
Miðað við þá tölu var heildar-
byggingarkostnaður kominn i
105 millj.kr. — og þá fór mönn-
um fyrst að blöskra.
— A sama tima og hönnunar-;
kostnaður arkitektsins lá fyrir,
fengum við þær upplýsingar, að
efni i fokhelt stálgrindahús, sem
myndi þjóna nákvæmlega sama ;
tilgangi, væri rúmlega 7,8 millj.
kr. — og með klæðningu yrði
upphæðin um 15 millj. kr. Þá
var að visu eftir að steypa
sökkla, svo og öll frágangs-
vinna. En hvað eru fimmtán
milljónir eða rúmlega það á
móti 105 milljónum?
— Ef rikisvaldið hefði sam-
þykkt stálgrindahús, hefði það
einnig komið rikinu sjálfu til
góða, þar sem framlag þess
hefði þá einnig verið mun
minna, sagði Kristinn.
Varðandi þá fullyrðingu Þor-
steins Einarssonar, íþróttafull-
trúa, óskaði Kristinn Snæland
eftir þvi, að tekið væri fram, að
það væri ekki rétt með farið hjá
iþróttafulltrúanum, að stál-
grindahús væru tæplega
samþykkt af eldvarnareftirliti.
Kristinn kvaðst sjálfur hafa
kannað það mál, og ekki væri
fótur fyrir þeirri fullyrðingu.
— Nú stöndum við frammi
fyrir þvi, sagði Kristinn, að
teikningar arkitektsins liggja
fyrir og einnig höfum við reikn-
ing fyrir þeim, sem hljóðar upp
á 4 millj. kr. Ef við tækjum þá
stefnu, að byggja þetta full-
komna og yandaða hús, — þá er
ekki ljóst,hvortvið getum notað
þá byggingu fyrr en eftir marga
áratugi.
Kristinn kvað mál þetta hafa
vakið mikla athygli á Flateyri
— og undrar sennilega engan
eftir þennan lestur. Flateyrar-
hreppur hefur ekki ákveðið,
hvernig brugðizt verður við
þessu máli.
Vopnafjörður:
Allt þróarrými fullt
11 til 12 þús. tonn af loðnu komin d land
SS-Vopnafirði — Um ellefu til tólf
þúsund tonnum af loðnu hefur nú
verið landað á Vopnafirði, og er
bræðslan i Sildarverksmiðju
rikisins i fulium gangi allan
sólarliringinn. Verksmiðjan
afkastar um 550 tonnum á sólar-
hring. Þróarrými er um 9.500
tonn, og var allt fullt á fimmtu-
dag, en búizt var viö að eitthvaö
myndi losna á föstudag og
laugardag.
Togari Vopnfirðinga, Bretting-
ur, hefur fengið fremur lélegan
afla frá áramótum, en vinna
hefur þó verið nokkuð góð og stöð-
ug á staðnum að undanförnu. —
Mjög gott tiðarfar hefur
verið undanfarnar vikur, og
hefur verið mjög snjólétt i vetur
og allt að verða autt. Þá eru allir
vegir færir, sem er fremur sjald-
gæft hér á þessum árstima.
Bessi leikur Tópaz
— með Leikfélagi Hveragerðis
LEIKFÉLAG Hverageröis hefur nú að undanförnu æft gamanleikinn
Tópaz eftir franska leikrita- og kvikmyndahöfundinn Marcel Pagnol.
Leikur þessi er mörgum eflaust I fersku minni siöan hann var sýndur í
Þjóðleikhúsinu, fyrir tæpum tuttugu árum siðan, við gcysimiklar vin-
sældir. Aðalhlutvcrkið, Topaz, leikur að þessu sinni Bessi Bjarnason
leikari og mun enginn svikinn af tilþrifum hans i þessu viðfræga
gamanhlutverki. Mcð önnur helstu hlutverk fara: Margrét Asgeirs-
dóttir, Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson, Steindór Gestsson, Kristján
Wiium, Guðjón Björnsson, Svava Hauksdóttir og Aðalbjörg M.
Jóhannsdóttir, en lcikendur eru alls um tuttugu. Leikstjóri er Gisli
Alfreðsson er leikmynd gerði Þorgrlmur Einarsson. Enginn vafi er á
þvi að húsfyllir veröur I Hótel Hveragcrði á frumsýningunni sem verð-
ur i kvöld kl. 21.00. Fyrirhugað er að fara með leikinn um Suðurland að
vcnju og jafnvel víöar.